Fréttablaðið - 28.01.2006, Side 54
Hvað sem ykkur finnst um Johnny Cash þá má hann eiga það að hann var auð-
mjúkur og heiðarlegur þegar
hann dó.
Hann hafði djúpa, magn-
þrungna en brothætta söngrödd
sem ekki allir þola að hlusta á.
Hún var þó engri annarri lík og
gaf honum svo sterkt séreinkenni
að það er ómögulegt að ruglast á
honum og öðrum. Drungi hennar
er líka slíkur að það færir aukna
dýpt í stórkostlega texta hans sem
voru oftast í söguformi. Helstu
umfjöllunarefni Cash voru morð,
ást og trú á Guð.
Þó svo að textarnir hafi oft
verið skáldskapur og fjallað um
hluti sem hann hafði kannski ekki
upplifað af eigin raun var hann
alltaf mjög sannfærandi sögu-
maður. Eins og maður sem hafði
fallið til heljar og flúið til baka til
þess eins að segja sögu sína.
Að vissu leyti var það einmitt
það sem hann gerði. Um það
ferðalag fjallar einmitt kvik-
myndin Walk the Line, sem skart-
ar Joaquin Phoenix í hlutverki
söngvarans. Sú mynd segir sögu
Cash frá árinu 1944, þegar Cash
var 12 ára, en það ár dó annar
eldri bróðir hans af slysförum.
Sá viðburður átti eftir að setja
langvarandi skugga á sálaríf
hans.
Í myndinni er stuttlega farið
yfir það hvernig J. R. Cash, eins
og hann var kallaður fyrstu 23
ár ævi sinnar, varð að atvinnu-
tónlistarmanninum Johnny Cash.
Það gerðist eftir að hann náði að
fanga athygli Sams Phillips, upp-
tökustjóra og eiganda Sun-útgáf-
unnar í Memphis árið 1955. Það
var uppástunga Sams að skipta út
upphafsstöfum John Ray í John-
ny. Í fyrstu var Cash ekkert sér-
lega hrifinn af hugmyndinni, þar
sem honum fannst viðurnefnið
Johnny of barnalegt.
Aðalþráður myndarinnar er
þó ást hans á söngkonunni June
Carter, sem er leikin af Reese
Witherspoon, og amfetamínfíkn-
in frá tónleikaferðalögum sínum
um Bandaríkin sem gerði honum
lífið leitt. Það er farið ansi snar-
plega yfir söguna, margt einfald-
að og öðru hreinlega sleppt.
Johnny og June
Áður en Johnny kynntist June
hafði hann dáðst að söng hennar
þegar hann var í bandaríska flug-
hernum á tímum Kóreustríðsins.
Þau kynntust svo í júlí árið 1956 á
Grand Ole Opry, vinsælli tónleika-
röð Nashville Ryman Auditorium
sem var útvarpað beint viku-
lega. The Carter Sisters höfðu
verið fastur liður á dagskránni
í þónokkurn tíma þegar Johnny
Cash fékk boð um að koma fram,
enda hafði fjölskylda þeirra þá
verið þekktir skemmtikraftar í
rúman áratug. Þá voru þau bæði
gift öðrum. Hún var þá gift Carl
Smith sem var einn vinsælasti
kántrísöngvari Bandaríkjanna.
Hann var giftur Vivian Liberto,
elskunni sem hann hafði skrifað
daglega meðan hann starfaði á
herstöð í Þýskalandi við það að
hlusta á útvarpssendingar rúss-
neska hersins. Bæði áttu þau líka
dætur, hann tvær og hún eina.
Þó að þau hafi bæði orðið hrif-
in við fyrstu kynni, þá höguðu
þau sér nokkuð sómasamlega í
lengri tíma. Fyrst og fremst var
það ævilöng vinátta sem hófst
við þeirra kynni. Saga þeirra er
vissulega mögnuð og gott efni í
kvikmynd.
Johnny og amfetamínið
Önnur ást í lífi Cash var amfetam-
ín. Sagan segir að þau kynni hafi
átt sér stað þegar söngvarinn var
á tónleikaferðalagi með Jerry Lee
Lewis, Carl Perkins og Elvis sem
átti að hafa notað efnið reglulega.
Tvennum sögum fer reyndar af
því máli. Hvernig sem því líður
þá varð Cash háður þeim, og var
kominn það langt ofan í gryfjuna
að hann gat ómögulega haldið út
heilan dag án þeirra, hvað þá stig-
ið á svið.
Neysla Cash kostaði hann
hjónabandið, sem var þá hvort
eð er orðið þurrt og ástarlaust.
Vivian var líka alla tíð öfundsjúk
út í óvenjulega vináttu Johnny og
June sem komu mikið fram á tón-
leikum saman, og kannski með
réttu.
Það sem verra var að neyslan
kostaði hann nánast ferilinn.
Hann átti erfiðara og erfiðara með
að viðhalda vinsældum sínum og
ekki hjálpaði til að hann var hand-
tekinn í Sao Paulo í október 1965
með amfetamín og verkjalyf falin
í gítar sínum. Eftir að hafa ráfað
um blindur í nokkur ár í ruglinu
var það loksins June Carter sem
vísaði honum réttu leiðina. Með
hennar hjálp náði hann að slíta
sig frá amfetamíninu og finna
Guð á nýjan leik. Cash hafði feng-
ið mjög strangt kristilegt uppeldi
og var alla sína ævi mjög trúað-
ur maður. Fyrir honum var það
því ekkert nýtt að sækja styrk til
æðri máttarvalda.
Myndin endar þannig á
hápunkti á ævi Johnny Cash, eftir
að hann nær bata við fíkn sinni,
í febrúar 1968 nokkrum dögum
eftir að hann tók upp metsöluplöt-
una Live in Folsom Prison, þegar
hann biður June Carter um að
giftast sér upp á sviði á tónleik-
um í London.
Hvað gerðist svo?
Í myndinni er stundum farið
frjálslega með staðreyndir, til
dæmis um tilurð lagsins sem
myndin er nefnd eftir, I Walk the
Line. Þar er látið eins og Cash hafi
samið lagið eftir skammarræðu
frá June sem átti að hafa verið
langþreytt á drykkjuskap kapp-
ans. En svo var ekki, því Cash var
þegar búinn að semja og gefa út
lagið þegar hann hitti June fyrst
á Grand Ole Opry. Það er heldur
ekkert minnst á þá staðreynd að
þegar hann tók upp tónleika sína
í Folsom-fangelsinu, hafði hann
þegar haldið tvenna tónleika í San
Quentin-fangelsinu.
Myndin endar því á ánægju-
legum kafla í ævi söngvarans
sem gefur áhorfandanum ham-
ingjusaman endi. En líf Cash
var enginn dans á rósum eftir
að hann og June giftust loksins í
mars 1968. Ferill hans fór hnign-
andi og plöturnar seldust minna
og minna. Í þrjú ár stjórnaði
hann sínum eigin sjónvarpsþætti
fyrir ABC-sjónvarpsstöðina sem
mörgum aðdáendum kappans
þótti rýra ímynd hans. Hann
byrjaði aftur að drekka og nota
eiturlyf skömmu eftir að hann
gaf út fyrstu ævisögu sína, Man
in Black árið 1975. Í það skiptið
var hann í neyslu í átta ár áður en
hann sneri við blaðinu.
Á þeim tíma sem hann var kom-
inn með nóg af tónlist tók hann
upp á því að leika í kvikmyndum
en fékk aðallega bara hlutverk í
sjónvarpsmyndum. Fyrsta hlut-
verk hans í Hollywood-mynd var
árið 1971 þar sem hann lék á móti
Kirk Douglas í myndinni A Gun-
fight.
Síðustu árin
Vinsældir hans fóru það mikið
dvínandi á níunda áratugnum að
Columbia-útgáfan ákvað að bjóða
honum ekki nýjan samning eftir
að fyrri samningur hans rann út
árið 1986. Þá hafði Cash gefið út
plötur undir merkjum fyrirtækis-
ins í 28 ár. Hann samdi við Mer-
cury-útgáfuna, en sá samningur
entist aðeins í 7 ár og jók ekki á
hróður söngvarans. Það var ekki
fyrr en hann kynntist upptöku-
stjóranum Rick Rubin árið 1994
að ferill hans öðlaðist nýtt líf. Sá
hafði m.a. unnið sér það til frægð-
ar að hafa gert plötur með Red
Hot Chili Peppers. Cash samdi
við American-útgáfuna og saman
gerðu þeir fjórar plötur sem kom
yngri hlustendahóp aftur í kynni
við söngvarann. Cash var m.a.
tilnefndur til MTV-verðlaunanna
fyrir myndband lagsins Hurt, sex
mánuðum áður en hann dó.
Heilsa Cash byrjaði að gefa sig
á níunda áratugnum. Hann lagð-
ist oft inn á spítala, með alls kyns
kvilla. Allt frá blæðingu í görn-
um, hjartaaðgerða og lungnasjúk-
dóma. Spítalavistir voru fastur
liður síðustu tíu árin sem hann
lifði. Hann var þó iðinn við vinnu
þess á milli, hvort sem það var
hljóðversvinna eða við tónleika-
hald.
Það kom því mörgum á óvart
þegar June lést á undan eigin-
manni sínum. Það greindist leki
í annarri hjartaloku hennar í okt-
óber 2002 og hún dó svo sjö mán-
uðum síðar eftir að hafa gengist
undir hjartaaðgerð í von um að
bjarga henni. Eftir aðgerðina féll
hún í dá og nokkrum dögum síðar
var það staðfest að hún hefði hlot-
ið það mikinn heilaskaða að hún
myndi aldrei vakna aftur.
Það var Cash sem þurfti að
heimila læknum að taka vélarnar
sem héldu í henni lífi, úr sam-
bandi. Hann var gjörsamlega
eyðilagður maður enda höfðu þau
eytt flestum stundum saman frá
því að þau giftu sig. Nokkrum
dögum síðar krafðist hann þó að
halda áfram að vinna. Fjórum
mánuðum síðar lést hann með
brostið hjarta eftir að hafa verið
lagður inn á spítala vegna öndun-
arerfiðleika.
biggi@frettabladid.is
28. janúar 2006 LAUGARDAGUR34
Sannleikurinn um
svartklædda manninn JOHNNY OG JUNE June Carter hjálpaði Cash að takast á við vímuefnafíkn sína sem
fór margoft úr böndunum.
NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES
Á næstunni verður kvikmyndin I Walk the Line
frumsýnd. Hún fjallar um ævi og ástir kántrí-
söngvarans Johnny Cash. Birgir Örn Steinarsson
fer stuttlega yfir ævi söngvarans.
JOHNNY CASH Cash
hljóðritaði vinsælasta
lag sitt, Ring of Fire,
árið 1963.
JOHNNY CASH Það skiptust á skin og skúrir í einkalífi þessa mikla kántríkappa, eins og kemur fram í myndinni Walk the Line.
NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES