Fréttablaðið - 28.12.2005, Qupperneq 28
[ ]
Glæsilegur
áramótafatnaður
Óskum nemendum okkar og landsmönnum
öllum gleðilegrar hátíðar og farsældar á
komandi ári, þökkum viðskiptin á árinu.
Hvað segja nemendur okkar um námskeiðið:
Nytsamlegt, áhugavert, krefjandi, skemmtilegt, mjög gott, þægi-
legt, lipurð, skipulagning, einbeiting, jákvæðni, mikil aðstoð,
góður kennari, spennandi, árangursríkt, hvetjandi, góð þjónusta,
frábært, markvisst, hnitmiðað.
(sjá umsagnir nemenda á www.h.is)
Erum byrjuð að bóka á fyrstu námskeið 2006:
Hraðlestrarnámskeið 10. janúar 2006 (nokkur sæti laus)
Hraðlestrarnámskeið 30. janúar 2006 (skráning hafin)
Skráning fer fram á www.h.is eða í síma 586-9400.
Ef maginn fer í ólag
þá getur Silicol hjálpað.
Silicol
bindur
bakteríur
og önnur
skaðleg
efni
í maga og
gerir óvirk.
Silicol fæst í apótekum
um allt land.
Góða veislu gjöra skal þegar
gamla árið er kvatt. Ingibjörg
Pétursdóttir í Veisluþjónustu
Mensu gefur hér nokkrar prýð-
is hugmyndir að fljótlegum og
ljúffengum réttum sem duga
fyrir sex manns hver.
FORRÉTTIR
Humar í hvítlauk
1 1/2 kg humarhalar eða 3-4 humr-
ar á mann
200 g smjör
3 hvítlauksgeirar
6 kvistir steinselja
salt
Klippið með skærum í bakið eftir
endilangri humarskelinni, lyft-
ið humrinum upp úr skelinni en
hafið hann þó fastan við sporð-
inn. Takið sandæðina úr humr-
inum.
Hrærið smjörið, steinseljuna,
saltið og hvítlaukinn í mat-
vinnsluvél og smyrjið þessu
kryddsmjöri ofan á humarinn.
Bakið humarinn í 200° heitum
ofni á grillstillingu í 5 mínútur
og berið strax fram.
Ristað brauð og smjör er borið
með.
Grafið hreindýrakjöt með pipar-
rótarsósu:
300 g hreindýrakjöt, fitu-og sinu-
hreinsað (t.d. biti af innra læri)
1 hnefi gróft salt
Kjötið er hulið salti og látið liggja
í því á meðan kryddblandan er
löguð en ekki lengur en í klukku-
tíma.
Kryddblanda
1/2 tsk. svartur pipar
2 msk. þurrkað timian
1 msk. þurrkað rósmarín
1 msk. mulin einiber
1 mulið lárviðarlauf
1/2 msk. hrásykur
Saltið er dustað af hreindýrakjöt-
inu. Kjötið er þurrkað með eldhús-
pappír, sett í skál og hulið krydd-
blöndunni í bak og fyrir. Látið
matarfilmu yfir skálina og geymið
í ísskáp í 2-3 daga. Snúið kjötinu
daglega. Síðan er það tekið, pakk-
að inn í matarfilmu og sett í frysti.
Kjötið er skorið frosið í þunnar
sneiðar og borðað sem forréttur
ásamt piparrótarsósu og ef til vill
blönduðu salati.
Piparrótarsósa
1 lítil dós sýrður rjómi
2 tsk. rifin fersk piparrót
1/4 tsk. jurtasalt
Allt hrært saman með písk eða
gaffli.
AÐALRÉTTUR
Andabringur með gljáðum perlu-
lauk:
1.4 kg andabringur
300 g steinlaus vínber
salt og svartur pipar
andasoð eða kraftur
2 msk. smjör
1-2 msk. maisenamjöl
jurtasalt
Ómótstæðilegir réttir í
áramótafagnaðinn
Humar í hvítlauk. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Grafið hreindýrakjöt með piparrótarsósu.
Áramótaglingur og skraut gefa góða stemningu á gaml-
árskvöld. Þeir sem hafa hug á að fela sig bak við grímu eða
prýða höfuð með hatti ættu að drífa sig af stað svo að enginn
kaupi áramótaglingrið sem þér var ætlað að bera.