Fréttablaðið - 01.05.2006, Síða 25
MÁNUDAGUR 1. maí 2006 5
Guðmundur Óli Scheving
SKRIFAR UM MEINDÝR OG MEINDÝRAVARNIR
Talið er að Starinn (Sturnus Vulgaris)
hafi verpt fyrst á Hornafirði um 1940.
Tveir stofnar voru í landinu í nokkurn
tíma upp úr 1960, þ.e. á Hornafirði
og í Reykjavík. Stofninn á Hornafirði
var lítill, um 20 til 25 pör, og hefur
nær horfið þaðan. Upp úr 1970 fór
Reykjavíkurstofninn að dreifast um
Suðurnes, Suðurland og Vesturland
og hefur verið að færa sig vestur,
norður og austur þó í litlum mæli
sé enn. Starinn er mjög duglegur
fugl og kemst inn um göt og glufur
á ótrúlegan hátt. Helstu varpstaðir
eru undir þakskeggjum, í ófrágengn-
um húsum og sumarbústöðum og
nálægt matvælafyrirtækjum, versl-
unum og ruslagámum.
Á veturna er fuglinn dökkur á
búkinn með silfruðum doppum á
bringunni, gulleitan gogg og rauð-
leitar lappir. Í sumarbúningi er hann
brúnleitur með silfruðum doppum á
brjósti og grænni slikju á hálsi, gult
nef og ljósar fætur. Stærðarmunur
er á fuglunum og er kvenfuglinn
stærri. Það er karlfuglinn sem syngur
og lætur vel í sér heyra til að draga
að sér kvenfugl en síðar til að draga
athygli frá hreiðrinu.
Starinn er alæta og einn vinsæl-
asti matstaður hans er staðir þar
sem sorp og rusl er urðað og staðir
þar sem matur fellur til eins og t.d.
við fóðurstöðvar, hafnarsvæði og
matvælafyrirtæki. Telja má að star-
inn beri með sér campylobacter,
salmonellu, E-coli og fleiri bakteríur
sökum þess hve víða hann kemur
við.
Ef fólk verður vart við stara og
fuglinn búinn að koma sér upp
hreiðri og jafnvel verpa í húsakynn-
um manna borgar sig að bíða þar til
ungarnir eru farnir úr hreiðrinu, en
eitra þá strax fyrir flónni, taka hreiðr-
ið og eitra aftur og loka inngangin-
um fyrir staranum. Ýmis tæki eru til
varnar staranum eins og glitborðar,
fuglaklístur og gaddar sem settir eru
á hús og ljóskastara svo fuglinn geti
ekki sest.
Önnur tegund af stara, rósastari,
lifir á heitari stöðum í Evrópu en
hefur ekki komið hingað svo vitað
sé.
Starinn er alfriðaður fugl og ekki
er heimilt að drepa hann eða steypa
undan honum sé hann kominn með
egg í hreiður eða unga.
Þó er í lagi að eitra fyrir flónni ef
ungar eru ekki komnir úr eggjum sbr.
lög um dýravernd nr. 15/1994 og lög
um vernd, friðun og veiðar á villtum
fugum og spendýrum nr. 64/1994.
Sækja verður um leyfi til umhverfis-
ráðuneytis til að farga fuglinum eða
hreiðri hans.
Nauðsynlegt er fyrir meindýra-
eyða að sækja um slík leyfi strax á
vorin.
Staraflóin eða fuglaflóin nærist
á blóði og stekkur milli fórnarlamba
hvort heldur eru dýr eða menn. Kett-
ir bera flóna inn í mannabústaði en
skógarþrestir og maríuerlur bera líka
með sér fuglafló.
Flóabit veldur oftast miklum
óþægindum eins og bólgu í kring-
um bitstað, sviða og kláða. Hægt er
að fá smyrsl í lyfjaverslunum til að
lina óþægindin, sem hverfa smám
saman eftir að búið er að úða heim-
ilið en sumir þurfa þó að leita læknis
til að fá sýklalyf. Flóin fer í mann-
greinarálit og bítur bara útvalda og
oft er bara einn bitinn í fjölskyldu á
heimili þar sem fló er á ferðinni.
Bit flóarinnar eða stunga er
áþekkt sprautunálarstungu. Varnar-
efni er notað við skordýraeitrun inni
í híbýlum manna til að drepa flóna.
Efninu er blandað saman við vatn
í ákveðnum hlutföllum eftir stærð
rýmis sem úða á og sprautað úr
þrýstikút. Varnarefnið er langvirkt
efni og hefur um þriggja mánaða
eiturvirkni. Mjög nauðsynlegt er að
úða í alla sökkla, glugga og gardín-
ur, þar sem opnanleg fög eru, undir
rúm og sængurföt. Þvo þarf sæng-
urföt og önnur föt eftir að búið er
að úða. Til þess að drepa flóna
þarf að úða hreiðurstað áður en
aðgengi að hreiðri er lokað og eftir
að búið er að hreinsa út hreiðrið.
Æskilegt er að fólk sé í burtu í um
fjórar klukkustundir eftir að búið er
að úða.
Eftir að ungar eru farnir úr hreiðri
eru strax komnir aðrir íbúar í hreiðrið
en það eru lirfur hús- og fiskiflug-
unnar og einnig lirfur ýmissa annarra
flugna. Þá hafa egg tínusbjöllunnar
og tínusbjöllur greinst í hreiðrum
stara eftir að þau hafa verið yfirgefin.
Við réttar aðstæður er mjög algengt
að fló fari af stað að leita að fórn-
arlambi eftir að fuglar eru farnir úr
hreiðri en það geta líka liðið allt að
tvö ár þar til flóin fer af stað.
Fólk sem þarf að fá meindýraeyði
skal óska eftir að fá að sjá starfsskír-
teini gefið út af Umhverfisstofnun og
athuga einnig hvort meindýraeyð-
irinn hafi starfsleyfi frá viðkomandi
sveitarfélagi og hvort viðkomandi
skírteini séu í gildi. Það er nauðsyn-
legt að óska eftir nótu fyrir þjónustu
meindýraeyða svo hægt sé að hafa
samband við viðkomandi ef með
þarf.
Ef viðkomandi er félagi í Félagi
meindýraeyða er fagmaður á ferð.
Heimildir: Upplýsingar og fróð-
leikur um meindýr og varnir 2004.
University of California.
Stari - Starafló
Lesendum Fréttablaðsins er velkomið að senda fyrirspurn á netfangið
gudmunduroli@simnet.is.
F
ít
o
n
/
S
Í
A