Fréttablaðið - 02.01.2006, Síða 25

Fréttablaðið - 02.01.2006, Síða 25
MÁNUDAGUR 2. janúar 2006 5 Augun sjá það sem þau sjá en það er heilinn sem dregur ályktanir um hvað það er sem á er horft. Huganum getur þó skjátlast enda er ekki allt sem sýnist. Að vera ferðamaður í framandi landi getur leikið augað grátt. Oftar en ekki stendur maður eins og galgopi með myndavél og smellir mynd af stórbrotnu mann- virki. Heimamenn ganga fram hjá og hugsa „af hverju er verið að mynda hundabyrgið?“ Vissulega getur gests augað verið glöggt en auðvelt er að ætla miklum fjölda fermetra og stór- brotinni byggingarlist einhverju öðru en það er. Ekki er allt sem sýnist Þetta gæti verið einhvers konar kastali úr ævintýri eða völundarhús. Byggingin kallast GUM, sem gæti staðið fyrir tyggjóverksmiðju, svipaða sælgætisverksmiðju Willi Wonka. Raunverulegri ágiskun væri að þetta væri kauphöll þar sem viðskiptajöfrar keyptu hlutafé í kakóbaunum og tóbaksframleiðslu. Þarna inni má reyndar kaupa tyggjó, sælgæti, kakó og tóbak enda er þetta GUM-verslunarmiðstöðin í Moskvu. Þegar gengið er niður stigana í þennan glæsilega sal tekur þú í hönd manneskjunnar sem stendur þér við hlið, þið hneigið ykkur og stígið léttan vínarvals eftir marmaralögðu gólfinu þveru og endilöngu. Dansinum lýkur þó um leið og neðanjarðarlestin rennur í hlað, dans- félaginn hverfur um borð og þú manst að umhverfið er neðanjarðarlestarstöð í Moskvu. Þessar húsaraðir mynda ferhyrningslaga torg sem kallast Plaza Mayor og er í Madr- íd. Við innkomu á torgið réttir maður úr bakinu enda væntanlega í návist ráðherra og mikilvægra manna í spænskri stjórn- sýslu. Við nánari athugun kemur þó í ljós að á jarðhæð við torgið eru sölubúðir og veitingahús, á öðrum hæðum byggingar- innar búa kennarar, píparar, nemar eða lestarstjórar, bara venjulegir Spánverjar. Þegar þessi bygging blasir við ókunnugu auga veltir maður fyrir sér hvort þarna búi konungserfingi eða hvort þingfundur standi yfir. Þarna gæti líka lögreglan verið til húsa eða leyniþjónustan. En svo er nú víst ekki. Byggingin er í Madríd, kallast Palacio de Comunicaciones, eða það sem Íslendingar kalla í daglegu tali pósthús. Ef stjórnarráðinu væri lýst með orðum er ekki útilokað að húsinu gæti verið ruglað saman við Menntaskólann í Reykjavík. Kannski eru nokkrir ferðamenn með myndir af MR í myndaalbúminu sínu eftir Íslandsferð og undir myndinni stendur „Iceland‘s stjornarrad.“ Stjórnarráð Íslands er glæsilegt og fagurt hús. Hinsvegar er ekki víst að margir ferðamenn í leit að merku stjórnarráði átti sig á því að húsið er beint fyrir framan nefið á þeim, enda eru margar opinberar byggingar erlendis æði stórar. VEGGFÓÐUR MÁNUDAGA KL 21.00 FYLGSTU MEÐ! VALA OG HÁLFDÁN KYNNA FYRIR OKKUR ÞAÐ FERSKASTA Í HÖNNUN OG LÍFSSTÍL AF ALKUNNRI SMEKKVÍSI. NFS ER Á VISIR.IS NFS í beinni á VefTV og upptökur þegar þér hentar Visir.is er stærsta fréttalind landsins. Þar miðla Fréttablaðið og Nýja fréttastofan fréttum allan sólarhringinn og nú er NFS í beinni á VefTV frá morgni til kvölds. Þú færð fréttirnar beint í æð í vinnunni eða heima og upptökur af fréttum dagsins tryggja að þú missir ekki af neinu.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.