Fréttablaðið - 28.01.2006, Page 16
28. janúar 2006 LAUGARDAGUR
Emilíana Torrini
vann til þrennra
verðlauna á hátíð
Íslensku tónlistar-
verðlaunanna sem
afhent voru í Þjóð-
leikhúsinu í vik-
unni. Hún var valin
besta söngkonan,
plata hennar Fisher-
man‘s woman var
valin besta platan
og myndbandið við
lagið Sunny road
var valið það besta í
sínum flokki.
Þrátt fyrir að
vera innan við þrí-
tugt hefur Emelíana
verið í „bransanum“
í meira en áratug.
Hinn 16. maí 1977
fæddist Emilíana
þeim Önnu Stellu
Snorradóttur og
Salvatore Torrini.
Hún sleit barnskón-
um í vesturbænum
í Kópavogi, gekk
í Kársnesskóla,
Þingholtsskóla og
M e n n t a s k ó l a n n
í Kópavogi. Hún
byrjaði snemma að
tala og syngja og
var í kór Kársnes-
skóla frá sjö ára
aldri fram á ferm-
ingaraldur. Fjórtán
ára gömul komst
hún í Söngskólann í
Reykjavík á undan-
þágu vegna aldurs
og má segja að þá
hafi ekki verið aftur snúið. Hún
vakti athygli fyrir frammistöðu
sína í Söngvakeppni framhalds-
skólanna þegar hún keppti fyrir
MK og henni bárust tilboð um að
syngja í ýmsum hljómsveitum.
Hún gekk að lokum til liðs við
poppsveitina Spoon sem gat sér
nokkurra vinsælda, ekki síst fyrir
tilstilli Emilíönu.
Þegar hún skildi við hljóm-
sveitina tók við farsælt samstarf
við Jón Ólafsson píanóleikara sem
leiddi af sér tvær plötur sem voru
gefnar út undir hennar nafni. Eng-
inn velktist í vafa um sönghæfi-
leika hennar, en Emilíana hafði
líka metnað sem lagahöfundur og
flutti til Bretlands skömmu fyrir
aldamót til að fylgja tónlistarferli
sínum frekar eftir. Hún gaf út plöt-
una Love in the time of science árið
2000 og sýndi þar að hún er ekki
síður hæfileikaríkur lagasmiður
en söngkona. Hróður hennar á því
sviði hefur vaxið mjög undanfarin
ár og frægir tónlistarmenn hafa
leitað á náðir hennar eftir lögum.
Í fyrra gaf hún út plötuna Fis-
herman‘s woman sem sýndi í eitt
skipti fyrir öll að hún er orðinn
fullþroska listamaður.
Emilíana þykir þægileg í
umgengni; hún er hreinskilin og
fólk veit hvar það hefur hana. Vinir
hennar lýsa henni sem lífsglaðri
og örlátri manneskju og miklum
húmorista, en út á við getur hún
oft virkað hlé-
dræg og jafn-
vel feimin. Þeir
sem til hennar
þekkja segja að
hún sé með ein-
dæmum uppá-
tækjasöm og
hafi sífellt feng-
ið hugmyndir
að einhverju
nýju til að gera,
sem sjaldan röt-
uðu þó í fram-
kvæmd. Sumum
gæti jafnvel
virst hún vera
sveimhugi sem
mun þó vera
fjarri sanni, því
hún hefur að
sögn báða fætur
á jörðinni og
horfir til fram-
tíðar. Vegur
hennar hefur
aukist mjög á
undanförnum
árum en Emilí-
ana hefur ávallt
haldið sér til
hlés og tranar
sér ekki fram
í fjölmiðlum.
vill hafa sitt í
friði og ber til-
finningar sínar
ekki á torg.
K u n n u g i r
segja að Emil-
íana sé mikill
fagurkeri hafi
unun af öllu
sem fallegt
er, hvort sem það eru föt, innan-
stokksmunir, hús og svo fram-
vegis. Hún er líka mikill matgæð-
ingur og segja vinir hennar að
fátt sé skemmtilegra en að fara á
veitingahús með Emilíönu, sem er
óþreytandi að kynna sér framandi
matargerð og nýja strauma.
Emilíana er listamaður af lífi
og sál; hún er sögð ósérhlífin og
gera miklar kröfur til sjálfrar sín.
Hún er jafnvel sögð með snert af
fullkomnunaráráttu og er sinn
harðasti gagnrýnandi, sem getur
jafnvel þvælst fyrir henni á stund-
um. Hún er aftur á móti sögð afar
auðmjúk og finnst starf sitt ekki
merkilegra en annarra.
MAÐUR VIKUNNAR
Listamaður
af lífi og sál
EMILÍANA TORRINI
TÓNLISTARMAÐUR
Í nýafstöðnu prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í Kópavogi var
augljóslega mikið lagt í auglýs-
ingar og kynningarbæklinga.
Fallegir pésar voru sendir inn
á hvert heimili í Kópavogi, eins
var auglýst verulega í blöðum og
á vefmiðlum. Það er skiljanlegt
að fólk sem er í framboði reyni
að koma sér á framfæri með ein-
hverjum hætti en maður hlýtur að
setja spurningarmerki við auglýs-
ingaflóð eins og var fyrir prófkjör
Sjálfstæðismanna í Kópavogi. Það
er ekki eftir miklu að slægjast í
launaumslagið fyrir bæjarfull-
trúasæti í bæjarstjórn Kópavogs.
Í því samhengi er erfitt að
skilja hvers vegna lagt er út í svo
mikinn fórnarkostnað fyrir próf-
kjör af þessu tagi. Sjálfsagt er
ekki hægt að amast út í þennan
kostnað ef fólk leggur út fyrir
þessu úr eigin vasa. Mönnum er
jú frjálst að ráðstafa sínum pen-
ingum í það sem það vill, þó getur
ekki verið mikil skynsemi að baki
í þessu tilfelli. Eina raunhæfa
skýringin á þessu auglýsingaflóði
er að frambjóðendur í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins hafi verið
styrktir verulega af fyrirtækjum
í bænum.
Það ætti að vera opinbert öllum
bæjarbúum ef einstaklingar, sem
bjóða sig fram í almannaþágu
eru styrktir af fyrirtækjum. Það
hlýtur að vera sjálfsögð krafa að
almenningur viti um fjárhagsleg-
ar styrkveitingar frá fyrirtækjum
til frambjóðenda. Það er ekki eðli-
legt að menn eða konur komist til
áhrifa á fjármagninu einu saman.
Það er lýðræðinu mjög hættulegt
og það getur markað mikilvægar
ákvarðanir í þeim tilfellum þar
sem hagur fólksins og fyrirtækj-
anna fer ekki saman.
Einstaklingur sem býður
sig fram til starfa á vettvangi
sveitastjórnarmála má ekki vera
háður einum eða neinum. Allra
síst fyrirtækjum eða fjármagni.
Bæjarfélag er ekki hlutafélag fyr-
irtækjanna, fyrirtækin eiga ekki
að eiga fulltrúa í sveitarstjórnum.
Því miður lítur málið þannig út á
meðan frambjóðendur geta þegið
ótakmarkað fjármagn frá fyrir-
tækjum.
Stóra spurningin í mínum huga
er þessi. Hversu marga bæjarfull-
trúa í bæjarstjórn Kópavogs eiga
fyrirtækin í Kópavogi eftir kosn-
ingarnar í vor?
Höfundur sækist eftir 1.-6. sæti
í prófkjöri Samfylkingarinnar í
Kópavogi.
Hverra fulltrúi eruð þér?
UMRÆÐAN
PRÓFKJÖR SAM-
FYLKINGARINNAR
ARNÞÓR SIGURÐSSON
Einstaklingur sem býður sig
fram til starfa á vettvangi
sveitarstjórnarmála má ekki
vera háður einum eða nein-
um. Allra síst fyrirtækjum eða
fjármagni.
H blaelgar ›
Hefurflúsé›
DV í dag
Síðustu
orð
Júlíu
Júlía Bergmanns-dóttir lést á mið-vikudaginn eftirlanga og erfiðabaráttu við krabba-mein. Skömmuáður en Júlía léstsvaraði hún spurn-ingum blaðamannsHelgarblaðs DV enhenni þótti mikil-
vægt að koma
reynslu sinni áframfæri öðrum til
aðstoðar.
Bls. 20–21
Flottustu pörinSTJÖRNUR MEÐ STJÖRNUM
DAGBLAÐIÐ VÍSIR 24. TBL. – 96. ÁRG. – VERÐ KR. 295
LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 2006
Helgarblað Friðrik Ómarætlar að taka
Eurovision
Danskar og þýskar buxnadragtir Verð 13.800 og 19.600
Bls. 32-33
Idol-stjarnan DavíðSmári Yfir sig ástfanginn af Maríusem er 10 árumeldri 30 kíló farin
Ragnheiður Guðfinna Opinskáum kynþokka íslenskra karla
Borgar-
fulltrúinn
Anna
Kristinsdóttir
JÁKVÆÐ LÍFSREYNSLAAÐ EIGA FATLAÐ BARN
Júlía
Bergmannsdóttir
Fædd 10. júní 1963
Dáin 25. janúar
2006
SIGGA OG SAMKYN-HNEIGÐIR ÁNÆGÐMEÐ HALLDÓR
Bls. 36
Bls. 64
Bls. 44–45
Bls. 26–27
Bls. 22–23
?
Júlía lýsti
dauðastríði
sínu áður
en krabba-
meinið
tók hana á
miðvikudaginn
helgar augl - 27.1.2006 20:36 Page 3