Fréttablaðið - 05.05.2006, Blaðsíða 75
FÖSTUDAGUR 5. maí 2006 51
Mun gegna lykil-
hlutverki á miðj-
unni sem reynslu-
bolti en fáir slíkir
eru í liðinu. Nær
vonandi að halda
sér heilum því
Fylkir má alls
ekki við því að missa hann af miðj-
unni – til þess er breiddin einfald-
lega of lítil. Einn sá besti í sinni
stöðu í deildinni, mjög góður í að
brjóta niður spil andstæðinganna
með því að lesa þeirra leik.
LYKILMAÐURINN
Ólafur Stígsson
Kemur frá Danmörku til að fylla
skarðið sem Finnur Kolbeinsson skil-
ur eftir sig sem maðurinn sem býr til
mörkin. Er auk þess örfættur en
þannig leikmann hefur vantað sár-
lega í Árbæinn síðustu sumur.
FYLGSTU MEÐ....
Peter Gravesen
Vörnin:
Gæti lent í vandræðum í
sumar. Missti fyrirliðann
Val Fannar Gíslason en fékk
í staðinn Jens Sævarsson
sem hefur takmarkaða
reynslu í efstu deild. Vantar
sterkan vinstri bakvörð.
Sóknin:
Hafa misst sinn markahæsta mann
frá því í fyrra, Björgólf Takefusa.
Mikið mun því mæða á þeim
Sævari Þór og Hauki Inga.
| 6. SÆTI | FYLKIR
LANDSBANKADEILDIN 2006
LEIKMANNAHÓPURINN
MARKMENN:
Fjalar Þorgeirsson
Bjarni Þórður Halldórsson
Jóhann Ólafur Sigurðsson
VARNARMENN:
Arnar Þór Úlfarsson
Guðni Rúnar Helgason
Jens Elvar Sævarsson
Kjartan Ágúst Breiðdal
Ragnar Sigurðsson
MIÐJUMENN:
Christian Christiansen
Eyjólfur Héðinsson
Ólafur Ingi Stígsson
Páll Einarsson
Peter Gravesen
Jón Björgvin Hermannsson
Hermann Aðalgeirsson
Oddur Ingi Guðmundsson
Björn Orri Hermannsson
SÓKNARMENN:
Albert Brynjar Ingason
Haukur Ingi Guðnason
Björn Viðar Ásbjörnsson
Sigurjón Magnús Kevinsson
Sævar Þór Gíslason
Theódór Óskarsson
KOMNIR: Jens Sævarsson (frá
Þrótti), Páll Einarsson (frá Þrótti),
Hermann Aðalgeirsson (frá Völs-
ungi), Fjalar Þorgerisson (frá Þrótti),
Peter Gravesen (frá Herfölge).
FARNIR: Eric Gustafsson, Peter Tran-
berg, Finnur Kolbeinsson (hættur),
Gunnar Þór Pétursson (hættur),
Björgólfur Takefusa (til KR), Valur
Fannar Gíslason (til Vals), Helgi
Valur Daníelsson (til Öster), Kristján
Valdimarss. (til Grindavíkur), Viktor
Bjarki Arnarson (til Víkings).
Markið:
Frábærlega mönnuð staða hjá Fylki. Bjarni
Þórður er enn meiddur en Fylkismenn eru ekki
á flæðiskeri staddir eftir að hafa fengið Fjalar.
ÞJÁLFARINN
Leifur Garðarsson veit hvað þarf
til að búa til afrekslið eftir gott
gengi með FH. Er í fyrsta sinn að
þjálfa meistaraflokk einn síns liðs
en er ekki með öllu reynslulaus.
Leifur Garðarsson
Miðjan:
Ólafur Stígsson er að stíga upp úr meiðslum í byrjun
móts. Peter Gravesen mun leika stórt hlutverk í sumar
og ef Ólafur nær sér af meiðslunum og leikur af sinni
bestu getu eru Fylkismenn í góðum málum.
Bekkurinn:
Fylkismenn hafa nokkuð breiðan hóp
leikmanna og eru vel skipaðir á varamanna-
bekknum. Fjölbreyttir leikmenn munu prýða
bekk Árbæinga í sumar.
Líklegt byrjunarlið 4-4-2
SPÁIN
1 ?
2 ?
3 ?
4 ?
5 ?
6 Fylkir 69
7 Grindavík 46
8 Víkingur 41
9-10 Breiðab. 32
9-10 ÍBV 32
Arnar Þór Úlfarsson Guðni Rúnar
Helgason
Jens Sævarsson
Fjalar Þorgeirsson
Ragnar Sigurðsson
Ólafur StígssonPáll Einarsson
Eyjólfur Héðinsson
Sævar Þór Gíslason Christian Christiansen
Peter Gravesen
LANDSBANKADEILDIN Leifur Garðars-
son er tekinn við Fylkisliðinu en
frá því í fyrra hefur
það misst lykilmenn á
borð við Val Fannar
Gíslason, Helga Val
Daníelsson, Viktor
Bjarka Arnarson og
Björgólf Takefusa.
„Við erum búnir að
missa lykilmenn en á
móti kemur að ungir
strákar eru að koma
sterkir upp. Við höfum
einnig fengið nokkra
leikmenn sem við
bindum vonir við og
það gengur vel að
þjappa hópnum saman.
Leifur hefur komið mjög vel inn í
þetta og sumarið verður prófraun
fyrir okkur,“ sagði Ólafur Stígs-
son, fyrirliði Fylkis.
Spáin bendir til þess að Fylkis-
menn sigli lygnan sjó um miðja
deild, eitthvað sem Ólafur er sátt-
ur við enda væntingarnar ekki
ýkja miklar. „Við gerum sjálfir
ekki miklar væntingar til sumars-
ins. Við erum að líta á framtíðina.
Ragnar Sigurðsson og Eyjólfur
Héðinsson eru strákar eru búnir
að taka miklum framförum og
komnir frá því að vera efnilegir í
að vera mjög góðir. Það er hafin
uppbyggingarstarfsemi hér með
ákveðnum kynslóðaskiptum,“
sagði Ólafur.
Fylki hefur oft vantað herslu-
muninn til að vera með í toppbar-
áttunni og segir Ólafur að það
styttist í að liðið taki skrefið til
fullnustu. „Væntingarnar eru ekki
eins miklar núna og við getum ein-
beitt okkur að því að bæta okkur,“
sagði Ólafur áður en hann hrósaði
Peter Gravesen, bróður Thomas
Gravesen, í hástert.
„Hann er sá sem okkur vantaði
og er frábær leikmaður. Hann
hefur verið að spila mjög vel og á
vonandi eftir að gera góða hluti í
sumar,“ sagði Ólafur. - hþh
Uppbyggingin er hafin
Fréttablaðið og Sýn spá Fylki sjötta sætinu í Landsbankadeildinni í sumar. Fyrir-
liðinn Ólafur Stígsson segir að uppbyggingarstarfsemi sé hafin í Árbænum.
PETER GRAVESEN Frábær leikmaður, að
sögn Ólafs Stígssonar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM