Fréttablaðið - 07.12.2005, Qupperneq 78

Fréttablaðið - 07.12.2005, Qupperneq 78
50 7. desember 2005 MIÐVIKUDAGUR sport@frettabladid.is RAFSTÖÐVAR ALL-KEEP m/DIESLMÓTOR og rafstarti 2,7 kvA kr. 59.750 3,75 kvA kr. 92.000 5,0 kvA kr. 110.000 5 kvA kr.165.000 8 kvA kr.235.000 m/HONDA MÓTOR ����������� �������������� ��������������������������� ���������� ����������� ����������� Íþróttafélagið Þór á Akureyri er í vond- um málum þessa dagana enda skuldar félagið mikla peninga og bendir margt til þess að það sé á leið í gjaldþrot. Hörðustu félagsmennirnir hafa ekki lagt árar í bát og nýjasta útspil þeirra er að biðla til hins almenna félags- manns um að styrkja félagið með fjárframlögum. Auglýst er eftir frjálsum framlögum sem munu fara í að greiða upp gamla skuld vegna vörsluskatta hjá sýslumanni. “Það hefur lítið verið um framlög en þó eitthvað. Margt smátt gerir eitt stórt en betur má ef duga skal,” sagði Unnsteinn Jónsson, formaður knattspyrnudeildar félagsins, sem skrif- ar fréttina á heimasíðu Þórs þar sem óskað er eftir fjár- framlögunum. “Það hafa ekki verið rukkuð árgjöld í nokkurn tíma og félagið á því eitthvað inni hjá félagsmönnum. Hinn almenni félagsmað- ur verður að gera meira en að ræða um hlutina. Verkin verða líka að tala.” Það segir sína sögu um stöðuna á félaginu þegar byrjað er að auglýsa eftir peningum á heimasíðunni. “Félagið er illa statt og menn verða að vinna í því að komast út úr þessari stöðu með öllum tiltækum ráðum. Félags- menn verða að byrja á því að líta í eigin barm svo það sé ekki bara krafa á aðra að styrkja. Við getum illa verið að krefjast peninga frá bænum þegar svona tekjustofn er ónotaður,” sagði Unnsteinn en félagsheimili Þórs, Hamar, er komið á uppboð og verð- ur selt undan félaginu fari svo að ekki safnist nægir peningar. Þeim sem vilja styrkja félagið er bent á að kíkja á heimasíðu Þórs, thorsport.is. ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ ÞÓR: FJÁRHAGSVANDRÆÐI KALLA Á FRUMLEGAR LAUSNAR Auglýst eftir fjárframlögum á heimasíðunni KÖRFUBOLTI Forsaga málsins er sú að Ágústi var vísað af velli í leik Hauka og Grindvíkinga suður með sjó á dögunum. Var hann ekki sátt- ur við þann dóm og í bræði sinni kastaði hann hvítum plaststól upp í loftið og inn á völlinn með þeim afleiðingum að hann lenti í einum leikmanna Grindavikur, sem ekki varð meint af þó eitthvað hafi séð á henni. Niðurstaða aganefndar í málinu var tveggja leikja bann. “Ég hef aldrei áður verið inni á borði aganefndar áður og ég er enginn vandræðastrákur. Ég held að þetta sé nokkuð sanngjarnt miðað við fyrsta brot. Svo missi ég af svaka leik og því er þetta fyrir mér eins og fimm leikja bann,” sagði Ágúst við Fréttablað- ið í gær en hann verður í banni um helgina er Haukar spila í úrslitum Powerade-bikarsins. Unndór Sigurðsson, kollegi Ágústs, er ekki á sama máli og Ágúst og segir dóminn undarleg- an. “Ég verð að segja eins og er að mér finnst þetta ansi skrítið. Menn hafa oft fengið meiri dóma fyrir minna. Páll Axel fékk einu sinni þrjá leiki í unglingaflokki en hann notaði bara orðin. Fékk hann virkilega bara tvo leiki?” sagði Unndór, sem var mjög hissa enda segir hann að þessi uppákoma hafi verið ansi sérstök. “Ég bjóst við að hann fengi svona fjóra leiki í bann. Hann tekur upp stól og þó þetta hafi kannski ekki verið vilj- andi þá verður hann að passa sig og þarna hefði getað farið verr.” Það er ljóst að körfuboltaáhuga- menn eiga eftir að deila mikið um þetta bann og Unndór er ekki viss um hversu gott fordæmi sé verið að setja með þessum dómi. “Menn þruma ekki stól inn á völlinn. Það er annað að sparka honum í vegg eða eitthvað álíka. Þetta er undarlegur dómur sem kemur mér á óvart. Þjálfarar eru haus liðsins og þeir verða því að hemja sig meira en aðrir,” sagði Unndór að lokum. henry@frettabladid.is Er enginn vandræðastrákur Ágúst Björgvinsson, þjálfari kvennaliðs Hauka í körfuknattleik, segir tveggja leikja bann fyrir stólakastið sanngjarnt. Unndór Sigurðsson, þjálfari Grindavík- ur, er ekki á sama máli og furðar sig á dómi aganefndar. TVEGGJA LEIKJA BANN Ágúst Björgvinsson var í gær dæmdur í tveggja leikja bann fyrir að kasta stól inn á völlinn í leik Hauka og Grindavíkur. FÓTBOLTI Bræðurnir Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir hafa ákveð- ið að snúa á heimaslóðir og ljúka ferlinum með uppeldisfélagi sínu ÍA. Nokkur óvissa er með þátt- töku Bjarka enda hefur hann verið meiddur lengi en að því gefnu að hann verði heill mun hann leika með ÍA ásamt bróður sínum. „Er ekki rómantík í því að koma heim aftur?“ sagði Arnar léttur í gær. „Þetta hefur verið á bak við eyrað á mér í nokkurn tíma og í raun kom aðeins til greina að spila með ÍA eða Val. Ég er að loka hringnum eins og ég hafði alltaf talað um að gera.“ Arnar er annar Skagamaður- inn sem ákveður að koma heim en Þórður Guðjónsson hefur þegar samið við Skagamenn. „Við félagarnir höfðum alltaf talað um að enda þetta saman og ég er mjög spenntur fyrir þessu,“ sagði Arnar, sem gerir ekki ráð fyrir því að lenda í vandræðum með samningamálin enda ætlar hann ekki að fara fram á háar fjárhæðir frá ÍA. „Það er algjört formsatriði að ganga frá samningi sem verður til eins árs. Svo sér maður til eftir það.“ - hbg Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir stefna báðir á að leika á ný með ÍA: Rómantík í því að koma heim og klára ferilinn SAMEINAÐIR BRÆÐUR Arnar og Bjarki stefna báðir að því að leika með ÍA næsta sumar. Óvissa er með þátttöku Bjarka sökum líkamlegs ástands hans. FÓTBOLTI Gamla landsliðskempan Hlynur Birgisson er byrjuð að æfa með 1. deildarliði Þórs á nýjan leik og mun að óbreyttu leika með lið- inu næsta sumar en Hlynur hafði áætlað að hætta að leika með lið- inu. „Liðið verður byggt upp á ungum heimamönnum og því veit- ir ekki af gömlum jálkum eins og mér með,“ sagði Hlynur sem rennur blóðið til skyldunnar og er meira en tilí að gefa eitthvað til baka til félagsins sem ól hann upp. „Ég er enn í fínu líkamlegu ástandi og því verður vonandi ein- hver hjálp í mér. Ef ekki þá hendir Orri mér bara á bekkinn,“ sagði Hlynur en þjálfari liðsins, Lárus Orri Sigurðsson, stefnir einnig á að spila með liðinu. en ljóst er að reynsla þeirra tveggja kemur til með að vega þungt fyrir Þórsara næsta sumar. Gleðifréttir fyrir Þór: Hlynur byrjað- ur að æfa FÓTBOLTI Brynjar Björn Gunnars- son mun í kvöld leika með vara- liði Reading gegn Crawley. Hann hefur verið meiddur að undan- förnu en vonast er til þess að hann verði tilbúinn fyrir mikið leikjaá- lag í kringum jólin. Reading hefur leikið einstak- lega vel að undanförnu og er ljóst að það verður erfitt fyrir Brynjar að vinna sér sæti í byrjunarliðinu að nýju. Steve Coppell, knattspyrnu- stjóri Reading, vonast til þess að Brynjar verði tilbúinn í slaginn áður en langt um líður. „Brynjar hefur leikið vel en á móti kemur að allir miðjumennirnir hafa leik- ið einstaklega vel að undanförnu og það verður því gott fyrir félag- ið þegar Brynjar snýr aftur. Þá lendi ég í vandræðum með að velja í liðið,“ sagði Coppell á opinberri heimasíðu Reading. Félagi Brynj- ars hjá Reading, Ívar Ingimars- son, hefur leikið einstaklega vel að undanförnu og eftir fund með Eyjólfi Sverrissyni ákvað hann að gefa kost á sér í íslenska landslið- ið á nýjan leik, en hann gaf ekki kost á sér eftir að hafa lent upp á kant við Loga Ólafsson og Ásgeir Sigurvinsson, þáverandi lands- liðsþjálfara. - mh Brynjar Gunnarsson: Mun berjast fyrir sæti sínu BRYNJAR BJÖRN GUNNARSSON Brynjar mun þurfa að berjast fyrir sæti sínu þegar hann snýr aftur í aðallið Reading. > Páll eftirsóttur Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst verður Páll Einarsson ekki í neinum vandræðum með að finna sér nýtt félagið. Hans gamli þjálfari, Ásgeir Elíasson, er talinn vilja fá hann í Fram en Páll hefur meiri áhuga á að leika í efstu deild. Heyrst hefur að meðal þeirra liða sem séu að spá í Pál séu Breiðablik, Víkingur, Grindavík og fleiri. Fylkir til að mynda gæti vel notað reynslu- bolta eins og Pál á miðjuna og einnig hefur heyrst að ÍBV sé að reyna að lokka hann til Eyja. Allt að verða klárt Hólmar Örn Rúnarsson er kominn til Svíþjóðar þar sem hann ræðir um samning við forráðamenn Trelleborg. Viðræður hefjast af kappi í dag og ef vel gengur skrifar Hólmar undir samning í kvöld. 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.