Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.01.2006, Qupperneq 15

Fréttablaðið - 02.01.2006, Qupperneq 15
Að borgin reki þrjú gjaldfrjáls skólastig: leikskóla, grunnskóla og taki við ábyrgð á rekstri framhaldsskóla af ríkinu. Að í Vatnsmýrinni verði glæsilegt miðborgarsvæði 21. aldarinnar. Að borgin taki við heimahjúkrun og þjónusta við aldraða verði öflug og heildstæð undir einni stjórn. Að kalla borgarbúa til beinna áhrifa með því að styrkja hverfafélög í samvinnu við þjónustumiðstöðvar borgarinnar og fela þeim verkefni um grenndarmál sem varða öryggi, umferð og umhverfi. Að umönnun barna verði tryggð frá fæðingarorlofi til leikskóla, og á skólastigum yngri barna verði nám, íþróttir og frístundastarf hluti af samfelldum skóladegi. Að borgin tryggi fjölbreytt framboð af búsetu- möguleikum sem henta ólíkum lífsstíl fyrir fólk á öllum aldri. Ólíkar tegundir einbýlis- og fjölbýlishúsa þurfa að bjóðast í samræmi við óskir fólks. Að sjálfstæðir og fjölbreyttir skólar verði í fremstu röð á alþjóðlegum mælikvarða. Áhrif forráðamanna barna verði aukin með stefnumarkandi skólasáttmála þar sem nemendur, foreldrar og starfsfólk setja sameiginleg markmið skólans um nám og forvarnir. Starfsfólk skóla fái ríkulegt svigrúm til nýsköpunar. Einstaklingsmiðað nám verði styrkt enn frekar með einstaklingsáætlunum nemenda. Að efla samráð í skipulagsmálum og búa framsæknum fyrirtækjum umhverfi sem þau þarfnast svo þau laði að gott fólk til að skapa auð og störf. Að Reykjavík sé alþjóðleg menningarborg og jafnist á við framsæknar erlendar borgir í lífsgæðum – bæði hvað varðar mannlíf og umhverfi. Ný tónlistar- og ráðstefnuhöll verði vettvangur heimsviðburða. Að Reykjavík taki forystu um þróunaráætlun fyrir hið nýja samfellda borgarsvæði frá Borgarfirði til Árnessýslu þar sem nú eru að skapast ný sóknarfæri með efnahagslegum styrk og menningarlegri fjölbreytni. Við sem viljum öflugt framboð jafnaðarmanna og félagshyggjufólks höfum metnaðarfull markmið: Ágætu Reykvíkingar, ég þakka það traust sem mér hefur verið sýnt og býð fram reynslu mína í opnu prófkjöri Samfylkingarinnar í febrúar, saman vinnum við verðskuldaðan sigur í vor. Gleðilegt nýtt kosningaár! Ný tækifæri – ný sókn Tækifærið í kosningunum í vor byggist á góðum grunni sem skapar Reykjavík fjölmörg sóknarfæri í framtíðinni. Reykvíkingar eiga kröfu á því að geta valið þann kost í vor sem þekkir þessi tækifæri og leiðirnar til að nýta þau. Sigurstrangleg forysta byggir á trausti og reynslu. Allir Reykvíkingar sem vilja styðja Stefán Jón Hafstein sem borgarstjóraefni geta lagt lið með því að taka þátt í prófkjörinu. Stefán Jón Hafstein sigraði glæsilega í prófkjöri fyrir fjórum árum og gefur kost á sér áfram í fyrsta sæti. Sjá nánar um stefnu og reynslu á www.stefanjon.co.is Samfylkingin efnir til opins prófkjörs í febrúar. Sjá nánar á samfylking.is og www.sffr.is sem er heimasíða Samfylkingarinnar í Reykjavík. Stefán Jón Hafstein he gg s@ si m ne t. is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.