Fréttablaðið - 01.05.2006, Page 10
10 1. maí 2006 MÁNUDAGUR
Björn Bjarki Þorsteins-
son bæjarfulltrúi er
nýr forystumaður
sjálfstæðismanna í
hinu nýja nafnlausa
sveitarfélagi í Borg-
arfirðinum. Hann
skipaði annað
sæti á lista flokks-
ins í Borgarbyggð í
síðustu kosningum
en tekur nú við forystuhlutverkinu af
Helgu Halldórsdóttur sem ákvað að
draga sig í hlé. „Það er mikill hugur í
okkar fólki og við erum með vel mann-
aðan lista af fólki víða að úr héraðinu,“
segir hann.
Sjálfstæðismenn í Borgarbyggð
hafa verið í meirihlutasamstarfi með
L-listanum undanfarin tvö kjörtímabil
og lætur Björn Bjarki vel af samstarfinu.
Hann segir flokkinn þó ganga óbundinn
til kosninga. „Við viljum þó eindregið
halda Páli Brynjarssyni áfram sem
bæjarstjóra.”
Af lykilmálefnum á komandi kjör-
tímabili nefnir Björn Bjarki fræðslumálin
en í nýju sveitarfélagi verða sex grunn-
skólar sem hann vill að verði áfram
starfræktir undir einni fræðslunefnd.
„Svo eru það málefni aldraðra, það
þarf að stækka dvalarheimilið og fjölga
hjúkrunarrýmum og almennt bæta kjör
aldraðra eftir því sem hægt er.“
Björn Bjarki segir D-listann ekki
í neinni loforðasamkeppni við aðra
flokka um framkvæmdir á næsta kjör-
tímabili. „Við lítum á það sem lykilatriði
í nýju sveitarfélagi að menn upplifi
sig sem eina heild og ávinni sér traust
íbúanna,“ segir hann.
Björn B. Þorsteinsson D-lista:
Traust íbúanna
er lykilatriði
Sveinbjörn Eyjólfsson
forstöðumaður hefur
verið oddviti í Borg-
arfjarðarsveit á yfir-
standandi kjörtímabili
en tekur nú að sér
forystuhlutverkið á
lista framsóknar-
manna í hinu nýja
sveitarfélagi í Borg-
arfirði. Hann telur
að meginverkefni nýrrar sveitarstjórnar á
komandi kjörtímabili verði að móta nýtt
sveitarfélag. „Við þurfum öll að leggja
okkur fram um að búa til skemmtilegt
samfélag,“ segir hann.
Skipulagsmál verða einnig áberandi
að mati Sveinbjarnar enda eru þau mis-
jafnlega langt komin í sveitarfélögunum
fjórum sem sameinast. „Það tekur tíma
að samræma þessi mál og enn fremur
þjónustugjöld sem eru mismunandi.“
Framsóknarmenn í Borgarbyggð
hafa verið í minnihluta í sveitarstjórn
undanfarin tvö kjörtímabil og á því vill
Sveinbjörn sjá breytingar. „Við höfum
áhyggjur af því að D-listi og L-Listi hafi
ákveðið að halda áfram samstarfi og
halda okkur þar með úti. Við stefnum
því ótrauð á að ná hreinum meirihluta í
kosningunum og treystum á að óháðir
kjósendur fylki sér um B-listann. Það er
annað hvort við eða þeir og auðvitað
erum við í þessari baráttu til að hafa
völd og áhrif.“
Sveinbjörn segir að kjósendur verði
að átta sig á því að aukist ekki fylgi B-
listans muni D-listi og L-listi taka saman
höndum á ný. „Og þá verður þetta bara
eins og það hefur verið í Borgarbyggð
undanfarin tvö kjörtímabil.“
Sveinbjörn Eyjólfsson B-lista:
Kominn tími
til að breyta
Finnbogi Rögnvalds-
son bæjarfulltrúi fer
fyrir Borgarlistanum
í nýja sveitarfélaginu
í Borgarfirði. Hann
var í forystu fyrir
Borgarbyggðarlistann
í Borgarbyggð við
síðustu kosningar.
„Það eru auðvitað
talsverðar breytingar
á skipan listans, enda eiginlega um nýtt
framboð að ræða,“ segir Finnbogi. Góð
sátt er um skipan listans að hans sögn
enda hafi verið mikið og gott samstarf
milli fólks í sveitarfélögunum fjórum
fyrir sameininguna.
Hann gerir frekar ráð fyrir að listinn
vilji halda áfram meirihlutasamstarfi við
Sjálfstæðisflokkinn sem verið hefur í
Borgarbyggð, verði úrslit kosninganna á
þann veg.
Um megináherslumál listans segir
hann að skipulags- og samgöngumál
verði ofarlega á blaði og nefnir þar
sérstaklega breytingar á legu þjóðvegar
eitt um sveitarfélagið.
Auk þess segir hann að samskipti
ríkis og sveitarfélaga hljóti að verða
fyrirferðarmikil á kjörtímabilinu. „Það
þarf að endurskoða frá grunni tekju-
stofna sveitarfélaga og verkaskiptingu
þeirra og ríkisins,“ segir hann og bætir
því við að þetta sé eitt brýnasta hags-
munamál sveitarfélaga um allt land á
komandi árum. „Sveitarfélögin í landinu
standa ekkert of vel fjárhagslega og það
er ekki síst þess vegna sem nauðsynlegt
er að endurskoða tekjustofna þeirra og
jafnframt öll samskipti þeirra við ríkið,”
segir Finnbogi.
Finnbogi Rögnvaldsson L-lista:
Nýtt framboð á
gömlum grunni
KOSNINGAR Borgfirðingar og Mýra-
menn ganga að þessu sinni til
sveitarstjórnarkosninga í nýju og
sameinuðu sveitarfélagi, sem enn
hefur ekki hlotið nafn. Kosið verð-
ur um nafnið samhliða kjöri til
sveitarstjórnar en sveitarfélögin
sem mynda nýja sveitarfélagið
eru Borgarbyggð, Borgarfjarðar-
sveit, Hvítársíðuhreppur og Kol-
beinsstaðahreppur.
Þrír listar bjóða fram að þessu
sinni: Framsóknarflokkur, Sjálf-
stæðisflokkur og Borgarlistinn,
sem samanstendur af Samfylking-
arfólki, vinstri grænum og óháð-
um. Þetta eru sömu listar og buðu
fram í Borgarbyggð við síðustu
kosningar nema hvað Borgarlist-
inn hét þá Borgarbyggðarlistinn. Í
Borgarfjarðarsveit var sjálfkjörið
síðast en í Hvítársíðuhreppi og
Kolbeinsstaðahreppi var óhlut-
bundin kosning þar sem enginn
listi bauð fram. Allir listarnir
bjóða fram fólk víða úr héraðinu.
Í Borgarbyggð gengu síðustu
kosningar ekki þrautalaust fyrir
sig. Svo mjótt var á munum milli
fjórða manns B-lista og annars
manns L-lista að grípa varð til
hlutkestis sem L-listinn vann. B-
listi kærði þá kosninguna og end-
aði málið hjá félagsmálaráðuneyt-
inu, sem úrskurðaði að kosið
skyldi að nýju. Fór sú kosning
fram í desemberbyrjun 2002 og
varð niðurstaðan sú að Framsókn-
arflokkur fékk fjóra fulltrúa,
Sjálfstæðisflokkur þrjá og Borg-
arbyggðarlistinn tvo. Þeir síðar-
nefndu mynduðu meirihluta og af
samtölum við forystumenn þess-
ara lista nú má ráða að þeir muni
halda samstarfi áfram fái þeir til
þess stuðning.
Bæjarfulltrúar í Borgarbyggð
voru níu og verða það áfram í hinu
nýja sveitarfélagi. ssal@frettabladid.is
Sveitarfélag
í mikilli sókn
Íbúar í Borgarfirði og á Mýrum kjósa í fyrsta sinn í
sameinuðu sveitarfélagi síðar í mánuðinum. Búist er
við spennandi kosningum um það hvort B-listanum
tekst að koma D- og L-lista frá völdum.
Í Borgarfirði kjósa menn í nýju sveitarfélagi að
þessu sinni en hinn 23. apríl í fyrra samþykktu
íbúar Borgarbyggðar, Borgarfjarðarsveitar,
Hvítársíðuhrepps og Kolbeinsstaðahrepps að
sameinast og tekur sameiningin formlega gildi
eftir komandi kosningar.
Enn sem komið er hefur sveitarfélagið ekki
hlotið nafn, en um það verður kosið samhliða
kosningum til sveitarstjórnar. Þá má búast við
að farið verði í hönnun nýs byggðarmerkis að
kosningum loknum.
Íbúafjöldi 1. des. 2005: 3.625
KOSNINGAR 2006:
Efstu menn B-lista:
1. Sveinbjörn Eyjólfsson forstöðumaður
2. Jenný Lind Egilsdóttir snyrtifræðingur
3. Finnbogi Leifsson bóndi
4. Sigríður G. Bjarnadóttir skrifstofumaður
5. Bergur Þorgeirsson forstöðumaður
Efstu menn D-lista:
1. Björn Bjarki Þorsteinsson bæjarfulltrúi
2. Torfi Jóhannesson rannsóknarstjóri
3. Ingunn Alexandersdóttir leikskólastjóri
4. Þórvör Embla Guðmundsdóttir fram-
kvæmdastjóri
5. Bernhard Þór Bernhardsson forseti
viðskiptadeildar Viðskiptaháskólans á Bifröst
Efstu menn Borgarlistans L-lista:
1. Finnbogi Rögnvaldsson, kennari
og bæjarfulltrúi
2. Sigríður Björk Jónsdóttir, sagnfræðingur
og MBA
3. Haukur Júlíusson jarðýtustjóri
4. Þór Þorsteinsson framkvæmdastjóri
5. Ingibjörg Daníelsdóttir kennari
Borgarfjörður
SVEITARSTJÓRNAR-
KOSNINGAR
2006
BORGARFJÖRÐUR
FRÁ BORGARNESI Borgarnes hefur verið þungamiðja
sveitarfélagsins Borgarbyggðar og verður eflaust þunga-
miðja hins nýja nafnlausa sveitarfélags Borgfirðinga.
ÚTBOÐSMÁL Hæsta tilboð í húsnæði
Áfengis- og tóbaksverslunar ríkis-
ins í Mjóddinni var rúmar áttatíu
milljónir króna en síðasti dagur til
þess að skila inn tilboði til Ríkis-
kaupa var í gær.
Guðjón Ármann Jónsson, einn
eigenda lögfræðistofunnar Koll-
ekta, átti hæsta tilboð í húsnæðið.
Vínbúð ÁTVR hefur verið flutt
að Stekkjarbakka 6 og er nú í sama
húsnæði og verslunin Garðheim-
ar.
Í svari Árna Mathiesen fjár-
málaráðherra við fyrirspurn Sig-
urjóns Þórðarsonar, þingmanns
Frjálslynda flokksins, kom fram
að fasteignamat húsnæðisins í
Mjóddinni hefði verið tæpar 46
milljónir króna. Hæsta boð í hús-
næðið er því rúmum 35 milljónum
yfir fasteignamati húsnæðisins.
Áætlaður kostnaður við flutn-
ing verslunarinnar úr Mjóddinni í
Garðheima er um fimmtán millj-
ónir króna.
Verðmat á húsnæðinu lá ekki
fyrir þegar Árni Mathiesen svar-
aði fyrirspurn Sigurjóns en gert
var ráð fyrir því að það lægi fyrir
áður en fresturinn til þess að skila
inn tilboði í húsnæði rynni út, en
hann rann út í gær.
Ekki náðist í Guðjón Ármann
Jónsson í gær þar sem hann var á
leið til útlanda. - mh
Hæsta tilboð í húsnæði ÁTVR í Mjóddinni var 35 milljónum yfir fasteignamati:
Bauð 80,7 milljónir króna í húsnæðið
VERSLUN ÁTVR Í GARÐHEIMUM Flutningurinn á verslun ÁTVR úr Mjóddinni í Garðheima
kostar með innréttingum um fimmtán milljónir króna.
VIÐURKENNDI FRAMHJÁHALD John Pres-
cott, varaforsætisráðherra Bretlands, kemur
af ríkisstjórnarfundi í Downing-stræti 10.
Hann hefur staðfest að hafa í tvö ár haldið
framhjá með ritara í ráðuneyti sínu.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP