Tíminn - 24.07.1977, Síða 28

Tíminn - 24.07.1977, Síða 28
28 MHliíll Sunnudagur 24. júli 1977. I Michael Meschke Æfing á Antigdnu Látiö imynduninni tilfinn- ingarnar eftir. Lítum á marmarastyttur rómversku keisaranna. Berið saman höfuð Agústusar keisara —hreinleika þess, skinn og bein aöeins — viö krúsi- dúllurnar á eftirkomendum hans: vöövar móta svipbrigöin, hrokkiö skegg og hnignun og fall býsantisku keisaranna, augun Marionetteatern og siöan hafa verið tvær sýningar daglega i leikhúsi hans ætlaðar börnum, nema meðan starfsfólkiö tekur sér árlegt leyfi. Stokkhólmsborg styrkir nú leikhús Meschkes fjárhagslega og það fær aðstoð frá Borgar- leikhúsinu viövikjandi rekstrin- um, en sem Hstamaöur er Meschke algerlega sjálfstæöur. Þegar Bubbi kóngur er aö sýna veldi sitt kremur hann blátt áfram á milli handa sér 12 sm stóra bændur, sem hann er aö rifast við. Þegar Rússakeis- ari birtist þarf hann ekki að segja okkur hvaö hann er voldugur. Hann er fjögurra metra hár og logagylltur. Michael Meschke fékk lika pólska tónskáldið Krysztf Pend- erecki til aö semja tónlist við Bubba kóng. A nitján árum hafa 36 leikrit fyrir fulloröna verið sýnd i Skuggabrúöur frá Indóneslu Marionetteatern og 18 leikferðir hafa veriö farnar — til Banda- rikjanna, Thailands, Túnis og Hong Kong, Perú, Sovétrikj- anna, Mexikó, Indlands og margra annarra landa, þ.á m. Islands. Það er þvi viö hæfi að Anti- góna verður sýnd i Tyrklandi og Grikklandi áöur en sýningar á leikritinu hefjast i almennings- göröum Stokkhólmsborgar. Hann hefur gert brúðuleik viö Sögu hermannsins eftir Stra- vinskí, óperu Offenbachs Ævin- týri Hoffmanns, Divinu Commedíu Dantes, Tú skildingsóperu Brechts, leikrit eftir Giraudoux, Ionesco, Pabló Neruda og aðra. Hann leigði sænska þinghúsið til aö sýna LIFANDI fest á sjóndeildarhringnum, al- veg steindauð. Aðeins Agústus snertir okkur, af þviað listamaðurinn eftirlæt- ur okkur sjálfum aö finna til, þvingar ekki upp á okkur sinni eigin túlkun á manninum, sín- um eigin tilfinningum. Sama máli gegnir um leik- brúður. Við sjáum strengina og rykkjóttar hreyfingarnar, and- lit gerð úr taui, og við erum djúpt snortin, ósýnilegur brúöu- leikari kemur við hjartað I okk- ur. Bins og Michael Meschke. Hann er stofnandi og stjóm- andi Marionetteatern I Stokk- hólmi og eins og allir miklir listamenn er hann fylgjandi tæknikunnáttu og mikillar fágunar. Og fjölbreytni. Til eru fjórar gerðir leik- brúða: strengjabrúður stanga- brúður, hanzka- og skuggabrúð ur. Sumir brúðuleikarar halda sér eindregið að einhverri einni gerð þeirra, en Michael Meschke hefur notað þær allar og fundið upp fáeinar nýjar gerðir af brúðum. Hann lætur einnig leikara kom fram ásamt leikbrúðum. Hann fæddist i Danzig — I Gdynia, sem nú er i Póllandi — 1931, en þá var borgin sjálfstæð og undir vernd Þjóðabandalags- ins. Orö — full hljóms og öryggis, en merkingarlaus. Arið 1939 kom Meschke fjölskyldan til Sviþjóðar. Sautján ára gamall þegar Michel Meschke var enn i skóla datt honum i hug að gera brúðuleik eftir harmleik Sófó- klesar um ungu stúlkuna, sem kýs heldur að deyja en láta und- an: Antlgónu. A þessu ári verður Antigóna leikin með brúðum i útileikhúsi i Tyrklandi, og þá notar Meschke i fyrsta sinn brúður með hreyfanlegum andlitum, brúð- ur, sem eru yfir metri á hæö og undir áhrifum frá japönsku Bunraku leiktækninni. Þrjá leikara þarf til að stjórna hverri brúðu. Að skólanámi loknu skoöaði Meschke sig um í Evrópu. Hann ferðaðist ,,á puttanum” og kynnti sér m.a. brúöuleikhús hjá Harro Siegel f Brauns- chweig og látbragðsleik hjá gamia snillingnum Etienne De- croux i Parls. Hann stjómaöi einnig leikritum i Avignon og óperu i Salzburg. Arið 1958 stofnaði hann Japanska Bunraku tæknin Barnaleikritin eru bráð- skemmtileg og áhorfendur tala mikið við aðálpersónuna, Benjamin, mjög vinsæla brúöu. En Marionetteatern er lika fyrir fullorðna og Meschke er alltaf að gera tilraunir með nýja tækni. Hann notar aldrei sömu brúðurnar i tveim leikritum. Verk Michaels Mescke eru lengi að fæðast. Eins og meö Antígónu var hann aö hugsa um skritna leikritið hans Alfreðs Jarry, Bubba kóng, lengi vel, þangað til hann sá mynd- skreytingar við það eftir málar- ann Francizku Thermerson, sem f ædd er I Póllandi. Þar fann hann það sem hann leitaðiað, og hann fékk hana til að koma til Svíþjóðar og starfa i leikhúsi I fyrsta sinn. Saman sköpuðu þau „svart hvita sýningu” meö lifandi leik- ara í hlutverki Bubba, sem var umkringdur þriviðum persón- um af ýmsum stæröupi og pappirsbrúöum. 011 túlkunin hæfði mæta vel leikriti Alfreðs Jarry. Góða manneskjan frá Sezuan I uppsetningu frá 1963.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.