Fréttablaðið - 05.05.2006, Blaðsíða 40
■■■■ { sumartíska } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Dömusólgleraugu með hvítri umgjörð frá
Max Mara kosta 17.500 kr.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Herragleraugu eru yfirleitt með
hefðbundnara sniði en hjá konun-
um. Þessi sólgleraugu frá Diesel eru
undantekning á því og kosta 12.900 kr.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐASólgleraugu með skyggðu
gleri frá Lacoste kosta 14.900
kr. hjá Linsunni. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Stór skreytt sólgleraugu
eru í tísku. Þessi dömu-
gleraugu frá Max Mara
kosta 19.800 kr.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Sólgleraugu frá Lacoste njóta vinsælda hjá báðum
kynjum, enda í þeim góð geislavörn sem hentar
vel fyrir útiveru í sumar. Þessi kosta 14.900 kr.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Straumar og stefnur í sól-
gleraugnatísku sumarsins.
„Segja mætti að það sé sótt svolítið
aftur í sjöunda áratuginn í hönnun
sólgleraugna um þessar mundir,“
segir Sigrún Bergsteinsdóttir hjá
Linsunni í Aðalstræti 9. „Hvítt og
svart verður vinsælt í sumar. Einnig
má búast við því að stór sólgleraugu,
með skyggðu gleri, njóti áfram vin-
sælda. Þau eru þó oft skreyttari en
áður,“ segir Sigrún.
„Auðvitað hafa ekki allir smekk
fyrir svoleiðis gleraugum eða
þá að andlitsgerð viðkomandi
aðila hentar þeim ekki,“ bendir
Sigrún á. „Það er ekki fallegt að
sjá andlitssmáa konu með flennistór
sólgleraugu sem þekja hálft andlit-
ið. Í slíkum tilvikum má kaupa sér
minni gleraugu.“
„Í karlatískunni gegnir öðru máli,
þar sem sveiflur eru ekki eins mikl-
ar og hjá konunum,“ segir Sigrún.
„Karlar kaupa sér sjaldnar sólgler-
augu heldur en konur, sem skipta
þeim reglulega út. Ástæðan er sú að
þeir vilja að sólgleraugun endist í
ákveðinni tíma, jafnvel nokkur ár.
Þetta hefur þau áhrif að karlagler-
augun eru sígildari í hönnun, glerið
er gjarnan kúpt og umgjörðin ein-
föld og stílhrein.“
„Þess má geta að Lacoste-sólgler-
augun okkar hafa notið vinsælda
hjá báðum kynjum, enda í þeim
góð geislavörn og því tilvalin fyrir
skíða- og jeppaferðir á hálend-
inu sumar.“
Innblástur frá 7. áratugnum
Sumarförðunin er náttúru-
leg og litirnir mjúkir.
Sumarvörurnar streyma nú inn í
snyrtivöruverslanirnar og það er
spennandi að sjá hvað einkennir
tískuna þetta sumarið. Kristín Svav-
arsdóttir, förðunarfræðingur hjá
Debenhams, segir að nátt-
úrulegir litir og einföld
förðun verði allsráðandi
í sumar. „Þetta á eigin-
lega bara að vera eins
náttúrulegt og hægt
er. Litirnir eru mjúkir
og eðlilegir og dálítið
út í pastel,“ segir
Kristín, sem fyrir stuttu tók á móti
nýju sumarlínunni frá Shiseido.
Kristín segir sumarútlitið frá
Shiseido byggja á léttri og mjúkri
augnförðun og glossi á vörum.
„Svo er líka önnur lína í gangi þar
sem augun eru máluð í ljósum lit
en varirnar eru hafðar meira áber-
andi, og notaður til dæmis bleikur
varalitur,“ segir Kristín. Farðinn er
náttúrulegur og að sögn Kristínar
verður meira um bronslita tóna.
„Sólar púðrið í þessari línu frá Shis-
eido er til dæmis dálít-
ið út í brons og ekki
eins glansandi og verið
hefur.“
Einfaldleikinn í
fyrirrúmi
Kristín Svavarsdóttir förðunarfræðingur segir að förðunin eigi að vera eins náttúruleg og
unnt er. FRETTABLADID/VILHELM
Multi shade sólarpúð-
ur frá Shiseido.
Litirnir blandast
saman og gefa
fersklegt útlilit
en þá má einnig
nota hvorn í sínu
lagi.
Í augnskuggapallettunni
eru fjórir litir, tveir heitir
og tveir kaldir.
Hl íða rsmára 11 • Kópavog i • s ím i 517 6460 • www.be l l adonna . i s
Opið mán-fös 11-18
laugardaga 11-15
Nýjar
sumarvörur
Vertu þú sjálf
– vertu Bella donna
Í sumarlínunni frá Shiseido
eru tvö gloss; Shimmering
petal sem er kaldur tónn,
dálítið út í fjólublátt, og
Suntan glimmer sem er
bronslitað.
Útlitið er speisað á
þessum gullhúðuðu
kvengleraugum frá
Cartier, sem kosta
28.900 kr.