Fréttablaðið - 28.01.2006, Side 36
[ ]
Íslendingar hafa ávallt gaman
af því þegar erlendir ferða-
menn kunna að meta fegurð
Íslands. Snæfellsjökull er einn
þeirra staða sem tímaritið
New Yorker segir ferðamenn
verða að upplifa.
Bandaríska tímaritið New Yor-
ker birti á dögunum lista yfir þá
tíu staði í heiminum sem ferða-
menn eru sagðir verða að skoða. Á
þeim lista er Snæfellsjökull talin
besta upplifunin sem ferðamenn
geta fengið og trónir í efsta sæti
á þessum góða lista. Samkvæmt
New Yorker má enginn láta Snæ-
fellsjökul fram hjá sér fara, þar
sé hægt að láta sér líða vel uppi á
jökli og renna sér niður á skíðum
á eftir.
Aðrir staðir á topp tíu lista
New Yorker eru Yap í Míkrónesíu,
Bray í Berkshire, þar sem blaðið
segir að hægt sé að fá sniglahafra-
graut og beikonís. Svo má nefna
Tókýó þar sem hægt er að eyða
öllum gjaldeyrinum án þess að fá
samviskubit, Boca Paila á Yucat-
anskaga, Glasgow í Skotlandi þar
sem hægt sé að dansa á staðnum
King Tut Wah Wah Hut, þar sem
Oasis urðu frægir, Macao með sín
spilavíti, fjallið Kilimanjaro og
Gobieyðimörkin. Heimild www.
west.is. ■
Snæfellsjökull
efstur á topp tíu lista
Siglingar geta verið skemmtilegur ferða-
máti. Það er afslappandi að hefja ferðalög
til annarra landa á því að hafa það notalegt
um borð í skipi í einhverja daga.
Snæfellsjökull hefur löngum veitt fagra sýn
frá höfuðborg og nágrenni.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Tímaritið New Yorker setur Snæfellsjökul í efsta sæti á topp tíu lista sem ferðamenn verða
að sjá.
Ryanair hefur kosið að lækka
verð á flugmiðum sínum um
níu prósent. Á móti hefur
flugfélagið tekið upp gjald á
innritaðan farangur. Farþegar
með handfarangur greiða því
lægsta verð fyrir flugmiðann.
Lággjaldaflugfélagið Ryanair hefur
tekið upp nýtt bókunarkerfi sem
hefur þann kost að almenn fargjöld
lækka en á móti kemur að farþegar
þurfa að greiða gjald fyrir að tékka
inn farangur. Þeir sem eingöngu
eru með handfarangur þurfa ekki
að greiða neitt aukalega.
Ryanair hefur verið í miklum
vexti síðastliðin ár. Með því að
skera niður ýmsa þjónustu hjá
flugfélaginu, eins og mat og drykk
um borð, hallandi sæti, glugga-
hlera, teppalagða ganga, sætisborð
og annað slíkt, hefur Ryanair tek-
ist að lækka miðaverð umtalsvert.
Hið nýja fyrirkomulag er enn einn
liðurinn í sparnaðarstefnu fyrir-
tækisins.
Með nýju breytingunum verður
verð á flugmiða lækkað sem nemur
um níu prósentum. Á móti kemur að
þeir farþegar sem ferðast með eina
tösku eða fleiri þurfa að greiða
gjald sem er tæpar 300 íslenskar
krónur. Með þessu telur flugfélag-
ið að farþegum sé ekki mismunað
heldur greiði hver og einn fyrir þá
þjónustu sem er notuð.
Um miðjan mars verður öllum
farþegum Evrópusambandsins
heimilað að innrita sig í flug
gegnum netið, að því gefnu að
eingöngu er ferðast með hand-
farangur. Með þessu móti geta
farþegar komist hjá biðröðum,
bæði við innritunarborð og brott-
fararhlið.
Áætlað er að 25 prósent far-
þega Ryanair ferðist eingöngu
með handfarangur, um helming-
ur með eina tösku og um 25 pró-
sent með tvær töskur. Miðað við
spá um að flugfélagið muni fljúga
með 42 milljónir farþega á kom-
andi ári eru tekjur Ryanair áætl-
aðar 52,5 milljónir punda fyrir
greiðslur farþega á einni tösku og
sömu upphæð frá þeim sem hafa
meðferðis tvær töskur.
Gjald fyrir farangur
Ryanair er sífellt að leita leiða til að skera
niður verð á flugmiðum félagsins. Flugfé-
lagið lækkaði nýverið miðaverð og tekur
þess í stað upp gjald á þá farþega sem
innrita farangur.
Bryndís Bjarnadóttir bjó um
skeið í Brussel í Belgíu. Hún
segir borgina vera himnaríki
fyrir sælkera og súkkulaðilykt-
ina liggja í loftinu.
Bryndís Bjarnadóttir bjó í Brussel
í eitt og hálft ár og starfaði hún
meðal annars í sjálfboðavinnu
hjá Human Rights Watch. Bryndís
segir borgina hafa að mörgu leyti
komið sér á óvart þegar hún flutti
þangað. „Stór hluti borgarinnar
er dálítið grár en gamli bærinn
hjá Grand Palace er mjög falleg-
ur. Þar eru fallegar byggingar
og arkitektúr og mikið af versl-
unum og veitingastöðum,“ segir
Bryndís. „Svo er súkkulaðilyktin
úti um allt. Þetta er
algjörlega borg fyrir
sælkera af guðs náð,
sem ég er. Í Brussel
finnur maður æðislega
veitingastaði og alvöru
súkkulaði, þetta dökka
góða súkkulaði. Fyrir
fólk eins og mig sem
eru miklir matgæðing-
ar er þessi borg himn-
asæla.“
Bryndís setti saman
lista yfir veitingastaði
í Brussel sem eru í uppáhaldi hjá
henni ásamt því að mæla með
nokkrum ferðum á markaði og
á verslunargötur. Sérstaklega
mælir hún þó með að fólk geri
sér ferð til Antwerp-
en sem er í nágrenni
Brussels. Lestarferð
til Antwerpen tekur
um klukkustund
og um 40 mínútur í
akstri. „Antwerpen er
rosalega sjarmerandi
borg. Þar er mikill
uppgangur í listum
og menningu, mikið
um listagallerí og
skemmtilega klúbba.
Maður finnur hvernig
allt er yngra í anda í Antwerpen
og það er mjög skemmtilegur
staður fyrir þá sem eru menn-
ingarlega sinnaðir.“
johannas@frettabladid.is
Himnaríki fyrir sælkera
VEITINGARSTAÐIR SEM VERT
ER AÐ PRÓFA
● Chez Marie á Plaze Flagéy
● Le Idiot del Village. Er rétt hjá
Sablon torginu.
● Aux Armes de Bruxelles. Er rétt hjá
Grand Place, þar má fá dæmigerð-
an belgískan mat og mjög góður
skelfisk
● Comme Chez Soi Gestron. Rétt við
lestarstöðina Garde de Midi
● Le Maison de cynge við Grand
Plaze. Frægur veitingastaður sem
Karl Marx sótti mikið. Margir frægir
leikarar leggja líka leið sína þangað.
Er í dýrari kantinum.
BRYNDÍS MÆLIR MEÐ
● Ferð á antíkmarkaðinn
á Sablon
● Plaze Chatelaine sem
er grænmetis- og blóma-
markaður
● Dýru verslanirnar má
finna á Touisoni d´or
Chatelaine
● Ódýru verslanirnar má
finna á Rue de Ixelles.
● Ferð til Antwerpen
Bryndís Bjarnadóttir
bjó í Brussel um
skeið og deilir með
lesendum uppáhalds
veitingastöðunum
sínum í borg súkkul-
aðis og skrifinnsku.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA