Fréttablaðið - 05.05.2006, Blaðsíða 31
FÖSTUDAGUR 5. maí 2006
ÞAÐ SEM TIL ÞARF:
4 x 200 g steinbítsflök
grill og steikarolía
grófmalaður svartur pipar
PIPARSÓSA:
5 sveppir saxaðir
smjör til steikingar
2 dl mjólk
1 dl rjómi
30 ml sætt sérrí
smjörbolla til að þykkja
1 tsk. grófmalaður svartur pipar
kjötkraftur
Sveppirnir eru steiktir í smjörinu í
potti, mjólk og rjóma bætt út í og
sósan hituð að suðu. Þá er hún tekin
af hitanum og þykkt með smjörboll-
unni og sett yfir hitann og suðan látin
koma upp. Sósan er síðan bragðbætt
með sérríi, kjötkrafti og svörtum pipar.
Steinbítnum er velt upp úr grill- og
steikarolíu og steiktur á þurri pönnu
(best að nota teflon-pönnu) í 1 ½
mínútu á hvorri hlið og kryddað með
pipar.
Borið fram með piparsósu, bökuðum
kartöflum og grænmeti.
Steinbíts-
piparsteik
ÞETTA ER UPPSKRIFT STEFÁNS ÚLF-
ARSSONAR EN HANN ER KOKKUR Á
ÞREMUR FRÖKKUM.
Steinbítspiparsteik Stefáns Úlfarssonar.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
UPPSKRIFT
Til hnífs og skeiðar
GUÐRÚN JÓHANNSDÓTTIR
Árstíðirnar, eins og margt annað í ver-
öldinni, koma bæði hægt og skyndi-
lega. Smám saman hefur dagsbirtan
verið að vinna á en svo gerist það, allt
í einu, að blessað dagsljósið verður
svo sterkt og skært að píra þarf augun
og verja húðina fyrir offorsi þess.
Með birtunni grípur um sig ákveðið
eirðarleysi og löngun til að borða
léttan og fyrirhafnarlítinn mat. Þetta
kjúklingasalat er fullkominn skyndibiti
í byrjun sumars. Núðlurnar, sem eru
notaðar ósoðnar, koma á óvart og gefa
salatinu skemmtilega áferð. Sú brella
er frá Önnu H.!
1 steiktur kjúklingur (kjötið tekið af
beinunum og rifið í grófa bita)
1 lárpera (skorin í fleyga)
7-8 falleg jarðarber (skorin í sneiðar)
1/2 stórt höfuð ísbergsalat eða 1
lítið (gróft rifið)
lúkufylli af fersku spínati
2-3 stilkar vorlaukur (skorinn í
sneiðar)
1/2 -1pk 3 mínútna núðlur m/
kjúklingabragði
ristuð sólblómafræ (má sleppa)
2 msk ólífuolía
2 msk balsam edik
1. Takið steikt kjúklingakjötið af bein-
unum og skerið, eða rífið, í grófa
bita.
2. Rífið salatið niður í stóra skál. Skerið
lárperuna, graslaukinn og jarðarber-
in og setjið útí ásamt kjúklingabit-
unum og spínati.
3. Útbúið salatsósu úr olíunni og
balsamedikinu og smakkið til með
kryddinu úr kryddpokunum sem
fylgja 3 mínútna núðlunum.
4. Brjótið ósoðnar núðlurnar yfir
salatið. Hellið salatsósunni yfir og
blandið öllu vel saman og stráið að
lokum sólblómafræjunum yfir allt.
Brakandi ferskt kjúklingasalat
Önnum kafnir ungir menn
hafa sjaldan mikinn tíma fyrir
eldamennskuna. Oftar en ekki
er kunnáttan af enn skornari
skammti. Til að galdra fram
góðan mat þarf hvorugt.
Þessi réttur er einfaldur, tiltölu-
lega fljótlegur og það sem best er,
hollur. Hann er líka fallegur fyrir
augað svo ef þú ert að fá gesti í
heimsókn er hann mun betri kost-
ur en örbylgjubrauð. Það sem þú
þarft er eftirfarandi:
Ein paprika - græn, gul eða rauð
Einn laukur
Hvítlauksrif
Ein askja af sveppum
Brokkólí
Einhvers konar fræ
Tvær kjúklingabringur
Þá sósu sem þú finnur í ísskápnum
Krydd sem til er í hillunni
Byrjaðu á því að skera græn-
metið niður í stóra bita. Hvítlauk-
urinn er skorinn í þunnar skífur.
Grænmetið er látið á pönnu og létt-
steikt. Ekki steikja það of lengi því
þá verður það maukað og slepju-
legt og missir ferska bragðið.
Skerðu kjúklinginn í grófa
strimla. Saltaðu og settu það krydd
sem þér líst best á á bringurnar. Svo
skaltu steikja strimlana upp úr sós-
unni við meðalhita, rétt eins og
sósan sé olía. Við þetta fer sósu-
bragðið inn í kjúklinginn, hann helst
mjúkur og safaríkur og bragðast
þar að auki mjög vel. Ég mæli ein-
dregið með því að nota ostrusósu.
Þegar allt er komið á diskinn
má strá fræjunum yfir réttinn.
tryggvi@frettabladid.is
Kjúklingur piparsveinsins
Kjúklingarétturinn er einfaldur og á færi
hvers manns að elda hann.
Kaffihús:
Laugavegi 24
Smáralind
Verslanir:
Kringlunni
Smáralind
Laugavegi 27
Suðurveri
Akureyri
Egilsstöðum
��
��
���
���
��
�
www.teogkaffi.is
��������
�������������
��������������
����������
������������
�����������
�������������
�������