Fréttablaðið - 28.01.2006, Síða 26
28. janúar 2006 LAUGARDAGUR26
1 Fuglaflensu-sprauta. Fólk verður orðið
ansi skelkað yfir
fuglaflensufaraldin-
um og lyfjafyrirtæki
munu keppast um að
framleiða mótefni.
Hverjir verða tískustraumarnir í ár? Fólkið, bæk-
urnar, plöturnar, bíómyndirnar, tæknin, viðskipt-
in, maturinn, tai-chi og tequila í augað. Hér eru
15 heitustu tískufyrirbrigði ársins. Tekið saman af
Önnu Margréti Björnsson.
2Argentína. Þetta er nýjasti áfangastaður-
inn fyrir vel stæða
Íslendinga sem allir
virðast á leiðinni
þangað. Nautasteikur,
tangó, rauðvín, vina-
legt fólk og ótrúlegt
landslag. 3 Jafnvægisíþróttir. Fólk hættir að hamast jafn mikið í ræktinni og fer austrænu
leiðina. Tai-chi, jóga, pilates og
bosu-boltar koma sterkt inn.
4 Berlín. Ungt lista- og tón-listarfólk heldur áfram að flytja búferlum til Berlínar
þar sem listalífið, elektró-rokkið
og sköpunargleðin blómstra. Svo
er víst svo ódýrt að lifa þarna...
5Drykkir. Retro-drykkir snúa aftur. Heilsið upp á gamla kunningja eins og Malibu,
Archers og Campari. Kokkteill
með nafninu Tequila Suicide er
líka að slá í gegn ytra, en þar
drekkur maður tequila-skot,
sýgur salt upp í nefið og kreistir
lime í augað.
Heitt árið 2006
6Alvöru matur. Fusion eldhúsið er búið. Burt með skreytta diska og flókinn mat. Franskur klassískur matur með tilhneigingu til sveitamatar kemur í staðinn. New York Times kallar nýju stefn-
una „fine casual“. Veitingastaðir fara líka að breytast í þá átt að fólk
situr saman við stór borð. Sniðug leið til að hitta nýtt fólk.
7Útrás. Ísland verður áfram í sókn. Danmörk fer brátt að verða nýlenda Íslands. En
menn bíða spenntir eftir fyrstu
merkjum rekstrarárangurs ytra.
8Asía. Með geishu-mynd Rob Marshalls koma austurlensk áhrif aftur í tísku. Allt frá
fatnaði upp í innanhúsmuni og
naumhyggjulegan japanskan stíl.
9Tónlistin. Mammút gæti mögulega verið bjartasta vonin á árinu. Stjarna
Jakobínurínu mun þó halda
áfram að skína skært. Erlend-
is er það hljómsveitin Arctic
Monkeys sem er að gera allt
vitlaust. Rapp, hipp hopp og
danstónlist. Kemur aftur
sterk inn í bland við indí-
rokkið og elektróníkuna.
10 Podcasting. Nú getur þú hlaðið niður lögun-um þínum af i-podin-
um og útvarpað þeim á netinu.
Gæti hafið internet- útvarps-
bylgju sem kæmi til bjargar
íslensku útvarpi sem er upp til hópa
skelfilegt.
11Artífartí sjónvarpsþættir. Hnakkavæð-ing Sirkus fór með þjóðina. Í ár kemur inn sterk andspyrna við hnakkasjónvarp-
ið og ungt fólk vill fá gáfulegra efni. „Move over
Keflavík“ og hin sanna 101 Reykjavík valtar yfir
appelsínugula liðið. Sirkus barinn fer inn á Sirkus
sjónvarpið.
12Kvikmyndir. Broke-back Mountain er án efa mynd ársins en
Da Vinci Code mun fylgja fast
á hæla hennar. Tom Hanks í
hlutverki Roberts Langdon
lofar góðu.
13Rithöfundar. Andri Snær Magnason á eftir að gefa út mjög
athyglisverða bók innan skamms
með hárbeittri þjóðfélagsádeilu.
Stefán Máni og Eiríkur Guð-
mundsson munu líklega koma
með einhverja snilld á árinu.
14 Leikhús. Ólafur Egill Egilsson verður skær-asta stjarna ársins.
15Tískan. Kvenlegar kúrfur hafa aldrei verið heitari. Hönnuðir
eins og Yves St. Laurent, Roland
Mouret og Eley Kishimoto boða
allir þröngar flíkur í anda sjötta
áratugarins. Karlmenn fá sér
„flat top“ hárgreiðslu eins og sést
utan á nýjasta hefti I-D.