Fréttablaðið - 25.05.2006, Page 17

Fréttablaðið - 25.05.2006, Page 17
FIMMTUDAGUR 25. maí 2006 Á GÖNGU Tennessee-búinn Preston Wolfe hélt upp á 66 ára afmælisdaginn sinn í vikunni með því að ganga 66 mílur, rúma 106 kílómetra. Hann blés vart úr nös enda gönguhrólfur mikill. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Skagstrendingar og aðrir íbúar Höfðahrepps fjölmenntu á sam- eiginlegan framboðsfund beggja framboðanna í sveitarfélaginu sem haldinn var í félagsheimilinu Fellsborg á dögunum. Fjórir efstu menn Lýðræðislist- ans og Skagastrandarlistans fluttu framsöguræður og síðan spunnust líflegar umræður og spurningum utan úr sal var svarað. Á fjórða hundrað manns eru á kjörskrá í Höfðahreppi og er talið að á sjöunda tuginn hafi sótt fram- boðsfundinn, sem var hin besta skemmtan og um leið fróðlegur að sögn eins fundarmanna. Fjölmenni á framboðsfundi Sundglaðir Seltirningar geta tekið gleði sína á ný því gagngerum endurbótum á sundlaug bæjarins er að ljúka. Lauginni var lokað fyrir nokkrum mánuðum og þurftu bæjarbúar að sækja laugar í öðrum bæjarfélögum á meðan. Hátíð verður í lauginni í dag milli 14 og 16 þar sem léttar veit- ingar verða í boði. Laugin verður síðan opnuð klukkan 6.50 í fyrra- málið og geta Seltirningar þá stungið sér til sunds. Má segja að ekki sé seinna vænna að opna laugina svo að bæjarbúar geti skeggrætt pólitíkina á loka- metrum kosningabaráttunnar. Aftur synt á Seltjarnarnesi SYNT AF KAPPI Sundlaug Seltjarnarness verður opnuð til sundiðkunar í fyrramálið.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.