Fréttablaðið - 28.01.2006, Blaðsíða 35
LAUGARDAGUR 28. janúar 2006 5
Ímyndum okkur að við séum að
horfa undir dæmigerðan jeppa.
Undir bílnum, um það bil á milli
framsætanna, er gírkassinn og
fyrir aftan hann, oft aðeins til hlið-
ar, er millikassinn. Úr honum fara
tvö drifsköft. Annað í framhás-
inguna og hitt í þá aftari. Þar sem
drifsköftin tengjast hásingunum
eru stórar kúlur. Inni í þeim eru
mismunadrif sem gegna þríþætt-
um tilgangi: Miðla vélaraflinu til
hjólanna, gíra niður snúnings-
hraða og, síðast en ekki síst, leyfa
hjólunum að snúast mishratt, til
dæmis í beygju.
Án mismunadrifs væri nánast
ómögulegt að beygja bíl án þess
að brjóta eitthvað. Til að leyfa
hjólunum að snúast mishratt eru
mismunadrif hönnuð til þess að
dreifa togi vélarinnar jafnt á hjól-
in. Byrji annað hjólið á hásing-
unni að spóla, til dæmis á ís, þarf
ekki nema örlítið tog til að halda
áfram að spóla. Þar sem hjólin fá
alltaf jafnmikið tog er líklegt
að hitt hjólið snúist ekki. Það
þarf nefnilega meira tog til að
byrja að snúa hjólinu en til
að spóla á ís.
Jeppafólk og aðrir sem
ferðast mikið að vetri til
vita að það getur verið
erfitt að losna úr slík-
um aðstæðum. Þá
kemur driflæsingin
til sögunnar. Með því að ýta á rofa
innan í bílnum getur bílstjórinn
læst drifinu á þann hátt að hjólin
snúast jafnhratt, hvað sem á bját-
ar. Algengast er að pinni gangi inn
í drifið með aðstoð rafmagns eða
loftþrýstings, læsi því og komi í
veg fyrir að hjólin geti snúist óháð
hvoru öðru. Með öðrum orðum
eru öxlarnir á hjólunum tengdir
saman þannig að þeir snúast sem
einn.
Driflæsingar eru eingöngu
ætlaðar til aksturs við erfiðar
aðstæður, svo sem í ís, sandi eða
snjó, og flestir hafa fyrir sið að
nota þær eingöngu til að losa sig
úr festum eða komast yfir stutt-
an og erfiðan kafla og forðast að
beygja mikið. Akstur á malbiki
með læst drif er ekki ráðlegur
þar sem viðnám hjóla við jörðu er
mikið og kallar á að hjól geti snú-
ist mishratt.
Saab 9-3 Sport Sedan hlaut
hæstu einkunn fyrir öryggi
hjá bandarísku stofnuninni
Highway Loss Data Institute,
HLDI.
Í nýjustu skýrslu HLDI, þar sem
teknar eru fyrir 371 bílategundir
á bandarískum vegum á árunum
2002-2004, fær Saab 9-3 Sport
Sedan hæstu einkunn. Þetta er í
fyrsta skipti sem bíllinn er með í
árlegri úttekt á tryggingabótum,
sem gefin er út af HLDI.
,,Þetta er frábær fyrsta nið-
urstaða í HLDI-könnuninni fyrir
9-3 Sport Sedan,“ segir Thomas
Fritzon, verkfræðingur á sviði
öryggisþróunar hjá Saab. ,,Öflug-
ar þjófavarnar voru hannaðar í
þennan bíl frá upphafi og við ráð-
færðum okkur við sérfræðinga í
tryggingamálum á meðan á þró-
unarferlinu stóð. Öll þessi vinna
hefur skilað sér í niðurstöðunum
frá HLDI. Það er einnig ánægju-
legt að sjá að árekstraröryggi
okkar skuli áfram vera svona
árangursríkt á vegum úti þar sem
það skiptir mestu máli að vernda
raunverulegt fólk í raunveruleg-
um slysum.“
Saab 9-3 Sport Sedan fær
öryggisviðurkenningu
Eins og flestir aðrir sænskir
bílar þykir Saab 9-3 einstaklega
öruggur bíll.
Driflæsingar
eru hentugar
til að losa
bíla úr slæm-
um festum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VILHELM
HVAÐ ER... DRIFLÆSING?
X4 frumsýnir í dag nýja Möz-
du Speed 6.
Bílasalan X4 mun í dag frum-
sýna glænýja Mözdu Sport 6 sem
margir hafa beðið með þónokkri
eftirvæntingu. Speed 6 er vel
búinn og rúmgóður fjölskyldu-
bíll. Hann er fjórhjóladrifinn og
hefur þar að auki mjög stóra og
kraftmikla vél sem skilar heilum
274 hestöflum.
Frumsýningin mun standa frá
klukkan 13 til 17 í dag hjá X4
á Malarhöfða en meðal ann-
ars verður fólki boðið upp á að
reynsluaka bílnum.
Mazda Speed 6 frumsýnd
Mazda Speed 6 er kraftmikill fjöl-
skyldubíll sem verður frumsýndur hjá X4
á Malarhöfða í dag.