Fréttablaðið - 07.12.2005, Side 35
Forstjóri KB banka
Rísandi
stjarna Nýr taktur Seðlabankans
Fjölgar vaxtaákvörðunardögum
Mikið tap á Yankees
Launakostnaður
íþyngjandi
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 7. desember 2005 – 36. tölublað – 1. árgangur Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
Sneiða hjá yfirtöku | Yfirtöku-
nefnd telur að Venus sé skylt að
gera yfirtökutilboð í Hampiðjuna.
Fjármálaeftirlitið mun líklega
skera úr um málið.
Hækka verðmat | Citigroup hef-
ur hækkað verðmat sitt á easyJet
úr 280 pensum á hlut í 400 pens.
Baugur Group og KB banki eru
meðal hluthafa í easyJet.
Fellur frá kauprétti | Halldór J.
Kristjánsson, bankastjóri Lands-
bankans, hefur fallið frá rétti sín-
um til að kaupa 2,9 milljónir hluta
í bankanum og fær laun sem nem-
ur mismuninum.
Kaupir söluaðila | Össur hf. hef-
ur keypt breska stuðningstækja-
fyrirtækið IMP fyrir um 1,2 millj-
arða íslenskra króna og hefur þeg-
ar tekið við rekstrinum.
Hækkar stýrivexti | Evrópski
seðlabankinn hefur hækkað stýri-
vexti um 0,25 stig. Standa þeir í
2,25 prósentum og hafa ekki verið
svo háir síðan í október 2000.
Novator kaupir | Novator, eign-
arhaldsfélag Björgólfs Thors
Björgólfssonar, hefur eignast all-
an hlut Viva Ventures í búlgarska
fjarskiptafélaginu BTC.
Bættur rekstur | Hagnaður
Icelandic Group eftir skatta á
þriðja ársfjórðungi var 289 millj-
ónir króna. Það er ívið betra en
spár greiningaraðila sögðu til um.
Standa við verðmat | KB banki
vísar á bug gagnrýni Atorku
Group um að vinnubrögð bankans
vegna greiningar á Jarðborunum
hafi verið ófagleg.
Stjórnendur hagnast | Átta
stjórnendur KB banka hafa geng-
ið frá kaupum á hlutabréfum í
bankanum fyrir 232 milljónir.
Markaðsvirði hlutanna er 262
milljónir.
JÓN KARL ÓLAFSSON, FORSTJÓRI
ICELANDAIR Fær nýjan kauprétt á geng-
inu 13,6 og nýtti sér eldri kauprétt á geng-
inu 5,97 sem hann seldi að hluta fyrir 55
milljónir króna.
Stjórnendur
í FL Group
fá kauprétt
Kaupréttur fimmtán starfs-
manna hækkar um 800
milljónir á tveimur árum.
FL Group hefur gert kaupréttar-
samninga við átta lykilsstarfs-
menn fyrir 203 milljónir króna að
nafnvirði. Koma hlutirnir til inn-
lausnar á næstu þremur árum.
Kaupgengið er 13,6 krónur á hlut
sem er sama gengi og fjárfestum
bauðst að kaupa á í nýafstöðnu
hlutafjárútboði. Hlutabréf í FL
Group hafa hækkað um fimmt-
ung frá útboði og því er ljóst að
ávinningur starfsmanna getur
orðið verulegur ef gengið helst
hátt.
Heildarupphæð samninganna
nema því 2.761 milljónum króna
en markaðsvirðið er nokkuð
hærra eða 3.329 milljónir króna.
Kaupréttur hvers stjórnanda
er mismunandi. Þannig fær Jón
Sigurðsson, framkvæmdastjóri
fjárfestingasviðs, að kaupa um
51 milljón hluta á genginu 13,6 en
Jón Karl Ólafsson, forstjóri
Icelandair, um 18 milljónir hluta.
Jafnframt hafa þrír fram-
kvæmdastjórar hjá FL Group,
Jón Karl, Magnús Kr. Ingason og
Halldór Vilhjálmsson, ásamt tólf
öðrum starfsmönnum, nýtt sér
kauprétt að 77 milljónum hluta á
genginu 5,97. Mismunur á kaup-
verði og núverandi markaðsvirði
er því um 800 milljónir króna og
hafa þessir þrír aðilar selt bréfin
að hluta. - eþa
Hafliði Helgason
skrifar
Hækkun skuldabréfa KB banka á eftirmarkaði í
Evórpu hafði ekki áhrif á útboð bankanna á skulda-
bréfum í Bandaríkjunum. Íslandsbanki og KB
banki gáfu út skuldabréf í Bandaríkjunum og voru
kjörin í samræmi við þau kjör sem bankarnir hafa
fengið í fyrri skuldabréfaútboðum. Útboð KB
banka er það stærsta sem íslenskur banki hefur
ráðist í hingað til eða fyrir hátt í hundrað milljarða
íslenskra króna. Desember er talinn erfiður mán-
uður á skuldabréfamörkuðum, þar sem margir
fjárfestar taka til í söfnum sínum fyrir áramót.
KB banki gaf út víkjandi skuldabréf sem færast
á eiginfjárþátt A í samræmi við reglur um fjár-
málastofnanir. Bréfin voru seld sterkum banda-
rískum fjárfestum og er ekki eftirmarkaður með
þau. Þau eru án tímamarka, en eru innkallanleg að
tíu árum liðnum. „Við fengum sambærileg kjör í
þessu útboði og við höfum fengið í útboðum á Evr-
ópumarkaði fyrr,“ segir Guðni Aðalsteinsson,
framkvæmdastjóri fjárstýringar KB banka. Hann
segir því að umræða og hækkun á skuldabréfum ís-
lensku bankanna á eftirmarkaði hafi ekki haft
áhrif á þetta útboð. „Við ætluðum að sækja 150
milljónir bandaríkjadala í þessu útboði, en enduð-
um í 165. Við erum mjög ánægðir með þessa niður-
stöðu sem sýnir að sú umræða sem verið hefur um
skuldabréf bankanna hefur ekki haft nein áhrif á
kjör okkar.“
Fyrir utan útgáfu sem telst til eiginfjárþáttar A
gaf bankinn út önnur skuldabréf fyrir 1,25 millj-
arða dala og nam útgáfa bankans öll því um 1,4
milljörðum bandaríkjadala eða hundrað milljörð-
um króna sem er stærsta útgáfa íslensks banka á
þessum markaði og stærsta útgáfa íslensks banka
hingað til. „Útgáfan er af svipaðri stærðargráðu og
hjá meðalstórum evrópskum bönkum og greinilegt
að Bandaríkjamarkaður meðhöndlar okkur eins og
hvern annan traustan evrópskan banka.“ Hann seg-
ir svo stóra útgáfu sýna mikinn stuðning fjárfesta.
Íslandsbanki gaf út bréf fyrir 200 milljónir dala
og eru kaupendur þeirra aðilar sem ekki hafa fjár-
fest áður í útboðum bankans. Ingvar Heiðar Ragn-
arsson, forstöðumaður fjárstýringa Íslandsbanka,
segir þessa tilteknu útgáfu tilkomna að frumkvæði
bandarískra fjárfesta sem höfðu áhuga á að kaupa
skuldabréf bankanum. „Kjörin sem við fengum eru
sambærileg við fyrri útgáfur á þessum markaði.“
Íslandsbanki var fyrstur íslensku bankanna til að
fara á Bandaríkjamarkað síðasta sumar og hefur
síðan gefið út skuldabréf fyrir á annan milljarð
bandaríkjadala.
F R É T T I R V I K U N N A R
2
10-11
6
Fjárfestar undir forystu Baugs og
Pálma Haraldssonar vinna sam-
kvæmt heimildum að yfirtökutil-
boði á Whitthard of Chelsea sem
er verslanakeðja með te, kaffi og
sælkeravörur. Fyrir á Baugur
ásamt Pálma sælkerakeðjuna
Julian Graves, en samkvæmt
þeim sem þekkja vel til smásölu-
markaðar passar rekstur Whitt-
hard og Julian Graves vel saman.
Gengi bréfa Whitthard tók
kipp á markaði í gær og sendi
stjórn félagsins tilkynningu um
að aðilar hefðu sýnt yfirtöku
áhuga. Pálmi Haraldsson er
stjórnarformaður Julian Graves.
Hann hvorki neitaði né játaði því
að hann ásamt Baugi væri aðili
að tilboði í Whitthard.
Gengi bréfa Witthard hækkaði
snarlega í gær og hafði hækkað í
93 pens á hlut þegar það fór hæst
í gærmorgun. Það gengi er sam-
kvæmt heimildum mun hærra en
það sem hugsanlegt yfirtökutil-
boð gæti hljóðað upp á. Líklegt er
að yfirtökutilboð muni verða á
gengi milli áttatíu og níutíu pens
á hlutinn.
Baugur hefur haft augastað á
Whitthard um tveggja ára skeið,
en gengi bréfa félagsins hefur
lækkað verulega síðastliðið ár.
Það stóð í um 190 pensum fyrir
ári síðan, en stóð í 75 pensum við
opnun markaða í gærmorgun.
Markaðsvirði félagsins er ríflega
tveir milljarðar króna. -hh
Íslenskum bönkum vel
tekið í Bandaríkjunum
KB banki og Íslandsbanki hafa sótt sér fé með skuldabréfa-
útgáfu á Bandaríkjamarkaði. Kjörin voru sambærileg við
fyrri kjör bankanna og hækkun á eftirmarkaði í Evrópu hafði
því ekki áhrif á bandarísku útboðin.
Stefna á yfirtöku Whitthard
Baugur og Pálmi Haraldsson hyggjast gera yfirtökutilboð í sælkeraverslana-
keðjuna Whitthard of Chelsea. Verðmætið er ríflega tveir milljarðar króna.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/S
te
fá
n
01_20_Markadur lesið 6.12.2005 15:06 Page 3