Fréttablaðið - 28.01.2006, Síða 63
LAUGARDAGUR 28. janúar 2006
fia› ver›ur heitt á könnunni hjá mér og
veitingar me› milli ellefu og eitt á
kosningaskrifstofunni í Borgartúni 6.
Komdu og spjalla›u yfir sí›búnum
morgunver›i e›a mátulegu hádegissnarli.
KRINGLUKRáIN
fyrir leikhúsgesti
Tilboðsmatseðill
KRINGLUK ÁIN
Kjósum talsmann þeirra sem minna mega sín.
Kjósum Brynjar Fransson
í 3-6 sæti í prófkjöri Framsóknarflokksins í dag
í anddyri Laugardalshallar.
Opið öllum Reykvíkingum 18 ára og eldri.
Stuðningsfólk.
Tvær sýningar verða opnaðar
í dag í Kling og bang. Þar eru
á ferðinni myndlistarkonurnar
Ingibjörg Magnadóttir og Kristín
Helga Káradóttir.
Ingibjörg sýnir á jarðhæð gall-
erísins skúlptúra, málverk og eitt
myndbandsverk. Skúlptúarnir
eru settir saman úr margvísleg-
um ilmvatnsglösum. Ingibjörg
nefnir sýningu sína „Obsession,
(Spreyjar)“, og vísar þar til þess
að ilmvötn bera gjarnan nöfn til-
finninga.
Í kjallara Kling og Bang sýnir
síðan Kristín Helga þrjú mynd-
bandsverk, og nefnir hún sýningu
sína „Hérna niðri“. Í einu verkana
brýst kona yfir opið svæði. Það er
enginn sjóndeildarhringur, engin
kennileiti eða tilvísanir til að bera
kennsl á landslagið. Okkur er sýnd
mannvera á stöðugri hreyfingu,
sem hleypur slitrótt á miðju sviðs-
ins, meðan myndavélin hreyfist
ört til að fylgja henni eftir.
Gallerí Kling og bang er á
Laugavegi 23. Sýningar þeirra
Ingibjargar og Kristínar Helgu
standa til 19. febrúar. ■
Glös tilfinninganna
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
JANÚAR
25 26 27 28 29 30 31
Laugardagur
■ ■ KVIKMYNDIR
16.00 Kvikmyndasfn Íslands sýnir
bandarísku kvikmyndina Greed eða
Græðgi eftir Erich von Stroheim
frá árinu 1924. Sýnt er í Bæjarbíói,
Strandgötu 6, Hafnarfirði.
■ ■ TÓNLEIKAR
22.00 Hljómsveitirnar Dr.
Spock og Dikta leika fyrir dansi í
Stúdentakjallaranum.
23.00 Hljómsveitin Trabant heldur
tónleika á Oddvitanum á Akureyri.
Einnig kemur hinn stórkostlegi
Hermigervill fram.
■ ■ OPNANIR
14.00 Ingiberg Magnússon
myndlistarmaður opnar sýningu í
Grafíksafni Íslands, sal Íslenskrar
grafíkur í Hafnarhúsinu, Tryggvagötu
17. Gengið er inn hafnarmegin.
■ ■ SKEMMTANIR
22.00 Trúbadorarnir Gotti og
Eisi spila í Hressingarskálanum til
klukkan 1. Dj Johnny þeytir skífum
eftir það.
23.00 Hljómsveitin Upplyfting
heldur fjörinu uppi á Kringlukránni
Atli skemmtanalögga í Yello,
Keflavík
Suzy og Elvis verða á Café Oliver,
að sjálfsögðu í sparifötunum.
Hljómsveitin Þjóðviljinn leikur á
lokadansleiknum á Búðarkletti í
Borgarnesi.
Hljómsveitin Papar heldur stórdans-
leik í Sjallanum á Akureyri og Matti
verður í feikna stuði. Pétur spilar á
Dátanum.
Hinn eldhressi Hermann Ingi
jr. spilar og syngur á Catalinu í
Kópavogi.
■ ■ FYRIRLESTRAR
14.00 Magnús Þorkell
Bernharðsson stjórnmála-
fræðingur heldur erindi í
Reykjavíkurakademíunni, Hringbraut
121, 4. hæð, um pólitísk átök í
Mið-Austurlöndum og veltir fyrir
sér afskiptum og/eða afskiptaleysi
fræðimanna af þeim átökum.
15.00 Á fræðslufundi, sem
Grikklandsvinafélagið Hellas heldur í
Kornhlöðunni við Bankastræti mun
Jón Þorvarðarson stærðfræðingur
kynna nýja bók sína, sem heitir „Og
ég skal hreyfa jörðina. Forngrísku
stærðfræðingarnir og áhrif þeirra“.
■ ■ SAMKOMUR
14.00 Kínverskur drekadans
og ganga verður farin frá Hlemmi
niður Laugaveginn og að Ráðhúsinu
í tilefni kínverska nýársins. KIM og
Félag Kínverja á Íslandi standa fyrir
dansinum og göngunni, en Unnur
Guðjónsdóttir leiðir herlegheitin. Í
Ráðhúsinu verður eitt og annað til
skemmtunar.
16.00 Kínaklúbbur Unnar og
Gullkúnst Helgu bjóða almenningi
upp á áramótauppákomu vegna
kínverska nýársins, árs hundsins,
á Laugavegi 13. Skemmtiatriði og
tedrykkja með smákökum.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.