Fréttablaðið - 07.12.2005, Page 16
7. desember 2005 MIÐVIKUDAGUR16
NOREGUR Samísk börn eru sögð
harðari af sér en önnur norsk
börn. Niðurstöður doktorsrann-
sóknar benda til að þau þoli líkam-
legan sársauka mun betur en jafn-
aldrar þeirra í Noregi. Þetta kom
fram á fréttavef norska blaðsins
Dagbladet.
Samísku börnin voru alin upp
í fjölskyldum þar sem haldið var
fast í hefðir Sama og því nefnd
eftir fullorðnum ættingjum eða
vinum. Þetta fólk er virkt í uppeldi
barnanna ásamt foreldrunum.
„Niðurstöðurnar sýna að í
fjölskyldum þar sem foreldrarn-
ir eru harðir við börn sín veita
þessir fjölskylduvinir þeim mýkt
og ástúð. Þeir veita líka foreldrun-
um aðhald í foreldrahlutverkinu,“
segir vísindamaðurinn sem gerði
rannsóknina.
Samísk börn una sér vel ein án
þess að finnast þau einmana en í
norskum leikskólum er börnum
kennt að vera með öðrum. „Ein-
manaleikinn er svo nokkuð sem
mörg þeirra takast á við allt sitt
líf,“ segir höfundur rannsóknar-
innar. - ghs
SAMI MEÐ HREINDÝR Samísku börnin hafa
marga fullorðna í kringum sig sem allir láta
að sér kveða í uppeldinu í samræmi við
hefðir Samanna.
Vísindarannsókn á uppeldi samískra og norskra barna:
Samísku börnin sögð harðari
SVÍÞJÓÐ Svíar eru líklega fyrsta
Evrópuþjóðin til að setja upp
bókasöfn í sjálfsölum.
Borgarbókasafnið í Stokkhólmi
ætlar að koma sér upp slíkum
sjálfsölum á nokkrum stöðum þar
sem umferð er mikil. Þetta kom
fram á vefútgáfu Svenska dag-
bladet í gær.
Hugmyndin kemur frá bóka-
safninu í Lidingö, þar sem ein-
faldir bókasafnssjálfsalar hafa
verið settir upp í vegg, svipað og
hraðbankar. Titlarnir eru um 750
og um 500 bækur hafa verið tekn-
ar að láni að meðaltali í hverjum
mánuði. - ghs
Svíar brydda upp á nýjung:
750 bókatitlar
í bókasjálfsala
NOREGUR Norsk stjórnvöld vissu af
áformum Ísraela um að koma sér
upp kjarnavopnum áður en sam-
komulag náðist milli þjóðanna um
sölu á þungu vatni til Ísraels árið
1959. Þungt vatn er notað til að
framleiða kjarnavopn.
Dagblaðið Dagens Nyheter
fjallaði á dögunum um málið og
í frétt blaðsins er meðal annars
vísað í hálfrar aldar gömul leyni-
skjöl sem sýna að norsk stjórnvöld
fengu upplýsingar um það til hvers
átti að nota þunga vatnið áður en
sala á tuttugu tonnum fór fram.
Árið 1959 gátu aðeins Banda-
ríkjamenn og Norðmenn selt
þungt vatn í miklu magni. Banda-
ríkjamenn vildu á þessum tíma
ekki selja Ísraelsmönnum vatnið
og Norðmenn hafa þrætt fyrir að
hafa gert það.
- ghs
Uppljóstrun í Noregi:
Seldu Ísraelum
þungt vatn
FRAMLEIÐSLU HRAÐAÐ Flugvélar af Airbus-
tegund eru framleiddar í fjórum löndum.
Þjóðverjar framleiða skrokk vélanna, Bretar
leggja til vængi, Spánverjar smíða innviði
og hlutarnir eru svo fluttir til Toulouse í
Frakklandi þar sem vélarnar eru settar
saman. NORDICPHOTOS/AFP
STJÓRNMÁL Kolbrún Halldórsdótt-
ir, þingmaður Vinstri grænna,
og aðrir þingmenn stjórnarand-
stöðunnar gagnrýndu Þorgerði
Katrínu Gunnarsdóttur mennta-
málaráðherra harðlega í upphafi
þingfundar í gær fyrir að kynna
frumvarp um Ríkissútvarpið í
fjölmiðlum í fyrradag áður en það
var kynnt á Alþingi. Frumvarpinu
var dreift í þinginu seint í gær.
Ögmundur Jónasson, Vinstri
grænum, talaði um kynningarátak
menntamálaráðherra og útvarps-
stjóra þar sem þau hefðu látið í
sjónvarpsþætti sem málið væri
fullfrágengið. „Ég á enn eftir að
sannfærast um að svo sé. Ég á enn
eftir að trúa því að Framsóknar-
flokkurinn geti hlaupið þetta langt
frá gefnum loforðum og fyrir-
heitum. Framsóknarflokkurinn
hefur lofað því, kjósendum sínum,
flokksmönnum sínum og Alþingi
Íslendinga að Ríkisútvarpið yrði
ekki hlutafélagavætt. Eru engin
takmörk fyrir því hve mikið þessi
stjórnmálaflokkur getur lyppast
niður?“ spurði Ögmundur.
Sigurður Kári Kristjánsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins,
kvað ekkert við það að athuga að
kynna lagafrumvarp í fjölmiðlum
með áðurgreindum hætti og benti
á að stjórnarandstöðuflokkarnir
kynntu oft þingmál sín með svip-
uðum hætti, jafnvel áður en þing-
störf hæfust.
Kolbrún Halldórsdóttir sagði
að framkoma menntamálaráð-
herra væri vanvirðing við störf
þingsins og spurði hvort úti væri
um allt samráð og samstarf um
málefni fjölmiðla eins og Þorgerð-
ur hefði beðið um í umræðunni um
eignarhald á fjölmiðlum.
Magnús Þór Hafsteinsson,
Frjálslynda flokknum, sagði gagn-
rýnivert að það skyldi hafa tekið
hálft ár að koma frumvarpinu
aftur inn í þingið. „Hvað hefur
menntamálaráðuneytið verið að
gera allan þennan tíma?“ spurði
Magnús.
Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir menntamálaráðherra sagði
stjórnarandstöðuna óttalega við-
kvæma enda setti hún eigin mál
fram með svipuðum hætti. „Málið
er í eðlilegum farvegi. Það var
fyrst kynnt í ríkisstjórn, síðan
þingmönnum stjórnarflokkanna,
sem hafa samþykkt það, þannig að
málið hefur ekki verið á neinum
þvælingi úti í bæ þegar háttvirtur
þingmaður Sigurður Kári Kristj-
ánsson tjáði sig um það í morg-
un.“ johannh@frettabladid.is
Segir hlutafélag um RÚV
vera svik Framsóknarflokks
Ögmundur Jónasson, Vinstri grænum, segir Framsóknarflokkinn hlaupinn frá loforðum um að breyta ekki
Ríkisútvarpinu í hlutafélag. Deilt var á menntamálaráðherra á þingi fyrir að kynna frumvarp um RÚV
fyrst í fjölmiðlum. Þorgerður Katrín segir málið í eðlilegum farvegi og mál séu oft kynnt á slíkan hátt.
ÞORGERÐUR KATRÍN
GUNNARSDÓTTIR
Ráðherra segir málið
fyrst hafa verið kynnt
í ríkisstjórn, síðan
þingmönnum stjórnar-
flokkanna.
KOLBRÚN HALLDÓRS-
DÓTTIR Kolbrún spurði
hvort menntamála-
ráðherra væri afhuga
umbeðnu samráði og
samstarfi um málefni
fjölmiðla.
ÖGMUNDUR JÓNAS-
SON „Ég á enn eftir að
trúa því að Fram-
sóknarflokkurinn geti
hlaupið þetta langt frá
gefnum loforðum og
fyrirheitum.“
Í LJÓSABORG Kennarar og nemendur létu ljós sitt skína þegar Ljósaborg var tekin formlega
í notkun.
SVEITARSTJÓRNARMÁL Mikið var um
dýrðir á Borg í Grímsnesi á föstu-
dag en þá var tekinn formlega í
notkun grunnskólinn Ljósaborg
og skrifstofur sveitarfélagsins.
Innan við ár er frá því að fyrsta
skóflustungan var tekin.
Sigurður Sigurðsson, vígslu-
biskup í Skálholti, blessaði bygg-
inguna og Kammerkór Bisk-
upstungna söng nokkur lög en
grunnskólabörnin sáu um að
tendra ljósin áður en gengið var í
kringum jólatré.
Alls stunda 34 börn nám í
Ljósaborg. Margrét Sigurðardótt-
ir sveitarstjóri var hin kátasta og
segir hún að mikillar uppbygging-
ar sé að vænta í hreppnum.
- jse
Grímsnes- og Grafningshreppur:
Skólinn blessaður