Fréttablaðið - 07.12.2005, Blaðsíða 18
7. desember 2005 MIÐVIKUDAGUR18
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
UPPÁHALDSBJÓR MARGRA KYNSLÓÐA
Það gera Tékkar líka.
Þess vegna nota þeir
10.000 ára gamalt
vatn sem er tekið úr
300 metra djúpri
borholu í Budweiser
Budvar bjórinn.
Þetta hreina og tæra
tékkneska vatn gefur
bjórnum silkimjúkt
yfirbragð.
Íslendingar
þekkja gott vatn
LÉ
TT
Ö
L
Bjartsýni er dyggð
„Ingibjörg á eftir að leiða
Íslendinga inn á nýjar
brautir. Það munu fjölmarg-
ir bætast í fylgishópinn á
næstunni, jafnframt því
sem margir eiga eftir að
ganga til liðs við flokkinn í
pólitísku starfi.“
Stefán Jóhann Stefánsson Samfylking-
armaður um flokk sinn og formann í
grein í Fréttablaðinu.
Vanda sig
„Hann [Viðar Eggertsson
útvarpsmaður] kallar
Lúðvík jafnan „Lúdwig“.
Ríkisútvarpið verður að
vanda framburð sinn.
Pétur Pétursson þulur í
bréfi í Morgunblaðinu.
Á BÓLAKAFI Jólasveinninn í Japan man eftir öllum, líka fiskunum í Sædýrasafninu í
Tókýó. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Harry Potter og Blendingsprins-
inn hefur selst allra bóka mest í
Bókhlöðunni Pennanum á Ísafirði
það sem af er jólabókasölunni
þetta árið. Jónas Gunnlaugs-
son bóksali segir fólk á öllum
aldri kaupa þessa nýjustu bók
um galdradrenginn Harry og að
spennan vegna hennar sé svipuð
og vegna fyrri bókanna.
Á hæla Harry kemur bók
sem einnig tilheyrir bókaflokki,
nefnilega 101 ný vestfirsk þjóð-
saga eftir Gísla Hjartarson. Átt-
unda bókin er nú komin út. „101
ný vestfirsk þjóðsaga selst alltaf
vel,“ segir Jónas og bætir við að
þar sem hún sé á hóflegu verði,
1.900 krónur, sé hún oft látin
fljóta með í jólapakkana til brott-
fluttra.
Vetrarborg Arnaldar Ind-
riðasonar og Fíasól í hosilo eftir
Kristínu Helgu Gunnarsdóttir
eru svo í næstu sætum yfir mest
seldu bækurnar í Bókhlöðunni
Pennanum á Ísafirði.
Jónas bóksali hefur lesið tals-
vert á síðustu dögum og líst ágæt-
lega á það sem hann hefur lesið.
„Ég er núna að glugga í Leiðina
að heiman eftir Ara Trausta og
nýlega las ég Glapræði eftir Eirík
Bergmann Einarsson. Mér fannst
hún skemmtileg lesning, svo sem
ekkert bókmenntaverk en sem
afþreying fannst mér hún bara
skemmtileg og ég held að hún
endurspegli ákveðinn hluta þjóð-
félagsins,“ segir Jónas. Hann veit
sem er að Glapræði hefur fengið
heldur slælega dóma hjá sumum
gagnrýnendum en er ósamála
þeim. „Ég hafði gaman af að lesa
þessa bók.“
Jónas nefnir líka Bæjarins
verstu eftir Hrein Vilhjálmsson,
sem hefur marga fjöruna sopið
á lífsleiðinni. „Í bókinni eru ansi
krassandi lýsingar á því sam-
félagi sem sumir okkar samborg-
ara búa í,“ segir hann um Bæjar-
ins verstu.
Jónas og samstarfsfólk hans
reyna að lesa sem flestar bækur
til að geta miðlað upplýsingum til
viðskiptavina sinna en á þann veg
er þjónustan í Bókhlöðunni á Ísa-
firði, sem varð 85 ára í ágúst.
HARRY POTTER OG BLENDINGSPRINSINN
Mest selda bókin á Ísafirði.
BÓKHLAÐAN VIÐ SILFURTORG Jónas bóksali segir Glapræði Eiríks Bergmanns Einarssonar
skemmtilega bók. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Jólabókasalan hófst fyrir alvöru í Bókhlöðunni Pennanum á Ísafirði um helgina:
Harry Potter vinsælastur vestra
Söngkonurnar í kvennakór
Hornafjarðar fara ekki
hefðbundanr leiðir við
fjáröflunina í ár. Þær hentu
kórkjólunum til hliðar og
drifu sig í myndatöku djarf-
lega klædddar. Myndirnar
prýða dagatal kórsins, sem
væntanlega mun hanga uppi
víða í Skaftafellssýslu á
nýju ári.
„Þetta hafði verið að gerjast með
okkur í nokkurn tíma, samt meira
svona í djóki, en þegar Sigurður
Mar Halldórsson ljósmyndari tók
svona vel í þetta varð ekki aftur
snúið,“ segir Áslaug Íris Vals-
dóttir kórfélagi. Sala er nú hafin
á dagatalinu og hafa viðbrögðin
verið góð en hvað segja bæjar-
búar á Hornafirði um framtak-
ið? „Það hafa flestir tekið þessu
mjög vel, það er frekar á þann
veginn að menn bjuggust við því
að sjá meira hold því það var búið
að gefa ýmislegt í skyn,“ segir
Áslaug Íris. En hvernig telur hún
að eiginmenn kórkvenna taki því
þegar þeir fara að rekast á mynd-
ir af léttklæddum konum sínum
á veggjum hér og þar um bæinn?
„Ég held að þeir geti bara verið
stoltir af sínum eiginkonum svo
það verða engin vandræði með
það,“ svarar Áslaug Íris örugg
með sig líkt og söngdíva er hátt-
ur. Sigurður Mar er henni alveg
sammála. „Þær verða ekki litnar
öðrum augum hér á Hornafirði
eftir þetta framtak,“ segir hann.
„Þær eru glæsilegar á þessum
myndum en það vissu það allir
fyrir sem eitthvert skynbragð
bera á kvenlega fegurð að þetta
eru glæsilegar konur. Ég er bara
sérlega stoltur yfir því að þær
skyldu treysta mér í þetta verk-
efni,“ segir ljósmyndarinn.
En ekki er dagatalið einungis
fyrir fagurkera sem vilja vita
hvað tímanum líður því inn á það
verða merktir ýmsir atburðir
sem munu eiga sér stað í Skafta-
fellssýslu. „Þannig að þetta daga-
tal er bæði til gagns og gamans,“
segir Áslaug Íris og hlær.
En ekki hafa þær kórkonur
gleymt hinu eiginlega hlutverki
kórsins og munu þær því halda
jólatónleika í Nýheimum í kvöld.
Hvort þær verði í kórkjólunum
eða eitthvað léttklæddari lætur
Áslaug Íris ósvarað.
jse@frettabladid.is
KVENNAKÓR HORNAFJARÐAR Svona líta
þær út á dagatalinu og svo er það bara
spurning hvernig þær mæta til leiks á
jólatónleikunum í Nýheimum í kvöld.
Léttklæddar komnar á ról
„Það er allt gott að frétta héðan úr Hrunamannahreppi,“
segir Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri í Hrunamanna-
hreppi. „Það eru spennandi tímar fram undan hérna
hjá okkur og mikill uppgangur. Mjólkurframleiðendur
hér eru heldur betur að láta til sín taka. Það eru í það
minnsta tíu ný fjós í byggingu eða nýbyggð og þau
líkjast nú frekar íþróttahúsum en hefðbundnum fjósum
eins og við þekkjum þau frá því í gamla daga.“ Ísólfur
Gylfi segir að það séu ekki bara kúabændur sem séu
áberandi í sveitarfélaginu. „Hér er náttúrlega líka fjöldi
garðyrkjubænda sem framleiða mjög góða vöru. Á
Melum verður haldið upp á 25 ára afmæli garðyrkju-
stöðvarinnar næstu helgi. Þannig að þetta er allt mjög
framsóknarlegt og fínt hérna hjá okkur,“ segir Ísólfur
Gylfi og hlær.
Auk þess að sinna starfi sveitarstjóra er Ísólfur Gylfi
varaþingmaður fyrir Framsóknarflokkinn. En saknar
hann þess tíma þegar hann var þingmaður í fullu starfi?
„Já, þingið er auðvitað mjög lifandi og skemmtilegur
vinnustaður. Ég neita því samt ekki að stundum er
ég ósköp feginn að vera laus, sérstaklega þegar ég
minnist leiðinlegu tímanna.“
Það er greinilega nóg að gera hjá Ísólfi Gylfa í vinn-
unni. En er hann farinn að undirbúa jólin nú þegar
rétt tæpar þrjár vikur eru til jóla? „Það fer nú lítið fyrir
því ennþá. Ég er nú samt búinn að setja upp eina
og eina jólaseríu. Það sem gerir jólaundirbúninginn
svolítið erfiðan er að ég á þrjú heimili; á Hvolsvelli,
Flúðum og í Reykjavík. Sem betur fer á ég afskaplega
duglega og góða konu sem hjálpar mér við þetta.“
Aðspurður hvort hann hafi einhvern tíma til að sinna
áhugamálum segir Ísólfur Gylfi svo vera. „Ég hef mjög
gaman af tónlist og hef sem betur fer svolítinn tíma
til að sinna því áhugamáli mínu. Ég syng með Karla-
kór Hreppamanna og í fyrsta sinn frá stofnun kórsins
héldum við opinbera tónleika í Skálholtsdómkirkju
fyrsta sunnudaginn í aðventu og um síðustu helgi
sungum við á aðventuhátíð á Flúðum.“
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? ÍSÓLFUR GYLFI PÁLMASON SVEITARSTJÓRI
Framsóknarlegt og fínt í hreppnum