Fréttablaðið - 05.05.2006, Blaðsíða 60
5. maí 2006 FÖSTUDAGUR36
menning@frettabladid.is
Kl. 17.30
Bandaríski hiphop-tónlistarmað-
urinn Spaceman heldur tónleika í
Gallerí Humri eða frægð á Lauga-
vegi. Kappinn kynnir nýútkomna
breiðskífu, The Start of the End.
!
> Ekki missa af...
Skátum, Mongoose og Bobby
Breiðholt í föstudagspartíi á
vegum Grandmother Records
á Grand Rokk í kvöld.
Opnun í Gallerí Dverg á
Grundarstíg á morgun.
Magnús Árnason opnar sýn-
inguna „Mucus“ og fremur
gjörning ásamt Stefáni Halli
Stefánssyni kl. 20.
Manchester-tónleikum í
Laugardalshöll á laugardag-
inn, húfudrengurinn Badly
Drawn Boy, gamlar kempur
og góðir gestir frá glaum-
borginni í Englandi. Fjörið
hefst kl. 18.30.
Á morgun svífa ævintýrin um í
Háskólabíói því Sinfóníuhljómsveit
Íslands býður heilladísum, kentár-
um og tröllum til tónlistarveislu.
Á efnisskrá tónleikanna eru verk
eftir Carl Nielsen, Maurice Ravel
og Prókofíev sem öll eru byggð á
ævintýrum, allt frá Öskubusku til
Gæsamömmu. Á tónleikunum mun
ung söngkona, Valdís G. Gregory,
einnig stíga sín fyrstu skref með
hljómsveitinni og flytja lög úr söng-
leikjunum Galdrakarlinum í Oz og
Fríðu og dýrinu.
„Þetta er búinn að vera draumur
minn alveg síðan ég var lítil. Ég
valdi lagið „Home“ úr Fríðu og
dýrinu því þegar ég sá söngleik-
inn ákvað ég að þetta lag myndi
ég einhvern tíma syngja með
Sinfóníunni,“ segir Valdís og kveðst
verulega spennt fyrir tónleikunum
sem vafalítið verða líka mikið
ævintýri fyrir þessa liðlega tvítugu
söngkonu. Valdís er í söngnámi og
hyggur á framhaldsnám í Banda-
ríkjunum. „Ég fer í svokallað söng-
leikjanám, og læri leiklist, dans og
söng,“ útskýrir hún. „Ég komst inn
í nokkra skóla og valdi University
of Hartford sem er með frábært
prógramm, rosalega fínn skóli sem
ég er mjög ánægð með.“
Hljómsveitarstjórinn Rumon
Gamba mun halda um tónsprot-
ann á tónleikunum en kynnir
verður Halla Vilhjálmsdóttir leik-
kona. Ævintýrið hefst kl. 16 og eru
gestir hvattir til að klæða sig í takt
við tilefnið, kórónur, skikkjur og
galdrahattar eru því gráupplagðir
fylgihlutir.
VALDÍS G. GREGORY SÖNGKONA
Ævintýrabragur og ógleyman-
legar stundir á tónleikum með
Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Draumarnir rætast
Nemendaleikhúsið frumsýndi í gær
nýtt verk sem unnið var í samvinnu
við leikstjórann Ágústu Skúladótt-
ur og leikskáldið Völu Þórsdóttur.
Verkið heitir Nú skyldi ég hlæja
væri ég ekki dauður og byggir á
íslenskri þjóðsagnassyrpu þar sem
fjölmargar þekktar og minna kunn-
uglegar persónur mætast.
„Þetta er fjölskyldusýning enda
hefur fólk á öllum aldri gaman af
ævintýrum, segir Ágústa Skúla-
dóttir leikstjóri. „Í þessum þjóð-
sögum greinir frá huldufólki, tröll-
um, draugum og þorpurum svo fátt
eitt sé nefnt. Sumar þeirra eru
bráðfyndnar, aðrar draumkenndar
og sumar hverjar eilítið skelfileg-
ar. Áhorfendur geta hlegið og
grátið með mörgum af frægustu
persónum þjóðsagnanna ásamt
ýmsum verum íslenskrar sagna-
arfleifðar“.
Sögur eins og Gilitrutt, Búkolla
og Bláskelin rata í þennan þjóðlega
bræðing en leikstíllinn vísar í
teiknimyndasögur, bíómyndir og
goðsögur. Í verkinu koma einnig
fyrir þulur, meðal annars eftir
Theodóru Thoroddsen. Ragnhild-
ur Gísladóttir semur tónlistina en
leikmyndina hannar Frosti Frið-
riksson.
Aðeins eru fyrirhugðir þrír sýn-
ingardagar til viðbótar um þessa
helgi svo það er vissara að sýna
viðbragðsflýti ef fólk ætlar ekki að
missa af þessu sviðsævintýri. - khh
Bráðfyndinn
sagnabræðingur
SAGAN AF HELGU OG SYSTRUM HENNAR Þjóðsögurnar lifna við í Þjóðleikhúsinu.
Hvað er heimili í hnatt-
rænu samfélagi og hvað er
heimþrá?
Á morgun verður opnuð fjölþjóð-
leg farandsýning sem ber heitið
„HOMESICK“ en fyrsti sýningar-
staður hennar er Listasafnið á
Akureyri. Viðfangsefni sýningar-
innar hverfist um persónulegan
skilning fólks á hugtakinu „heim-
ili“ og taka sjö listamenn frá fjór-
um löndum þátt í verkefninu sem
síðar mun ferðast til hinna „heima-
landa“ þeirra: Tyrklands, Sviss og
Ísrael.
Hannes Sigurðsson, forstöðu-
maður safnsins, segist ekki vita til
þess að íslenskar myndlistarstofn-
anir hyggi á viðlíka strandhögg
eins og Listasafn Akureyrar stend-
ur nú fyrir. „Þessi sýning er gerð í
samstarfi við Kynningarmiðstöð
íslenskrar myndlistar sem er og
hefur það að markmiði að kynna
íslenska myndlist erlendis. Safnið
nálgaðist miðstöðina og hafði
frumkvæði að því að gera sýningu
með alþjóðlegu viðfangsefni og
fjallaði um eitthvað sem snertir
okkur öll en með það að augnamiði
að setja hana upp á öðrum stöð-
um.“ Forstöðumaður miðstöðvar-
innar, Christian Schoen, mótaði
síðan verkefnið í samvinnu við
safnið og mun miðstöðin hafa
umsjón með ferðum sýningarinn-
ar eftir að henni lýkur á Akur-
eyri.
Listasafn Akureyrar hefur
áður sent sýningar sínar, til dæmis
til safna á höfuðborgarsvæðinu,
Norðurlöndunum og Mið-Evrópu
en nú færir stofnunin verulega út
kvíarnar. „Löndin sem HOME-
SICK-sýningin mun ferðast til eru
allt dálitlar jaðarþjóðir, til dæmis
eru þau öll utan Evrópusambands-
ins,“ útskýrir Hannes.
„Hugmyndin um heimili mótar
grundvöll samfélagsins, það
hvernig við skynjum sjálfsmynd
okkar og stað í veröldinni og skil-
greinir þar með tilvist okkar. Á
meðan hægt er að hlutgera og
benda á heimilið sem byggingu,
er heimþráin hins vegar algjör-
lega huglæg og persónuleg þrá
eftir stað sem erfitt getur reynst
að henda reiður á. Það er fróðlegt
að sjá hvernig listafólk nálgast
þessar hugmyndir hvert með
sínum hætti, raunverulega eru
allir að fást við sömu spurning-
arnar,“ segir Hannes. „Heima-
landið og hið pólitíska athvarf er
ekki lengur til og listamennirnir
hafna allir þjóðerninu og eru því
ekki að reyna að bjarga því, enda
er engu að bjarga.“
Listamennirnir sýna innsetn-
ingar, ljósmyndir og vídeóverk á
sýningunni en Hannes segir að
það sé nokkur tilvistarstefnubrag-
ur yfir verkunum án þess að þau
séu allt of torræð. „Hver sem er
getur sett sig inn í þau ef viðkom-
andi gefur sér tækifæri til þess að
spyrja sig hvað heimili sé fyrir
honum. Þetta er áleitin spurning
sem liggur í loftinu.“
Sýningin verður opnuð með
pallborðsumræðum í Deiglunni á
Akureyri kl. 13 á morgun en
HOMESICK-sýningin stendur til
25. júní. kristrun@frettabladid.is
Listamenn hugsa heim
SVISSNESKA LISTAKONAN CHANTAL MICHEL SVIÐSETUR SJÁLFA SIG Í VERKUM SÍNUM
„Heimili er staður þar sem ekkert og enginn truflar, þar sem ég get verið ég sjálf.“
MYND/ CHANTAL MICHEL
ÞEKKTASTI SAMTÍMALISTAMAÐUR ÍSRAELS, GUY BEN-NER, BJÓ TIL EYÐIEYJU Í ELDHÚSINU Nútíma Róbinson Krúsó með heimþrá heima
hjá sér. MYND/ GUY BEN-NER
Þátttakendur í sýningunni
HOMESICK
Chantal Michel Sviss
Guy Ben-Ner Ísrael/Bandaríkin
Haraldur Jónsson Ísland
Katrín Sigurðardóttir
Ísland/Bandaríkin
Nevin Aladag
Tyrkland / Þýskaland
Ólafur Árni Ólafsson og
Libia Pérez de Siles de Castro
Ísland / SpánnMike Attack
„Mér er til efs að
Íslendingar hafi
nokkurn tíma áður
átt skemmtikraft
sem jafnast á við Kristján“.
Þorgeir Tryggvason/MBL
„Það er full ástæða til að hvetja
alla sem vettlingi geta valdið til
að sjá Kristján flytja sinn
leiklistargjörning sem er kraft-
mikill, heillandi og bráðfyndinn“.
Valgerir Skagfjörð/Fréttablaðið
Sunnudagana 7. maí og
14. maí klukkan 14.00.
Aðeins þessar sýningar.