Fréttablaðið - 07.12.2005, Page 63
MIÐVIKUDAGUR 7. desember 2005
10% ÚTBORGUN: 176.500 kr.
Opel Meriva DVD
A‹EINS 23.999 kr. Á MÁNU‹I*
VER‹ FRÁ A‹EINS: 1.795.000 kr.
Opel Astra Caravan
A‹EINS 23.680 kr. Á MÁNU‹I*
VER‹ FRÁ A‹EINS: 1.760.000 kr.
DVD spilari fylgir!
JÓLIN NÁLGAST!
NÁÐU FORSKOTI Á NÝJUM OPEL.
10% ÚTBORGUN 179.500 kr.
Opel Astra Hatchback
A‹EINS 22.810 kr. Á MÁNU‹I*
VER‹ FRÁ A‹EINS: 1.695.000 kr.
10% ÚTBORGUN 169.500 kr.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
*Mi›a› vi› bílasamning Glitnis me› 10% útb. og eftirstö›var í 84 mánu›i.
Við erum í sérstöku hátíðarskapi og því býðst þér Opel á frábæru jólatilboði út allan
desember með einungis 10% útborgun! En það er ekki allt: Hverjum Opel fylgir
100.000 kr. gjöf frá Bræðrunum Ormsson handa þeim sem þér þykir vænt um.
Við hvetjum alla ökumenn til að aka varlega um hátíðarnar.
Opel. fi‡ski gæ›ingurinn.
Fjölmiðlar hafa tekið andköf
vegna útkomu Samfylkingarinn-
ar í Gallup könnun sem birt var
1. desember sl. Samkvæmt þeirri
könnun tapaði Samfylkingin 2%
stigum frá könnun Gallups einum
mánuði fyrr. Þessi breyting á fylgi
Samfylkingarinnar milli mánaða
er þó ekki meiri en oft á sér stað
á fylgi annarra stjórnmálaflokka
milli mánaða. Fylgi allra stjórn-
málaflokkanna hefur sveiflast
nokkuð á yfirstandandi ári.
Vinstri grænir voru t.d. með 19
prósent fyrir réttu ári. En í apríl
til júní voru þeir með 15 prósent.
Í september fóru þeir aftur upp í
19 prósent en féllu niður í 14 pró-
sent mánuði síðar. Nú hafa þeir
aftur náð sér upp.
En þetta eru talsverðar
sveiflur og hafa ekki vakið
mikið umtal hjá fjölmiðlum.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins
hefur einnig sveiflast mikið.
Fyrir 12 mánuðum var flokkur-
inn með 35 prósent en í kringum
landsfundinn hækkaði flokk-
urinn og komst í 44 prósent í
oktober. Strax mánuði síðar var
fylgið komið í 41 prósent. Menn
höfðu spáð því, að þegar Davíð
hætti mundi fylgið hrynja af
Sjálfstæðisflokknum. En það
hefur ekki orðið. Þvert á móti
jókst fylgið í kringum lands-
fundinn og við valdatöku Geirs
Haarde. Svo virðist sem fylgi
Sjálfstæðisflokksins sé nokkuð
traust án tillits til foringja. Og
mikið umtal eins og virðist vera
hringum landsfund og prófkjör
hefur meira að segja en hver er
foringi. Samfylkingin var með
30 prósent fyrir 12 mánuðum en
komst upp í 34 prósent ( í júní)
í kringum landsfund flokks-
ins, þegar Ingibjörg Sólrún var
kosin formaður. Í oktober var
fylgið komið í 29 prósent og
nú mældist það rúmlega 3 pró-
sentustigum lægra. Ég spái því,
að Samfylkingin muni fljótlega
ná sér á strik og komast í 30
prósent og rúmlega það. Sjálf-
stæðisflokkurinn mun einnig
fljótlega hjaðna á ný þegar
nýjabrumið er farið af eftir for-
mannsskiptin.
Athyglisvert er að VG hefur
treyst sig í sessi sem róttækur
flokkur. Svo virðist sem róttæk
stefna þeirra hafi hljómgrunn.
Gæti það verið Samfylkingunni
vísbending um það, að færa
stefnuna ekki um of inn að miðj-
unni.
Ingibjörg Sólrún hefur staðið
sig vel sem formaður Samfylk-
ingarinnar. Það er því ekki unnt
að kenna henni um tímabundna
niðursveiflu Samfylkingarinn-
ar eins og miklir hægri pennar
vilja gera. Ef Samfylkingin held-
ur sömu stefnu og áður og daðr-
ar ekki við Sjálfstæðisflokkinn
fær hún fljótlega sitt fyrra fylgi
og rúmlega það.
Höfundur er viðskiptafræðingur.
Samfylkingin mun ná sér á strik
Verkfalli kennara er lokið fyrir
nokkuð löngu. Sæmilegur frið-
ur kominn á aftur. Samt er rétt
að hugleiða hvort heimilt var að
reka skólabörn heim í verkfallinu
og loka oft skólunum fyrir þeim.
Hver var lagalegur réttur til þess
af hendi kennara? Var hann e.t.v.
ekki til eða alla vega mjög vafa-
samur?
Í sjónvarpi sagði kennari í
verkfallinu að líklega skaðaði
lokun skólanna heilsu einhverra
barna og bætti við: „en saltfiskur
skemmdist líka í verkföllum“ síð-
ustu aldar. Eru skólabörn þá lík
„saltfiski“ þegar verkfall er?
Þessu verður að svara neit-
andi enda skólabörn vernduð
með margvíslegri löggjöf, frá
sérlögum um barnavernd upp í
almenn hegningarlög. Slík lög ber
að virða gagnvart börnum með
öllum hætti, þótt verkfall sé. Það
réttlætir ekki hugsanleg lögbrot
gegn skólabörnum að kennarar
gera verkfall. Er úrelt hugsun.
Fólk virðir ekki áunninn rétt
skólabarna á síðustu árum til að
eiga annað heimili í skóla sínum
auk heimilis hjá foreldrum. Mörg
börn treysta orðið á það að geta
farið í skólann í upphafi dags
um leið og foreldrar þeirra fara
í vinnu. Ef skólanum er lokað og
á þessi börn eru þau nánast fyrir-
varalaust á ísköldum klaka yfir
daginn. Þau skortir allt öryggi
og skjól og bíða tjón á sál og lík-
ama. Verða í hlutverki „saltfisks“
í verkföllum síðustu aldar.
Þetta er slæmt mál. Rétta þarf
aftur hlut barna. Virða ber lög
sem vernda þau. Greinarhöfund-
ur telur að tryggja eigi betur með
nýjum lögum skýran rétt skóla-
barna til dvalar í góðu andlegu
skjóli í skólahúsinu þótt kennar-
ar geri verkfall. Skólahúsið væri
undir aga og stjórn þótt kennsla
félli niður. Börnum væru styttar
stundir án þess að gengið væri
í væri í verk kennara. Ekki má
aftur nota skólabörn sem „salt-
fisk“ í nýju kennaraverkfalli.
Höfundur er hæstaréttar-
lögmaður.
Börn eru ekki
saltfiskur
UMRÆÐAN
FYLGI SAMFYLK-
INGARINNAR
BJÖRGVIN GUÐMUNDSSON
Athyglisvert er að VG hefur treyst
sig í sessi sem róttækur flokkur.
Svo virðist sem róttæk stefna
þeirra hafi hljómgrunn. Gæti það
verið Samfylkingunni vísbending
um það, að færa stefnuna ekki
um of inn að miðjunni.
UMRÆÐAN
SKÓLAGANGA
LÚÐVÍK GIZURARSON
31
1 dálkur 9.9.2005 15:17 Page 2