Fréttablaðið - 05.05.2006, Blaðsíða 67

Fréttablaðið - 05.05.2006, Blaðsíða 67
FÖSTUDAGUR 5. maí 2006 43 MEÐ HNÍF OG GAFFLI ÞRÁINN BERTELSSON SKRIFAR Japanskt „smörrebröd“ FRÉTTIR AF FÓLKI Þegar tvær stórstjörnur leiða saman hesta sína veldur það fjaðrafoki meðal slúðursneplanna og því hafa Brad Pitt og Angelina Jolie aldeilis kynnst. Sögur spinnast í kringum hvert einasta skref sem þau taka og hafa þau nú sent frá sér fréttatilkynningu sem blöðin kalla nei-listann. Slúðurpésarnir hafa meðal annars fjallað um að Jolie, sem nú er ólétt af fyrsta barni þeirra skötuhjúa, sé búin að skrifa undir samning við Tomb Raider 3, einnig að hún og Pitt ætli að skýra barn sitt Afríku og að fæðingin muni eiga stað ofan í vatni. Neita þau öllu ofantöldu. Þau kynntust við gerð myndar- innar Mr. and mrs. Smith fyrir tæplega tveim árum og eiga saman tvö ættleidd börn frá Kambódíu og Afríku. Meðlimir hljómsveitarinnar Red Hot Chilli Peppers eru í sárum eftir að nýjasta plata þeirra félaga lak á netið. Platan nefnist Stadium Arcadium og á að koma út 8. maí næstkomandi. Bassaleikarinn Flea sagðist líta á þetta sem stuld og að honum finnist sorglegt að fólk skuli vilja tónlist frá netinu í stað þess að kaupa sér diska. Hljómsveitin er þessa dagana að framfylgja plötunni sem búin er að vera eitt og hálft ár í fæðingu. Rokkarinn og eiginkona Kurts Cobain heitins, Courtney Love, skaut aðdáendum skelk í bringu þegar hún sýndi sitt allra heilagasta á góðgerðar- samkomu sem haldin var í Los Angeles af samtökum homma og lesbía. Love hefur lengi átt við vandamál að stríða varðandi eiturlyf og áfengisneyslu en er víst nýkomin úr meðferð og mun hafa verið edrú þegar atburðurinn átti sér stað. Love á eina dóttur með Cobain og fékk hún aftur forræð- ið yfir henni eftir að hafa misst það vegna ofneyslu á síðasta ári. Hin stórglæsi-lega leikkona Denise Richards sem nýlega sagði skilið við eiginmann sinn Charlie Sheen, hefur nú verið orðuð við meðlim hljómsveitarinnar Bon Jovi. Sá hinn heppni, Richie Sambora, er einnig nýkominn úr sambandi við leikkonuna Heather Locklear sem margir þekkja úr þáttunum Melrose place. Hún mun ekki hafa tekið þessum fregnum vel enda hafa þær stöllur eldað grátt silfur lengi. Bon Jovi er að huga að Evróputúr í sumar og mun Richards slást með í för. Á öldinni sem leið var hádegisverðurinn yfirleitt aðalmáltíð dagsins en tímarnir breytast. Í staðinn eru komin mötuneyti á vinnustöðum, skólamáltíðir – og svo veitingahús. Ég bauð Lísu vinkonu minni að koma með mér og leita að góðum hádegis- verði og hefði reyndar getað sagt mér sjálfur hvers konar stað hún mundi velja hafandi í huga þær þrjár voldugu leyni- reglur sem grannvaxnar konur trúa á. Fyrsta reglan er þessi: Eftir þrítugs- afmælið þitt máttu aldrei framar borða þig sadda. Regla númer tvö: Álfakroppar eru ekki hannaðir fyrir hádegismat. Og þriðja reglan: Þegar álfameyjar fá sér næringu í hádeginu narta þær í salatblað – eða fá sér sushi. Lísa valdi sushi. Nánar tiltekið sushi- staðinn á loftinu yfir bókabúðinni Iðu í Lækjargötu sem hefur undirtitilinn THE TRAIN sem þýðir „lest“ á ensku því að þetta er sushi-staður af því tagi sem veitingamenn í Japan hönnuðu handa hádegisverðarkúnnum sem nefnast „salaryman“ í Japan sem mundi þýða „kontóristi“ á íslensku. Í stórborgum er nóg af slíku fólki og hefur ekki nema fáeinar mínútur til að gleypa í sig eldsneyti til að knýja sig áfram til kvölds. Uppfinningin fólst í því að setja upp færiband úr eldhúsinu og láta réttina bruna fram hjá gestum sem rétta út höndina eftir því sem þeim þykir girni- legt, en kokkarnir hamast í eldhúsinu við að bæta nýjum réttum á bandið. „Sushi“ - ?? - samsvarar því sem Danir kalla „smörrebröd“, nema hvað Japanir nota hrísgrjón vætt í ediki í stað brauðs og áleggið skal vera ferskt, mestan part hrár fiskur eða hrátt grænmeti. Ferskleiki hráefnis og hugkvæmni sushi- meistarans ræður því hvernig máltíðin heppnast. Við Lísa settumst við færibandið. Þjónn kom á vettvang. Hann var ekki íslensku- mælandi svo að Lísa túlkaði fyrir mig – en hún er frá Bandaríkjunum. Ég bað um mísó-súpu og vatn en Lísa grænt te (pokate). Við helltum sojasósu í örlitlar skálar og hrærðum wasabe út í, en það er búið til úr dufti af sterkri piparrót. Síðan dýfir maður sushi-réttunum í þetta og ræður hversu sterklega sósan er krydduð. Bitar á færibandinu kosta 200 til 350 kr. og í lok máltíðar er talið hvað maður hefur safnað að sér mörgum undirskál- um, mismunandi litir, mismunandi verð. Hver snúningur á bandinu tekur þrjár mínútur og því fljótlegt að sjá hvað í boði er. Nýstárlegast var eitthvað sem virtist vera túnfisksalat vafið í þarablöðku, en það leyndi á sér því að í salatinu reyndist vera brjósk úr kjúklingi en það væri ábyggilega snjallræði að rækta sækjúklinga neðansjávar og kenna þeim að anda með tálknum til að forðast fuglaflensu. Sem eftirrétt völdum við fyrirtaksfrauð úr hvítu súkkulaði. Kannski leggja sushi-meistararnir þarna of mikla áherslu á að hafa mikið magn á færibandinu hverju sinni því að gallinn á máltíðinni var að ferskleikann vantaði. Eldislaxinn var ferskastur en eldislax er ekki æsispennandi. Máltíðin fyrir okkur Lísu kostaði (með virðisauka) 5.400 kr. Samtals 18 bitar. Þetta var allt saman gott og blessað, en verðskuldar ekki sérstaka viðurkenningu, svo að kórónur, þjónar og kokkahúfur bíða betri tíma. Verði ykkur að góðu! ÓSUSHI THE TRAIN LÆKJARGÖTU 2B 101 R 0 0 0 Þráinn metur veitngastaði út frá þremur grundvallaratriðum: umhverfi, þjónustu og vita- skuld matnum sjálfum. Hann gefur kórónur fyrir umhverfið, þjóna fyrir þjónustuna og kokka- húfur fyrir matseldina. Staðirnir geta mest fengið þrjú tákn í hverjum flokki og efstu stig einkunnargjafa hans eru þá: Huggulegur staður, framúrskarandi þjónusta og frábær matur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.