Fréttablaðið - 07.12.2005, Blaðsíða 33
MIÐVIKUDAGUR 7. desember 2005
Úrval af myndlistarvörum í pakkann
www.litirogfondur.is
Pantið
jólamyndirnar
tímanlega
MYND Hafnarfirði sími 565 4207
Ljósmyndastofa Kópavogs
sími 554 3020
w w w. l j o s m y n d . i s
Laugaveg 53, s. 552 3737 • Opið til 18 laugard. og sunnud. kl. 13 -18
Ný
sending
Jólaföt
Jólagjafir
Sængur-
gjafir
1 2 . 9 5 0
1 8 . 9 5 0
4 5 . 9 5 0
flott gleraugu
s j ó n m æ l i n g a r
N r . 2 - 1 x 1 0
Sigvaldi Kaldalóns, eða
Svali á FM, hugar að ýmsu í
jólamánuðinum. Hann segist
meðal annars labba mikið um
miðbæinn til þess að koma sér
í jólastemningu.
Svali segist reyndar ekki hafa
neinar sérstakar hefðir í kringum
jólin en reyna þó eftir fremsta
megni að undirbúa þau vel. ,,Ég er
búinn að kaupa jólagjafirnar fyrir
yngstu meðlimi fjölskyldunnar. Ég
reyni alltaf að vera búinn að kaupa
allt áður en langt er liðið á desem-
ber en enda alltaf með því að klára
þetta á síðustu dögunum, alveg
sama hversu háleit markmið ég set
mér.“ Jólaskrautið er hins vegar
komið upp að sögn Svala, það var
hengt upp þann fyrsta.
,,Ég ætla líka alltaf að skrifa
jólakort og geri það jafnvel mjög
oft en ég sendi þau bara aldrei,“
segir Svali og því geta þeir sem
vilja sótt jólakortin heim til hans.
Svali prófaði að baka fyrir þessi
jól en segir að það hafi gengið
hörmulega. ,,Þessi jól verðar bara
keyptar smákökur eins og venju-
lega, lengi lifi bakarameistarinn!“
Til þess að koma sér í jóla-
stemningu segist Svali rölta mikið
um miðborgina og fá sér kannski
kaffi og með því með vinum og
kunningjum. ,,Með því að skoða
jólaljósin og skreytingarnar kemst
maður oft í góðan jólafíling. Ég fer
líka stundum og kíki í kirkjur. Mér
finnst reyndar ekkert sérstakt í
messum en ef ég er í miklu jóla-
stuði kíki ég oft inn í kirkjur, þá
bara til þess að skoða þær.“
Í jólafríinu nýtir Svali gjarnan
tímann til þess að fara í jeppaferð-
ir enda annálaður bíladellukall.
Segist hann jafnvel hafa haldið
heilu jólin í jeppanum. ,,Það er
mjög gaman að vera í góðra vina
hópi í jólafríinu, jafnvel einhvers
staðar uppi á jöklum, til dæmis hjá
Grímsvötnum, enda geri ég pott-
þétt eitthvað slíkt núna í ár,“ segir
Svali að lokum og er greinilega að
komast í jólaskap. ■
Skoðar oft inn í kirkjur
Svali í jeppanum sínum þar sem hann segir að ríki oft mikil jólastemning. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
1 dálkur 9.9.2005 15:19 Page 6