Fréttablaðið - 07.12.2005, Side 71

Fréttablaðið - 07.12.2005, Side 71
MIÐVIKUDAGUR 7. desember 2005 35 „Sagandi er hægur jafn vindur, sam- kvæmt orðabókinni,“ segir Ólöf Björg Björnsdóttir, ein af sex myndlistar- konum sem opnuðu um síðustu helgi sýningu í galleríi Sævars Karls við Bankastræti. Yfirskrift sýningarinn- ar er Sagandi, orð sem þær heilluðust af og sjá ýmsar merkingar í. „Í þessu orði er bæði saga og andi,“ segir Ólöf Björg, en í sýningar- skrá segir að orðið hvorki skilgreini sýninguna né setji henni mörk heldur geri það „tengingar og hvörf óljós þar sem fátt verður nokkurn tíma full- skilgreint og afmarkað“. Þær hafa því býsna frjálsar hend- ur en Ólöf segir þær hafa lagt mikið upp úr því að hafa ljúfa og mjúka stemningu í sýningarsalnum. „Við breyttum lýsingunni í saln- um, settum upp aðra kastara til að fá þessa mýkt. Verkin verða ljóðrænni í þannig rými.“ Auk Ólafar eiga þær Hrund Jóhannesdóttir, Hlaðgerður Íris Björnsdóttir, Kolbrá Bragadóttir, Kristín Helga Káradóttir og Margrét M. Norðdahl verk á sýningunni. „Hver okkar sýnir eitt verk en það getur verið samsett úr mörgum þátt- um,“ segir Ólöf Björg, sem sjálf sýnir málverk af konu. Málverkið er í gler- kassa og í kassanum er einnig lifandi kanína sem listakonan tekur með sér heim á kvöldin. Á sýningunni gætir annars ýmissa grasa. Þar má líta málverk og skúlptúra af ýmsu tagi. Þannig sýnir Hrund öndvegissúlu, Hlaðgerður Íris kemur með framtíðarsýn, Kolbrá er með kynlausan Elvis, Kristín Helga með flæðarmál og Margrét með söfn- unarseríu. Ólöf Björg segir einlægnina ráða ríkjum í samstarfi þeirra. „Okkur er öllum alvara með því sem við erum að gera og svo magnast krafturinn þegar við komum saman í staðinn fyrir að vera alltaf hver í sínu horni að gera eitthvað.“ Sýningunni lýkur á aðfangadag og verður opin á sama tíma og verslun Sævars Karls. Sagandi konur sýna FJÓRAR AF SEX Kanínan er hluti af sýningunni sem nú stendur yfir hjá Sævari Karli. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI – stærsti fjölmiðillinn Hvort sem þú ert einstaklingur í atvinnuleit eða stjórnandi að leita að góðum starfskrafti er Allt – atvinna lausnin fyrir þig. Allt – atvinna er dreift með Fréttablaðinu inn á 95 þúsund heimili alla sunnudaga . ATVINNULEITIN HEFST HÉR! F í t o n / S Í A F I 0 1 4 6 2 9 Sýningar hefjast kl. 20:30 Miðasala í verslunum SKÍFUNNAR og HVAÐ? HVENÆR? HVAR? DESEMBER 4 5 6 7 8 9 10 Miðvikudagur ■ ■ TÓNLEIKAR  20.30 Jón Jósep Snæbjörnsson heldur tónleika í Akureyrarkirkju ásamt Eyjólfi Kristjánssyni og Stúlknakór Akureyrarkirkju. Á tónleikunum verða flutt lög af nýút- kominni plötu Jónsa ásamt eldri lögum þeirra félaga. Einnig munu þeir syngja nokkur jólalög ásamt kórnum.  21.00 Samkór Kópavogs og Samkór Reykjavíkur halda sam- eiginlega tónleika í Grensáskirkju. Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá sem kemur öllum í jólaskap. Kaffi og konfekt í hléi.  21.00 Smekkleysa SM efnir til útgáfuhátíðar á NASA við Austurvöll. Fram koma Hairdoctor, Kira Kira, Megasukk og Siggi Ármann og kynna efni af nýjum breiðskífum sínum. Alfons X og Ben Frost snúa plötum milli atriða.  21.00 Tríó Björns Thoroddsen heldur tónleika á Næsta bar í tilefni af nýútkomnum jóladisk tríósins, sem ber einfaldlega nafnið „Jól“. Tríóið skipa auk Björns, þau Kristjana Stefánsdóttir söngkona og Jón Rafnsson bassaleikari.  Hljómsveitirnar Indigo, Dikta og Shadow Parade halda tónleika á Gauknum.  Jan Mayen heldur opna æfingu á Dillon þar sem hljómsveitin flyt- ur efni sem verður á næstu plötu hennar. ■ ■ FUNDIR  16.00 Samtök um krabbameins- rannsóknir á Íslandi, SKÍ, halda mál- þing í Öskju, Náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands, í tilefni af tíu ára afmæli sínu. Yfirskrift málþingsins er bólusetningar gegn leghálskrabbameini. ■ ■ BÆKUR  22.00 Mike Pollock, Steinunn P. Hafstað og GAK koma fram á ljóðakvöldi á Café Rosenberg. Opinn hljóðnemi að lestri loknum. Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist á hvar@frettabladid.is ekki síðar en sólarhring fyrir birtingu.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.