Fréttablaðið - 05.04.2006, Blaðsíða 14
14 5. apríl 2006 MIÐVIKUDAGUR
N‡ir tímar í starfsmenntun verslunarfólks: Emil B. Karlsson, SVfi-Samtök verslunar og fljónustu
Education in the danish retail sector and future challenges: Gorm Johansen, Menntará›gjafi hjá
Dansk handel & Service
Samstarf skóla og atvinnulífs í Danmörku (danska): Herdis Poulsen, varaform. HK Handel í Danmörku
N‡ námsskrá fyrir verslunar- og fljónustugreinar: Ólafur Jónsson, ritstjóri námsskrár um Starfsnám
fljónustugreina
Verslunarfagnám og n‡li›afræ›sla: Hildur Fri›riksdóttir, verkefnisstjóri í Verzlunarskóla Íslands
Diplómanám í verslunarstjórnun og vi›skiptafræ›i me› áherslu á smásölu: Geirlaug Jóhannsdóttir,
verkefnisstjóri á Vi›skiptaháskólanum á Bifröst.
Fundarstjóri: Stefanía Magnúsdóttir varaforma›ur VR
Skráning hjá svth@svth.is e›a í síma 511 3000
N‡ir tímar í verslunarmenntun
Fundur á Grand Hótel 6. apríl kl. 8:15 – 10:00
Fylgist me› stærstu breytingu
í starfsmenntun á Íslandi
Fundurinn er öllum opinn sem hafa áhuga á n‡jungum í starfsmenntun
E
in
n
t
v
e
ir
o
g
þ
r
ír
3
62
.0
12
ALLT SEM fiIG VANTAR ER Á VISIR.IS/ALLT
n‡ vöru- & fljónustu-
skrá á visir.is
SVEITARSTJÓRNARMÁL Utankjör-
fundaratkvæðagreiðsla vegna
sveitastjórnarkosninganna sem
fara fram 27. maí hófst mánudag-
inn 3. apríl.
Á vef félagsmálaráðuneytisins
er athygli kjósenda vakin á því að
framboðsfrestur hafi ekki runnið
út þó atkvæðagreiðsla sé hafin.
Fer hún þannig fram að kjósandi
stimplar eða ritar á kjörseðil bók-
staf þess lista, þegar um lista-
kosningu er að ræða, sem hann
vill kjósa og má jafnframt geta
þess hvernig hann vill hafa röð-
ina á listanum. - sdg
Sveitarstjórnarkosningar:
Atkvæði greidd
utan kjörfundar
Velti bíl Maður ók út af vegi við Ytri-
Bægisá í Öxnadal aðfaranótt þriðjudags
og velti bíl sínum. Ma[urinn meiddist
ekki. Grunur leikur á ölvun.
Stálu fartölvu Vegfarandi tilkynnti
um innbrot í fyrirtæki í Keflavík rétt
eftir miðnætti í fyrrinótt. Sá hann tvo
dökkklædda menn á hlaupum frá
innbrotsstað og í ljós kom að þeir höfðu
stolið fartölvu. Ekki er vitað hverjir þarna
voru að verki.
LÖGREGLUFRÉTTIR
VARNARMÁL Yfirmaður bandarísku
strandgæslunnar, Thomas H. Coll-
ins aðmíráll, flaug til Íslands
nýlega til skyndifundar við Georg
Lárusson, forstjóra Landhelgis-
gæslunnar, og háttsetta embættis-
menn frá dóms- og kirkjumála-
ráðuneyti og utanríkisráðuneyti.
Sendiherra Bandaríkjanna á
Íslandi og yfirmaður Varnarliðs-
ins sátu fundinn.
Rætt var um samvinnu á milli
Landhelgisgæslu Íslands og
bandarísku landhelgisgæslunn-
ar. Aðmírállinn, sem er einn af
þremur æðstu flotaforingjum
Bandaríkjanna, var hér síðast í
sumar og hefur fundað þrisvar
með forstjóra Landhelgisgæsl-
unnar á liðnu ári. Tilgangur fund-
arins nú, samkvæmt fréttatil-
kynningu, var að auka viðbúnað
gegn hryðjuverkum og smygli,
ásamt samvinnu í þjálfun og
björgun.
Inntir eftir mikilvægi fundar-
ins og hvort íslensk stjórnvöld
bindi miklar vonir við samstarf
við bandarísku strandgæsluna
neituðu Georg Lárusson, Stefán
Eiríksson, skrifstofustjóri í dóms-
og kirkjumálaráðuneytinu, og
Bjarni Vestmann frá varnarmála-
skrifstofu utanríkisráðuneytisins,
að svara. Björn Bjarnason, dóms-
og kirkjumálaráðherra, hefur ekki
svarað fyrirspurnum Fréttablaðs-
ins um málið. - shá
Fundað um samstarf í björgunarmálum:
Leynd hvílir yfir
fundi með aðmírál
BORGARMÁL „Lagning Sundabraut-
ar er algjört forgangsverkefni í
okkar augum og við teljum okkur
þurfa tryggingu fyrir því að fjár-
magn til að leggja hana alla leið
liggi fyrir áður en verkið hefst,“
segir Dagur B. Eggertsson, for-
maður skipulagsráðs Reykjavík-
urborgar. Samfylkingin kynnti
tillögur sínar um Sundabraut
fyrir íbúum Grafarvogs fyrir
skömmu en þar kom fram að
meginkrafa þeirra verður að
Sundabraut verði lögð alla leið
upp á Kjalarnes og þræði alfarið
framhjá fjölmennum íbúðahverf-
um með öllum tiltækum ráðum,
þar á meðal með hugsanlegri
jarðgangnagerð. - aöe
Samfylkingin kynnir tillögur fyrir íbúum Grafarvogs:
Sundabraut fari alla leið
Í Fréttablaðinu á mánudaginn var farið
rangt með nafn framkvæmdastjóra
Hjálparstarfs kirkjunnar, en hann heitir
Jónas Þórir Þórisson.
LEIÐRÉTTING
MÁLIN RÆDD Björn Bjarna-
son dómsmálaráðherra og
Georg Lárusson, forstjóri
Landhelgisgæslunnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
DAGUR B. EGGERTSSON
Oddviti Samfylkingarinnar
á fundi í Borgarholtsskóla.