Fréttablaðið - 07.12.2005, Side 49

Fréttablaðið - 07.12.2005, Side 49
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2005 15 S K O Ð U N Stýrivaxtahækkun Seðlabanka Íslands var minni en markaðs- aðilar bjuggust við. Flestir bjuggust við 50 til 70 punkta hækkun. Niðurstaðan var 25 punktar eða sama hækkun og Seðlabanki Evrópu ákvað dag- inn á undan. Vaxtamunur milli Íslands og Evrusvæðisins jókst því ekki, en vaxtamunur milli Íslands og viðksiptalanda þrýst- ir upp gengi íslensku krónunn- ar. Greining Íslandsbanka fjall- aði um vaxtamuninn: „Munur á innlendum og er- lendum skammtímavöxtum hef- ur lítið sem ekkert breyst í kjöl- far hækkunar Seðlabanka á föstudag. Aukinn vaxtamunur ætti að öðru óbreyttu að styðja við gengi krónu og gefur því þróun hans vísbendingu um gengisþróun. Munur 3ja mán- aða vaxta á peningamarkaði hérlendis og í helstu viðskipta- löndum okkar náði hámarki eft- ir vaxtahækkun Seðlabanka í septemberlok, og var hann þá tæplega 7,2%. Síðan þá hefur munurinn minnkað nokkuð og er nú rétt um 7%. Skiptasamn- ingar vegna erlendrar útgáfu hafa myndað þrýsting niður á við á lengri enda peningamark- aðar undanfarið, og þannig unn- ið gegn miðlun stýrivaxtahækk- unar um vaxtarófið. Hugsanlegt er þó að vextir á þessum mark- aði hækki eitthvað næstu daga.“ „Evrópski seðlabankinn (ECB) hækkaði stýrivexti sína um 25 punkta síðastliðinn fimmtudag en það er fyrsta hækkun bankans frá árinu 2000. Fastlega er búist við að banda- ríski seðlabankinn hækki vexti sína um 25 punkta 13. desember og aftur í janúarlok. Í stórum dráttum má því segja að vaxta- hækkun Seðlabanka Íslands á föstudag hafi ekki aukið við væntan vaxtamun næstu tvo mánuði. Ekki er því að vænta frekari stuðnings við gengi krónu úr þeirri átt næsta kastið.“ Vaxtamunurinn breytist ekki í bráð Flugið bjargar líf- eyrissjóðunum Hvar sem hjól lyftast frá flug- braut, þá er líklegta að Íslending- ur sé einhverstaðar á hluthafa- skrá eigenda flugvélarinnar. Þessi bransi sem íhaldsamir fjár- festar forðast eins og heitan eld- inn er mikið áhugamál Íslend- inga. Við eigum sjálfir okkar skerf af íhaldsmönnum sem hafa spáð illa fyrir þessum flugáhuga. Menn voru tortryggnir á kaup FL Group í easyJet. Nýleg greining easyJet virðist hins vegar benda til þess að menn þar á bæ hafi vitað hvað þeir voru að gera. Straumur er að bæta við sig í Finnair. Sterling er komið í hús og Pálmi Haraldsson og Jóhann- es Kristinsson eru stærstu hlut- hafarnir í Flyme. Þar við bætist Avion Group sem er ekkert smá- ræðis félag. Flugrekstur er áhættusamur, en ávinningsvonin mikil ef vel tekst til. Fleyg eru orð Richards Branson, eiganda Virgin-flugfé- lagsins, að leiðin til að verða milljónamæringur sé að verða fyrst milljarðamæringur og kaupa síðan Flugfélag. Hitt sem gjarnan er nefnt er að á meðan skipakóngar verði níræðir (og þá gjarna kvæntir konum sem eru í það minnsta hálfri öld yngri en þeir), þá verði eigendur flugfélaga rúmlega sextugir (og væntanlega frá- skildir). Það er sannleikskorn í því, því eigendur flugfélaga verða sífellt að halda vöku sinni og bregðast við breyttum að- stæðum sem vissulega tekur á taugarnar. Sjálfur er ég til í að taka þátt í þessu ævintýri sem farþegi í hluthafahópnum og sleppa þar með við því að fylgj- ast með hverri hreyfingu á mark- aðnum. Annars heyrir maður gjarnan lífeyrissjóðina kvarta undan því að aukin örorka og hærri lífaldur sé að valda þeim vandræðum. Það er kannski lausn fyrir lífeyr- issjóðina að þjóðin sé að stórum hluta til að verða eigendur flug- félaga. Samkvæmt kenningunni um aldursmun á skipakóngum og flugkóngum verða þeir því færri sem ná eftirlaunaaldri. Sjálfur er ég vel eignadreifð- ur með mitt á hreinu, mæti í ræktina og held ró minni. Þannig hyggst ég lifa eins og skipakóng- ur í ríki mínu í að minnsta kosti hálfa öld í viðbót. Spákaupmaðurinn á horninu S P Á K A U P M A Ð U R I N N Þ J Ó Ð A R B Ú S K A P U R I N N Evrópski seðlabankinn (ECB) hækkaði stýrivexti sína um 25 punkta síðastliðinn fimmtudag en það er fyrsta hækkun bankans frá árinu 2000. Fastlega er búist við að bandaríski seðlabankinn hækki vexti sína um 25 punkta 13. desember og aftur í janúarlok. Í stórum dráttum má því segja að vaxtahækkun Seðlabanka Íslands á föstudag hafi ekki aukið við væntan vaxtamun næstu tvo mánuði. 14_15_Markaður lesið 6.12.2005 14:48 Page 3

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.