Fréttablaðið - 05.05.2006, Blaðsíða 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
����������
���������������������
Auðvitað áttu þingmenn að vera vakandi yfir því þegar fast-
eignaverð hækkaði svona mikið
og hækka vaxtabótamörkin í kerf-
inu gagnvart eignum, segir þing-
maðurinn Pétur Blöndal í Frétta-
blaðinu á dögunum. Um hvaða
þingmenn er hann að tala? Hvar
var hann sjálfur?
ENN einu sinni stöndum við
frammi fyrir því að stjórnvöld
klastri saman laganefnu sem
kippir fótunum undan þeim sem
síst mega við því. Ég minni bara á
misgengisstefnuna snemma á
níunda áratugnum. Man ekki
betur en að ég hafi keypt mér íbúð
og eftir að hafa greitt þrisvar af
láninu sem á henni hvíldi, þrisvar
sinnum hálfa milljón á átján mán-
aða tímabili, var lánið orðið
langtum hærra en íbúðaverðið.
Losaði mig við hana og eyddi
næstu árum í að borga umfram-
upphæðina af láninu. Gerði aðra
tilraun snemma á tíunda áratugn-
um og fékk sömu niðurstöðu,
nema þá náði ég að losa mig við
íbúðina þegar ég sá hvert stefndi,
rétt eftir að lánið fór fram úr
íbúðaverðinu. Hélt svo áfram að
borga það.
EKKI halda að ég sé einsdæmi.
Var bara ein af þessum einstæðu
mæðrum, með þrjú börn, sem
þreyttist á að flytja á milli leigu-
íbúða á eins til tveggja ára fresti.
Vildi gera eins og mér var sagt að
gera, búa börnunum stabílt heim-
ili. Þeir sem gera það ekki eru
annars flokks þegnar, lúserar. Á
Íslandi áttu að eiga; eiga íbúð,
eiga bíl, eiga heimabíó, eiga hús-
næðis- og bankalán, eiga kvíða,
eiga angist, eiga andvökur. Ann-
ars er ekkert varið í þig. Þér er
ekki treyst fyrir mikilvægara
verkefni en að lepja dauðan úr
skel. Svo eru gerðar skýrslur þar
sem fram kemur að skuldir heim-
ilanna aukist, enginn spari. Sem
sagt, þeir sem eru að reyna að
standa sig og falla inn í gildismat-
ið eru rassskelltir; kennt um verð-
bólgu og ölduganginn í efnahags-
lífinu.
OG nú þurfa heimilin enn einu
sinni að taka meiri lán vegna þess
að stjórnvöld hafa mjög svo
óvænt, og í fasta svefni, snar-
hækkað verðið á fasteignum
þeirra, svo þau fá ekki lengur þær
vaxtabætur sem reiknað var með
í fjárhagsáætlunum til að dæmið
gengi upp. Hvað á þetta fólk, sem
ekkert á nema nafn sitt á lánum
úti um allar koppagrundir, að
skera niður?
EKKI að þetta komi par við mig,
þar sem ég er steinhætt að eiga
nokkurn skapaðan hlut. Það er
bara svo pirrandi að sjá stjórn-
völd fleygja varnarlausasta fólk-
inu á bólakaf í fjóshauginn aftur
og aftur. Afsaka sig svo með því
að þau séu bara sofandi sauðir. Í
næstu alþingiskosningum legg ég
til að stjórnmálaflokkarnir kveði
skýrt á um það í stefnuskrá sinni
hvort þeir ætla að vera vakandi
eða sofandi í vinnunni næsta kjör-
tímabilið. Önnur stefnumál skipta
ekki máli.
Pirrrrrrandi
Viðskiptaháskólinn á Bifröst býður upp á tíu námsleiðir til meistaragráðu. Námið er
einstaklings-bundið, nemendur geta í sumum tilvikum stýrt hraða sínum sjálfir og
jafnvel stundað nám með vinnu. Kíktu á www.bifrost.is og sjáðu hvernig þú getur
náð enn lengra.
Umsóknarfrestur er til 1. júlí 2006.
Meistaranám
Taktu næsta skref
MS í alþjóðaviðskiptum, hagfræði og lögum
MA í Evrópufræði
MS í bankastarfsemi, fjármálum og alþjóðaviðskiptum
MA í hagnýtum hagvísindum
ML í lögfræði
MA í menningar- og menntastjórnun
MPA í opinberri stjórnsýslu
MA í skattarétti
MS í stjórnun
MS í viðskiptalögfræði
Nánari upplýsingar:
311 Borgarnes | Sími: 433 3000