Fréttablaðið - 07.12.2005, Page 34
[ ]
frá19.300
Vika í Þýskalandi
Ford KA eða sambærilegur
kr. - ótakmarkaður akstur,
kaskó, þjófavörn, flugvallargjald
og skattar.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
ER
3
00
09
10
/2
00
5
Sími: 50 50 600
www.hertz.is
Bókaðu bílinn heima
- og fáðu 500 Vildarpunkta
geta tekið mikið pláss í ferðatöskunum hjá þeim sem fara til annarra landa til að vera
með fjölskyldunni yfir jólin. Þeir sem ekki nenna að ferðast með margar töskur geta valið
um það að minnka við sig annan farangur eða senda gjafirnar bara út á undan sér.
Jólagjafir
Nær tvö þúsund Íslendingar
verða á Kanaríeyjum á vegum
Sumarferða um jól og áramót.
Nýr áfangastaður, Tenerife,
hefur mælst mjög vel fyrir.
Boðið er upp á lúxusferð
þangað í viku 15. desember.
„Tenerife er besti fjölskyldustaður
sem við höfum verið með,“ segir Helgi
Jóhannsson, framkvæmdastjóri
Sumarferða. „Við byrjuðum að
fljúga þangað síðastliðinn vetur
og staðurinn hefur mælst afar vel
fyrir.“ Sumarferðir bjóða upp á
spennandi nýjung á aðventunni.
15. desember verður haldið í viku
lúxusferð til Tenerife og komið heim
23. desember, mátulega fyrir jólin.
Tenerife er ein af Kanarí-
eyjum en hún hefur ekki staðið
Íslendingum til boða í áratugi.
„Það eru mjög góð hótel á Tene-
rife,“ segir Helgi. „Veðrið er líka
mjög milt og gott allan ársins
hring þar.“ Helgi segir hótelin á
Tenerife vera mörg í betri gæða-
flokki en á Gran Canaria, þeirri
eyju í Kanaríeyjaklasanum sem
flestir Íslendingar þekkja. Sum-
arferðir bjóða einnig upp á ferðir
þangað í vetur. Alls eru um 1.700
manns á vegum Sumarferða á
Kanaríeyjum yfir jólin og ára-
mót og því óhætt að segja að
Kanaríeyjar heilli landann um
hátíðarnar.
Nánari upplýsingar um ferðir
Sumarferða er að finna á vefnum
www.sumarferdir.is. ■
Lúxusferð á aðventunni
Strandlífið heillar Íslendinga að vetrarlagi.
Fimmtán íslensk fyrirtæki tóku
þátt í ferðasýningunni World
Travel Market sem haldin var í
London fyrir skömmu. Sýningin
var sú stærsta frá upphafi og
íslensk fyrirtæki vöktu mikla
athygli á vöru sinni.
Sýningin þótti takast mjög vel og
merktu íslenskir ferðaaðilar sem
tóku þátt í sýningunni aukinn áhuga
á ferðalögum til Íslands. 5.200 fyr-
irtæki tóku þátt í sýningunni og
um 45 þúsund gestir komu á sýn-
inguna, bæði sérhæfðir kaupendur
í ferðaþjónustu ásamt almenningi.
Í þá fjóra daga sem sýningin stóð
er áætlað að gerð hafi verið við-
skipti fyrir um 33 milljarða punda.
Ársæll Harðarson, forstöðumað-
ur markaðssviðs Ferðamálaráðs
Íslands, segir á heimasíðu Ferða-
málaráðs að ein af ástæðunum fyrir
velgengni Íslendinga á sýningunni
hafi verið að margir íslensku þátt-
takendanna eru beinir söluaðilar
í ferðaþjónustu, það er flugfélög,
hótel, bílaleigur og þess háttar.
Þetta eru aðilar sem kaupendur
koma fyrst og fremst til að hitta og
eiga viðskipti við, að sögn Ársæls.
Einnig hefur fyrirhugað flug Brit-
ish Airways hingað til lands, sem
hefst í vor, skapað mikinn áhuga á
Íslandi.
Íslendingar geta því verið
ánægðir með árangurinn og farið
að búa sig undir komu ferðamanna-
fjöldans.
Aukinn áhugi á
ferðum til Íslands
Flugfélag Íslands hefur
ákveðið að taka upp elds-
neytisgjald vegna mikilla
hækkana á flugvélaelds-
neyti.
Í tilkynningu frá Flugfélaginu
segir að félagið hafi í lengstu
lög reynt að forðast auka gjald-
töku til að vega á móti hækkun
á eldsneyti. Flest flugfélög hafa
tekið upp sambærilegt gjald
fyrir þó nokkru.
Á þessu ári hefur eldsneyt-
isverð hækkað um fjörutíu pró-
sent og hefur kostnaður Flugfé-
lags Íslands aukist sem nemur
um 100 milljónum króna sam-
hliða þessum hækkunum. Sé
litið til þróunar eldsneytisverðs
síðustu tvö árin hefur verðið
hækkað meira en 100 prósent.
Flugfélag Íslands hefur því
lagt 300 króna gjald á hvert
fargjald aðra leiðina. Breyting-
in tók gildi þann 28. nóvember
en gjaldið fellur ekki á þær
bókanir sem gerðar voru fyrir
þann tíma.
Flugfélag
Íslands
hækkar
fargjöld
Flugfélag Íslands leggur 300 króna
eldsneytisgjald á hvert fargjald aðra
leiðina vegna hækkana á eldsneyti.
Fyrirhugað áætlunarflug British Airways
til landsins hefur skapað aukinn áhuga
ferðamanna á komu til Íslands.
Ferðasýningin World Travel Market var
haldin í London í síðustu viku. Fimm-
tán íslenskir sýningaraðilar tóku þátt og
fengu þeir góð viðbrögð sýningargesta.
...um bíla
á laugardögum í Fréttablaðinu.
Hafið samband við auglýsingadeild „Allts“
Síminn er 550-5000
markvissar auglýsingar
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
PR
E
28
02
3
0
4/
20
05