Fréttablaðið - 07.12.2005, Qupperneq 76
Brúðkaup ársins í Bretlandi verð-
ur án nokkurs vafa þegar Elton
John og David Furnish ganga að
eiga hvorn annan þann 21. desem-
ber næstkomandi í Berkshire.
Berkshire hefur áður komist í
heimsfréttirnar fyrir hjónavígslu
því þar gengu Karl Bretaprins og
Camilla Parker Bowles í hjóna-
band. Athöfnin sjálf verður mjög
lítil en eingöngu móðir og stjúp-
faðir Eltons auk foreldra Davids
fá að vera viðstödd. Frá þessu öllu
greinir götublaðið The Sun.
Það verður þó engu til sparað
þegar kemur að veislunni því sjö
hundruð manns hefur verið boðið
í Old Windsor villuna. Meðal
þeirra sem hafa fengið boðskort
eru stöllurnar Liz Hurley og Vict-
oria Beckham auk Rod Stewart.
Elton John giftir sig
ELTON OG DAVID Hafa lengi verið par og
ætla að láta gefa sig saman 21. desember.
Athöfnin verður lítil en veislugestir í Old
Windsor verða í kringum sjö hundruð.
Ný safnplata frá rapparanum
Eminem, Curtain Call - The Hits,
fór beint á topp breska metsölu-
listans eftir aðeins tvo daga á
lista.
Skákaði hún þar plötu Madonnu,
Confessions on a Dance Floor, sem
hefur notið mikilla vinsælda upp á
síðkastið. Þetta er fjórða platan í
röð frá Eminem sem fer beint á
topp breska listans.
Safnplötunni fylgir auka-
diskurinn Stan’s Mixtape með áður
óútgefnum lögum. Þar eru meðal
annars lög sem Eminem hefur gert
í samvinnu við aðra listamenn, þar
á meðal The Notorious B.I.G og
Jay-Z. Á safnplötunni sjálfri eru
þrjú ný lög, þar á meðal When I’m
Gone. Annars er þar að finna lög á
borð við Stan, Lose Yourself, The
Real Slim Shady og Just Lose It.
Eminem á toppinn
EMINEM Rapparinn Eminem hefur gefið út
safnplötuna Curtain Call - The Hits.
Bandaríska leikkonan Uma Thur-
man er í veiðihug. Hún hefur þó
ekki í hyggju að fá sér skotleyfi
heldur hyggst Kill Bill-leikkonan
ná sér í kærasta. Hún hefur verið
að hitta hóteleigandann Andre Bal-
azs en tekur skýrt fram í viðtölum
að hún sé ekki bundin í báða skó.
Uma hefur verið á lausu síðan
hjónabandi hennar og Ethan
Hawke lauk árið 2003. Uma segist
vera frekar ráðvillt hvað stefnu-
mótareglur varðar og segir erfitt
fyrir konur á hennar aldri að kom-
ast í samband við hitt kynið. „Ég
dáist að karlkyninu og nálgast
karlmenn af ástríðu. Ég hef kynnt
mér hegðun þeirra mjög gaum-
gæfilega og veit, líkt og veiðimað-
urinn, hvernig bráðin hegðar sér,“
sagði Uma.
Veiðimaðurinn Uma
UMA THURMAN Er í veiðihug og hefur sagt
að allir karlmenn komi til greina.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FRÉTTIR AF FÓLKI
Dean Parisot, leikstjóri nýjustu myndar Jim Carrey, Fun With Dick
and Jane, telur að Carrey sé úr gúmmíi.
Carrey féll sex metra niður af
húsþaki við tökur á myndinni
en kenndi sér einskis meins.
Svo virtist sem hann hefði
dottið á hausinn en síðan
stóð hann upp eins
og ekkert hefði
í skorist.
„Hann er í
ótrúlegum
tengslum við líkama
sinn,“ sagði Parisot,
stórundrandi á Carrey.
Brasilíska ofurfyrirsætan Gisele Bündchen var
bæði hrædd og undr-
andi þegar hún sá að
karlkyns aðdáandi sinn
hafði húðflúrað mynd
af henni á brjóstkass-
ann á sér. Atvikið átti
sér stað á tískusýn-
ingu í heimalandi
fyrirsætunnar. „Hann
verður með húð-
flúraða á sér mynd af
mér alla ævi en hvað
ef honum líkar ekki við
mig á morgun?“ sagði Gisele.
Ben Affleck þvertekur fyrir að hann og
eiginkona hans
Jennifer Garner
auglýsi fyrir
kaffihúsaris-
ann Star-
bucks. Þau
hjónin hafa
hvað eftir
annað sést
með Star-
bucks-bolla á
almannafæri.
HUGSAÐU STÓRT
SÍMI 564 0000
Sýnd kl. 5.20 og 10.15 B.i. 12 ára
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 B.i. 16 ára
Sýnd í Lúxus kl. 5.50, 8 og 10.10
���
-MMJ Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5.20
���
- HJ MBL
Sýnd kl. 8 og 10.20 B.i. 14 ára
Sýnd kl. 8 B.i. 12 ára
���
-L.I.B. Topp5.is
Sýnd kl. 5, 8 og 10.40 B.i. 16 ára
FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM!
���
- SK DV
���
- topp5.is
���
- SV MBL
Þeir eru sennilega fáir almanna-
tengslafulltrúarnir núna sem ráð-
leggja ungu frægu pari að taka upp
raunveruleikaþátt um hveitibrauðs-
dagana sína. Nick Lachey og Jessica
Simpson eru skilin og bendir allt til
þess að Britney Spears verði brátt
einstæð móðir. Þrátt fyrir að hún
sé nýbúinn að eignast barn er allt í
kalda koli hjá henni og Kevin Fed-
erline samkvæmt breska blaðinu
The Sun. Blaðið greinir einnig frá
því að Spears hafi hent Federline út
og látið draga rauða Ferrari-bifreið
hans á brott.
Britney mætti með soninn Sean
Preston á Billboard-verðlaunin en
Kevin elti hana þangað og skráði
sig inn á sama hótel. Hann hringdi
síðan stanslaust og varð þetta
ónæði til þess að Spears hætti við
að koma fram.
Samkvæmt blaðinu er popp-
drottningin orðin langþreytt á
sífelldu djammi eiginmannsins síns,
sem elskar bílinn sinn jafn mikið
og hana. Heimildarmaður blaðsins
segir að Britney sé í öngum sínum
yfir því hvernig komið sé fyrir sér
en þrátt fyrir ungan aldur eigi hún
nú að baki misheppnað hjónaband.
Allt í rugli hjá Britney
ÁST OG HAMINGJA Parið virtist yfir sig
ástfangið í upphafi en Adam var ekki lengi
í Paradís og nú virðist sem öllu sé lokið hjá
þeim Britney og Kevin.
Jólasafnplötunni Stúfur sem út
kom fyrir síðustu jól hefur nú verið
dreift á ný. Allur ágóði af sölu plöt-
unnar rennur óskiptur til Mæðra-
styrksnefndar, en í fyrra söfnuðust
um hundrað þúsund krónur.
Hærra hlutfall af sölunni geng-
ur til Mæðrastyrksnefndar því
unnið hefur verið upp í alla kostn-
aðarliðina. KB Banki og Tónastöðin
styrktu útgáfu plötunnar.
Á plötunni eru níu jólalög, þrjú
frumsamin og sex tökulög, sem
framvarðarsveit ungra hljóm-
sveita á borð við Ókind, Lokbrá,
Isidor og Hermigervill flytja.
Stúfur aftur til byggða
LOKBRÁ Hljómsveitin Lokbrá á lag á jóla-
safnplötunni Stúfur. Á meðal sveita sem
eiga lög á plötunni eru Ókind, Isidor og
Hermigervill.
SÍMI 551 9000
400 kr. í bíó! Gildir á allar sýningar merktar með rauðu
���
“Frábær kvikmynd, áhugaverðari og fyndnari en flestar
þær sem boðið hefur verið upp á undanfarið”
-MMJ Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
���
„Nokkurs konar Beðmál í Borginni í
innihaldsríkari kantinum.“
„...leynir víða á sér og er rómantísk
gamanmynd í vandaðri kantinum.“
- HJ MBL
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 16 ára
FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM!
ÞAÐ SEM KOM FYRIR EMILY
ROSE ER ÓHUGNANLEGRA
EN NOKKUÐ SEM ÞÚ
GETUR ÍMYNDAÐ ÞÉR
���
- SK DV
���
- topp5.is
���
-L.I.B. Topp5.is
���
- SV MBL
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20 B.i. 12 áraSýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 B.i. 16 ára