Fréttablaðið - 28.01.2006, Blaðsíða 50
28. janúar 2006 LAUGARDAGUR20
Osim
fótanuddtæki
Áður
35.0
00 k
r
Nú 2
9.75
0 kr
Bjóð
um l
éttgr
eiðsl
urVISSIR ÞÚ...
...að fyrsta teiknimyndin var Fant-
asmagorie eftir franska leikstjórann
Émile Cohl? Myndin kom út 1908.
...að ein af fyrstu teiknimyndunum
með hljóði var Steamboat Willie
sem kom út árið 1927? Aðalhlut-
verkið var í höndum hins eina sanna
Mikka Músar.
...að árið 1931 kom út fyrsta teikni-
myndin í fullum litum (Techni-
colors)? Það var Flowers and Trees
úr smiðju Walt Disney.
...að Disney á líka heiðurinn að
fyrstu víðóma teiknimyndinni? Hún
kom út árið 1941 og hét Fantasia.
...að frá 1937, þegar Mjallhvít og
dvergarnir sjö litu dagsins ljós, hefur
Disney gefið út 44 handteiknaðar
teiknimyndir í fullri lengd?
...að þær verða ekki fleiri því Disney
hefur lokað allri aðstöðu sinni sem
ætluð var til þessara verka? Nú eru
allr myndir unnar í tölvu.
...að önnur leið, svokölluð Claym-
ation, eða leirmynd, er eignuð Will
Vinton?
...að þá eru tekin myndskeið af
leirpersónunum, leikmynd o.s.frv,
og stoppað milli ramma og leirnum
breytt þannig að persónur sjást
hreyfast þegar kvikmyndin er sýnd?
...að venjuleg kvikmynd sýnir 24
myndramma á sek?
...að þegar gera á leirmynd er yfirleitt
ekki stoppað nema milli annars
hvers ramma?
...að þrátt fyrir það þarf 64.800
stopp til að búa til 90 mín mynd?
...að þessi vinnuaðferð hefur skilað
myndum eins og Chicken Run, stutt-
myndum um Wallace & Gromit (sem
unnið hafa til Óskarsverðlauna)
og meistarastykki Tim Burtons
Nightmare Before Christmas og The
Corpse Bride.
Hvönn við Þingvallavatn að vetrarlagi.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SJÓNARHORN