Fréttablaðið - 28.01.2006, Qupperneq 8
8 28. janúar 2006 LAUGARDAGUR
Nýr, fallegri og miklu betri Opel.
���������������� �����������������
���������������������������������������������������������
��������������������������������������������������������
��������������������������������������������������������
��������������������������
1.550.000,-
Ekki hugsa
of lengi!
Verð áður 1.790.000,- Mánaðargreiðsla 18.583,-*
TILBOÐSVERÐ
Aðeins 9 bílar í boði!!!
�������������������������������������������������������������������
DÓMSMÁL Íslenska ríkið var í gær
dæmt skaðabótaskylt gagnvart
erfingjum konu vegna sýkingar
sem hún varð fyrir sökum yfir-
sjónar starfsfólks Landspítala
1997.
Hæstiréttur staðfesti þar
með fyrri úrskurð Héraðsdóms
Reykjavíkur frá apríl síðastliðn-
um þar sem ríkið var einnig fund-
ið skaðabótaskylt. Var Hæstirétt-
ur sammála mati héraðsdóms
að með viðeigandi rannsóknum
á konunni hefði mátt koma auga
á meinsemd þá er síðar varð til
þess að hún var lögð inn á sjúkra-
hús og varð fyrir varanlegu lík-
amstjóni. - aöe
Hæstiréttur Íslands:
Ríkið dæmt
skaðabótaskylt
VEISTU SVARIÐ
1 Hvaða samtök sigruðu í kosningun-um í Palestínu?
2Hvað hafa stjórnkerfisbreytingar Reykjavíkurborgar kostað?
3Hvaða Norðurlandaþjóðum leikur íslenska fótboltalandsliðið gegn í
undankeppni EM?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 58
RANNSÓKNIR Fyrirtækið Lyfjaþró-
un hlaut allnokkrar viðurkenning-
ar og fjárstyrki vegna þróunar- og
rannsókna sinna á notkun nefúða
til bólusetningar. Vísindasiða-
nefnd og Lyfjastofnun skoða nú
hvort verið geti að átt hafi verið
við niðurstöður þær er gáfu rann-
sóknum fyrirtækisins byr undir
báða vængi í upphafi.
Eins og skýrt var frá í Frétta-
blaðinu í gær leikur nægur grun-
ur á að átt hafi verið við fyrstu
niðurstöður rannsóknanna og
Vísindasiðanefnd í samvinnu við
Lyfjastofnun yfirfer nú frumnið-
urstöður þær eru kynntar voru af
hálfu Sveinbjörns Gissurarssonar,
stofnanda og framkvæmdastjóra
Lyfjaþróunar um aldamótin. Gáfu
þær niðurstöður afar góða raun
en í kjölfarið hafa farið fram tvær
aðrar rannsóknir sem gáfu allt
aðrar og verri niðurstöður og var
nefúðarannsóknum fyrirtækisins
hætt í kjölfarið.
Hlaut verkefnið talsverðan
fjárstuðning. Tæknisjóður styrkti
rannsóknir Sveinbjörns og kollega
hans um tæpar níu milljónir á
fjögurra ára tímabili og fyrir-
tækið hlaut Nýsköpunarverðlaun
Rannís og Útflutningsráðs árið
2004. Þá fékk fyrirtækið fjögur
alþjóðleg einkaleyfi auk þess sem
fleiri umsóknir um einkaleyfi
voru í burðarliðnum.
- aöe
FRÁ RANNSÓKNARSTOFU LYFJAÞRÓUNAR Bólusetning með nefúða hefur alla tíð verið
megin viðfangsefni fyrirtækisins en verkefnið vakti mikla athygli á sínum tíma. Myndi er úr
safni og viðkomandi tengist ekki fréttinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Nefúðarannsóknir Lyfjaþróunar:
Fengu milljónir
króna í styrki
SVEITARSTJÓRNARMÁL Baldvin H.
Sigurðsson, veitingamaður á
Akureyrarflugvelli, væntir þess
að félagatal VG á Akureyri allt að
því tvöfaldist í tengslum við þátt-
töku hans í forvali flokksins vegna
komandi sveitarstjórnarkosninga.
Baldvin stefnir á að leiða fram-
boðslistann og velta þar með Val-
gerði H. Bjarnadóttur, oddvita VG
á Akureyri og eina bæjarfulltrúa
flokksins, úr fyrsta sætinu.
„Valgerður hefur unnið gott verk
í gegnum tíðina í jafnréttismálum
en hún hefur ekki staðið sig nægi-
lega vel varðandi kjör láglauna-
fólks. Það hafa aðrir forustumenn
flokksins á Akureyri heldur ekki
gert og almennt séð finnst mér
forystan ekki nægilega vinstri-
sinnuð,“ segir Baldvin.
Forvalið fer fram í dag og taka
níu manns þátt í því. Valgerður og
Baldvin sækjast eftir fyrsta sæti
en Dýrleif Skjóldal Ingimarsdótt-
ir stefnir á fyrsta til þriðja sæti.
Wolfgang Frosti Sahr sækist eftir
öðru sæti en Jón Erlendsson,
varabæjarfulltrui VG á Akureyri,
hefur sett stefnuna á annað til
þriðja sæti. - kk
Mikil liðssöfnun vegna forvals Vinstri grænna á Akureyri:
Félagatalið hugsanlega tvöfaldað
BALDVIN H. SIGURÐSSON Forysta VG á
Akureyri er ekki nægilega vinstrisinnuð að
mati Baldvins og því stefnir hann á að leiða
lista flokksins í komandi sveitarstjórnar-
kosningum. FRÉTTABLAÐIÐ/KK