Fréttablaðið - 07.12.2005, Qupperneq 70
7. desember 2005 MIÐVIKUDAGUR
Stóra svið
Salka Valka
Su 11/12 kl. 20 Mi 28/12 kl. 20
Woyzeck
Í kvöld kl. 20 UPPS Fö 9/12 kl. 20
Fi 29/12 kl. 21 Fö 30/12 kl. 21
Kalli á þakinu
Su 11/12 kl. 14 Má 26/12 kl. 14
Su 8/1 kl. 14
Brot af því besta!
Rithöfundar lesa úr nýjum bókum
fimmtudagskvöldið 8/12 kl. 20
Guðrún Eva Mínervudóttir, Hallgrímur Helgason,
Hreinn Vilhjálmsson, Ingibjörg Hjartardóttir, Ólafur
Gunnarsson, Þórarinn Eldjárn
Léttur jóladjass og kaffihúsastemning.
Allir velkomnir. Aðgangur ókeypis
Leikhópurinn Perlan
Frumsýnir Jólasveinana í leikgerð eftir sögu Ber-
gljótu Arnalds. Su 11/12 kl. 15. Miðaverð
1000 kr. Aðeins þessi eina sýning
Nýja svið/Litla svið
Lífsins tré
Su 11/12 kl. 20 Síðasta sýning!
Þrjár systur e. Tsjekhov
Nemendaleikhúsið, aðeins sýnt í desember
Fi 8/12 kl. 20 Lau10/12 kl. 20
Þr. 13/12 kl. 20 Fö 16/12 kl. 20
Lau 17/12 kl. 20 Su 18/12 kl. 20
Manntafl
Fö 9/12 kl. 20 Mi 28/12 kl. 20
Alveg brilljant skilnaður
Fi 29/12 kl. 20 AUKASÝNING
Fö 30/12 kl. 20 AUKAS. Síðustu sýningar
Carmen frumsýnt í janúar 2006
Forsala laugardaginn 10/12
Miðaverð í forsölu 2.600, almennt miðaverð
3.600. Milli 14 og 16 verða sýnd atriði úr
Carmen í forsal Borgarleikhússins. Kaffi og
piparkökur í boði. Allir velkomnir.
Kira Kira kemur fram á útgáfu-
tónleikum Smekkleysu sem verða
haldnir á Nasa í kvöld klukkan
21.00. Aðrir sem koma fram eru
Hairdoctor, Megasukk og Siggi
Ármann. Alfons X og Ben Frost
þeyta skífum á milli atriða.
Hópur tónlistarmanna leggur
Kiru Kiru, sem heitir réttu nafni
Kristín Björk Kristjánsdóttir, lið á
tónleikunum. Þar á meðal er Rúna
Esradóttir, kærasta Mugison, sem
spilar á píanó og klukkuspil, Þrá-
inn Óskarsson úr Hudson Wayne
sem syngur og spilar á gítar og
pumpuorgel og Sigtryggur Bald-
ursson sem mundar trommukjuð-
ana.
„Ég hóaði í nokkra góða vini
sem ætla að spila músíkina með
mér. Ég hef rekið mig á það á
þessum tilraunaeldhússferða-
lögum um heiminn að það hefur
verið langmesta stuðið þegar mér
hefur tekist að kippa einhverjum
með mér. Þegar maður er í heima-
bæ sínum liggur beint við að nota
það tækifæri og safna liði,“ segir
Kristín Björk.
Kristín, sem er einn af stofn-
endum Tilraunaeldhússins, gaf
nýverið út sína fyrstu stóru plötu
sem ber heitið Skotta. Um svipað
leyti var fartölvu hennar stolið
stútfullri af tónlist og óskaði
hún þess að fá verðmætin aftur í
Fréttablaðinu skömmu síðar. Tón-
listin skilaði sér en ekki tókst að
endurheimta tölvuna. „Það voru
góðir menn sem sóttu hana ofan
í undirdjúpin handa mér,“ segir
Kristín. „Ég var alveg tilbúin að
bretta upp ermarnar. Ég safnaði
bara liði og var komin upp í níu
manna hljómsveit áður en ég vissi
af. Ég ætlaði ekkert að láta þenn-
an draum kafna. Ég var í mörg ár
að vinna í plötunni og hlakkaði til
að halda útgáfuhúllumhæ. Ég ætl-
aði ekki að láta skjóta mig í kaf.
En það er óneitanlega stórkostlegt
að þetta sé komið til mín aftur,“
segir hún.
Að sögn Kristínar eru tónleik-
ar hennar misjafnir í hvert skipti
sem hún kemur fram. „Mér finnst
skemmtilegt að búa alltaf til nýja
og nýja pælingu fyrir hverja tón-
leika. Þó að við séum níu á útgáfu-
tónleikunum verðum við kannski
bara ég og Rúna á næstu tónleik-
um. Við höfum svolítið verið að
hittast heima í stofu og bauka
eitthvað,“ segir Kristín. Munu
þær meðal annars koma fram 17.
desember í Jólaseríu Tilraunaeld-
hússins sem hófst fyrir viku. Þar
verður kántrístemningin í fyrir-
rúmi.
Miðaverð á útgáfutónleikana í
kvöld er 500 krónur.
freyr@frettabladid.is
Tónlistin endurheimt fyrir
útgáfutónleika
KIRA KIRA
Landsbankinn er stoltur
bakhjarl sýningarinnar.
MIÐASALA: www.midi.is og í Iðnó s. 562 9700
ÉG ER MÍN EIGIN KONA
GJAFAKORT - TILVALIN JÓLAGJÖF
laus sæti
örfá sæti laus
uppselt
uppselt
laus sæti
07.12
08.12
09.12
10.12
11.12
mið.
fim.
fös.
lau.
sun.
JPV Útgáfa hefur gengið frá sölu
á útgáfurétti sakamálasögunnar
Tíma nornarinnar, eftir Árna Þór-
arinsson, til Danmerkur, Noregs,
Svíþjóðar og Finnlands. Jóhann
Páll Valdimarsson, útgefandi bók-
arinnar, segir útgefendur víða um
heim hafa haft bókina til skoðunar
undanfarið en þegar það fréttist
að hún hefði hlotið tilnefningu til
Íslensku bókmenntaverðlaunanna
brugðust norrænir útgefendur
skjótt við. Fleiri samningar við
útlenda útgefendur eru á viðræðu-
stigi þannig að allt útlit er fyrir að
Tími nornarinnar muni koma út í
fleiri löndum áður en yfir lýkur.
Það mun hafa vakið athygli þeirra
útgefenda sem hafa gefið Tíma
nornarinnar gaum að einungis
tvær íslenskar glæpasögur hafi
fengið tilnefningu til bókmennta-
verðlaunanna, en Kleifarvatn
eftir Arnald Indriðason var til-
nefnd í fyrra.
Íslenskir gagnrýnendur hafa
tekið Tíma nornarinnar vel og
fyrsta prentun hennar er uppseld
og önnur nýkomin. Tími norn-
arinnar er fjórða bók Árna um
blaðamanninn Einar sem er lagið
að róta sér í vandræði og leysa
flókin sakamál. Að þessu sinni
er Einar fluttur til Akureyrar og
sinnir fréttaskrifum frá Norður-
og Austurlandi og fyrr en varir
er hann kominn á kaf í rannsókn
tveggja morðmála og útistöður við
handrukkara og eiturlyfjasala.
Nornatími á Norðurlöndum
ÁRNI ÞÓRARINSSON RITHÖFUNDUR
AUGL†SINGASÍMI
550 5000