Fréttablaðið - 07.12.2005, Blaðsíða 45

Fréttablaðið - 07.12.2005, Blaðsíða 45
viðskiptadag eftir að tilkynnt var um stýri- vaxtahækkunina. Er það vísbending um minni tiltrú á stefnufestu Seðlabankans. Hægt var að sjá þær vísbendingar á mark- aðnum þegar líða tók á síðustu viku og lang- tímavextir lækkuðu. MARKMIÐIÐ NÁIST 2008 Að óbreyttum stýrivöxtum og gengi er gert ráð fyrir í verðbólguspá Seðlabankans að markmið hans um 2,5 prósenta verðbólgu ná- ist ekki fyrr en á árinu 2008. Greiningardeild KB banka segir að vaxtahækkunin nú sýni að bankinn miði frekar við að verðbólgan verði nálægt efri mörkum markmiðsins eða 4 pró- sentum. Er þá gefið í skyn að slakað hafi ver- ið á kröfu bankans um að ná verðbólgunni niður í 2,5 prósent á næstu tveimur árum. Greiningardeild Íslandsbanka segir þessa stýrivaxtahækkun Seðlabankans litla sé horft á verðbólguspá bankans sjálfs. Spáin bendi til að verðbólgan verði langt yfir markmiði bankans sé litið eitt til tvö ár fram í tímann og þeirrar óvissu sem í spánni er vegna stöðu krónunnar. Telja margir að gengi krónunnar muni lækka á næsta ári sem muni auka verð- bólguna. Davíð sagði þó mikilvægt að aðlög- un gengisins yrði yfir einhvern tíma. Spá Seðlabankans gerir ráð fyrir óbreyttu gengi og stýrivöxtum. Er hans spá um verðbólgu langt undir því sem greiningardeildir bank- anna spá fyrir um. Að meðaltali munar það um heilt prósentustig. Davíð Oddsson sagði á fundi Viðskiptaráðs Íslands um efnahagsvandann á mánudaginn að einhverjir hefðu kannski búist við meiri vaxtahækkun nú en raunin varð. Þeir kynnu að hafa lesið það út úr skrifum bankans í tengslum við ákvörðun vaxta. „Engar slíkar ákvarðanir voru skráðar í þau skrif, en á hinn bóginn voru þar skýrar heitstrengingar af bankans hálfu að hann tæki lögskipað hlut- verk sitt mjög alvarlega og myndi ekki hika við að beita sér að fullum þunga til að fylgja því eftir. Þær yfirlýsingar standa óhaggaðar.“ ÓHEPPILEG UMMÆLI Það er mikilvægt fyrir Davíð að þagga niður í þeim röddum sem vildu túlka þessa stýri- vaxtahækkun sem stefnubreytingu. Voru þar forystumenn ríkisstjórnarflokkanna fremstir í flokki í fjölmiðlum. Þetta var óheppilegt því trúverðugleiki Seðlabankans er hluti af stjórntækjum hans. Fólk verður að trúa því að hann ætli sér að ná niður verðbólgu eins og Birgir Ísleifur hamraði á í september. Aðeins þannig nær bankinn að slá á verðbólguvænt- ingar og hafa áhrif á langtímavextina. Það er mikilvægt til að ná eftirspurninni í jafnvægi og halda verðlagi í skefjum. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra hef- ur meðal annars sagt opinberlega að hann sjái ekki þörf á frekari vaxtahækkunum. Gagnrýndi hann meðal annars Seðlabankann fyrir hækkunina í september. Í orðum hans felst að Seðlabankinn eigi að láta baráttuna við verðbólguna vera og leyfa henni að grass- era þangað til niðursveiflu í efnahagslífinu fer að gæta. Davíð varaði eindregið við því „verðbólg- unni yrði hleypt í gegn“ eins og hægt er að kalla leiðina sem Halldór talar fyrir. Gerði hann það bæði þegar vaxtahækkunin var kynnt á föstudaginn og á fundi Viðskiptaráðs á mánudaginn. Þar sagði hann: „Þetta er óraunhæfur kostur. Slík stefnubreyting Seðlabankans myndi umsvifalaust skila sér í hærri verðbólguvæntingum, ýta undir enn meiri launahækkanir og leiða til gengislækk- unnar og aukinnar verðbólgu. Á endanum þyrfti enn meiri hækkun stýrivaxta til þess að kveða verðbólguna niður.“ KOKTEILBER Á KÖKUNA Stýrivextir á Íslandi eru háir í alþjóðlegum samanburði og sagði Davíð að þeir gætu hvergi speglað sig. Myndin á Íslandi væri einstök og flestum þætti jafnvel metnaðarfull markmið að halda verðbólgunni sem næst jafnvægi. „Í fyrsta lagi stendur nú yfir stærsta einstaka framkvæmdaskeið í sögu þjóðarinnar,“ sagði hann og margir væru í framkvæmdahug. „Í öðru lagi upplifum við á sama tíma mestu útrás íslenska bankakerfisins með langmestu skuldasöfnun þess erlendis og tilheyr- andi innstreymi fjár. Í þriðja lagi er í sömu svif- um stofnað til umbylt- ingar á lánsfjármarkaði þjóðarinnar, þar sem öll- um sem geta hreyft sig er boðið upp í dans. Í fjórða lagi eru skattar lækkaðir eða slík lækkun boðuð á næstu mánuðum. Og svo eins og kokteilber á kökuna er launþegum bætt verðbólgan sem stafar af því að fasteign- ir þeirra flestra hafa hækkað í verði án þess að þeir beri af því kostn- að,“ sagði hann. Þórður Pálsson, for- stöðumaður greiningar- deildar KB banka, sagði í pallborðsumræðum á fundi Viðskiptaráðs á mánudaginn að Seðla- bankinn yrði að vera til- búinn til að gefa aftur í í stjórn peningamála í janúar skilaði þessi vaxtahækkun sér ekki. Ingólfur Bend- er, hjá Íslandsbanka, gagnrýndi mest litla hækkun stýrivaxta. Sagði að minni trú á verðbólgumarkmiðum Seðlabankans myndi birtast í væntingum á markaði. Í síðustu Pen- ingamálum hefði verið talað um að hækka þyrfti vexti mera en í síðustu uppsveiflu. Núverandi hækkun muni líklega ekki leiða til þess. Edda Rós Karlsdótt- ir, forstöðumaður hjá greiningardeild Lands- bankans, segir enga auð- velda kosti í stöðunni og tók undir með Þórði sem sagði það skaðlegt til lengri tíma að „hleypa verðbólgunni í gegn“. Hún lagði hins vegar mestu áhersluna á að stefna Seðlabankans væri nokkurn veginn í takt við væntingar og fæli ekki í sér neina stefnubreytingu. EKKI LÍTIL HÆKKUN Davíð sagði hræringar á markaðnum jákvæða fyrir almenning en það reyndi á peningamála- stefnuna þegar allir hlut- ir dembdust yfir í einu. Seðlabankinn væri að reyna að búa í haginn svo aðlögun gengis krónunnar og við- skipta við útlönd yrði þolanleg. Seðlabankastjóri bað menn að gá að því að 0,75 prósenta hækkun stýrivaxta væri undan- tekning en ekki regla. Menn skyldu líka gá að því að 0,25 prósentu hækkun eftir 0,25 prósentu hækkun væri ekki mikil. Hins vegar væri 0,25 prósenta í beinu framhaldi á 0,75 prósentu hækkun ekki lítil. „Menn verða að skoða þetta allt saman í samhengi,“ sagði Davíð Oddsson. MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2005 11 Ú T T E K T uð sem stefnubreyting. Megin- n að heitstrengingar af bank- dsson segir fleiri telja að fjölg- tt og takturinn hraðari. Fr ét ta bl að ið /S te fá n an takt „Og svo eins og kokteilber á kökuna er launþegum bætt verðbólgan sem stafar af því að fasteignir þeirra flestra hafa hækkað í verði án þess að þeir beri af því kostnað,“ sagði Davíð Oddsson. Fleiri hækka vextina Seðlabanki Kanada hækkaði vexti sína um 0,25 prósentur 18. október síðastliðinn. Seðla- banki Bandaríkjanna hélt einnig áfram taktföstum vaxtahækkunum og hækkaði stýrivexti sína í 4% 1. nóvember. Seðlabanki Noregs hækkaði vexti degi síðar um 0,25 prósentur. 1. desember hækkaði seðlabankinn í Danmörku vexti sína um 0,25 prósentur sem og seðla- banki Evrópu. Hafa vextir á evrusvæðinu verið óbreyttir, eða 2 prósent, síðan um mitt ár 2003. Vaxtamunur á milli Íslands og annarra landa hefur þó vaxið vegna hækkunar stýrivaxta Seðlabanka Íslands. Vaxtamunur, mældur í mun vaxta á þriggja mánaða lánasamningum á millibankamarkaði, jókst úr 6,44 prósentum í byrjun september í 7,01 prósent um miðjan nóvember að því er fram kemur í Peningamálum, riti Seðlabankans. Þróun efnahagsmála Þættir sem hafa áhrif á hvernig framvindan í efna- hagslífinu verður. Jón Sigurðsson, einn þriggja seðlabanka- stjóra, útskýrði fyrir fundarmönnum hjá Sambandi íslenskra samvinnufélaga á föstudaginn, sama dag og stýrivaxtahækk- unin var tilkynnt, hvert hlutverk Seðla- bankans væri. Meginhlutverkið væri að tryggja stöðugt verðlag og sem jafnasta þróun þess. Fór hann yfir nokkra þætti efnahagsmálanna sem þar hefðu áhrif. Í fyrsta lagi er vísitala neysluverðs, sem mælistika á verðlagsþróun, grundvöllur allra umræðna um efna- hagsmál, stöðu, þróun og horfur. Í öðru lagi skiptir gengisvísitalan meginmáli, en hún sýnir sameigin- legt vegið gildi erlendra gjaldmiðla andspænis íslenskri krónu. Í þriðja lagi er atvinnuástandið í landinu, en það hefur áhrif á fram- vindu launamála og almennrar neyslu og á framvindu verðbólgunnar. Af atvinnuástandinu má einnig draga ályktanir um hvað framund- an er í efnahagsmálum. Í fjórða lagi veldur útlánaþróun fjár- málastofnana miklu um framvindu efnahagsmála. Aukning eða sam- dráttur útlána er mikilvæg vísbend- ing um hagþróunina framundan. Í fimmta lagi er að nefna þróun eignaverðs og umsvif á þeim vett- vangi. Þetta er alkunn vísbending um komandi verðbólgu framundan. Þessi þáttur skýrir mestan hluta verðbólgunnar á þessu ári. Í sjötta lagi eru umsvif ríkissjóðs og hlut- föll milli tekna og útgjalda hans, helstu ríkisstofnana og stærstu sveit- arfélaga. Hér er ekki aðeins um ríkis- sjóð að ræða, heldur einnig t.d. Landsvirkjun og Íbúðalánasjóð, og öll stærstu sveitarfélögin. Í sjöunda lagi er viðskiptahallinn, en hér hefur lengi verið viðskipta- halli og aldrei meiri en um þessar mundir. Um það bil helmingur við- skiptahallans tengist stórfram- kvæmdum, en hitt tengist beint auk- inni einkaneyslu. Í áttunda lagi eru flestar breytur í efna- hagsmálum samanburður og hlutföll. Með- al annars berum við okkur saman við aðstæður erlendis. Vaxtastig hér- lendis borið saman við vexti í við- skiptalöndum gefur mikilvægar upp- lýsingar, og gengi íslenskrar krónu byggist meðal annars á gengisþróun við- miðunargjaldmiðlanna. 10_11_Markadur lesið 6.12.2005 14:05 Page 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.