Fréttablaðið - 25.05.2006, Page 26
25. maí 2006 FIMMTUDAGUR26
og fólk
? Vissir þú...að hinn fallni stóðhestur Herv-
ar frá Sauðárkróki á 888 skráð
afkvæmi. Hæst dæmdur er Hektor
frá Akureyri með 8,41 í aðal-
einkunn. Eitt þekktasta afkvæmið
er þó Otur frá Sauðárkróki, faðir
gæðingaföðurins Orra frá Þúfu.
www.worldfengur.com
Íslandshestafélögin í Austurríki og Þýskalandi hafa ákveðið
að fara að dæmi Svía og Norðmanna og hafa gengið frá
samkomulagi um aðgang allra sinna félagsmanna að
WorldFeng. Að sögn Jóns Baldurs Lorange, verkefnisstjóra
WorldFengs, eru þetta tímamót í söfnun áskrifenda að
upprunaættbókinni og viðurkenning þessara félaga á starfi
allra þeirra sem unnið hafa baki brotnu í mörgum löndum á
undanförnum árum að uppbyggingu á WorldFeng.
Frétt af www.worldfengur.com
■ Ættbókin Worldfengur stækkar
Hestamannafélagið Fákur heldur fyrsta og stærsta úrtökumótið
fyrir Landsmót 2006 um helgina. Alls eiga 46 hestamanna-
félög í landinu rétt á að senda keppendur á landsmót.
Fákur á flesta fulltrúa inn á Landsmót enda stærsta
félagið. Þrátt fyrir það er keppnin í úrtökumótinu þar hörð
líkt og hjá öðrum félögum og búst má við spennandi
keppni.
■ Úrtökumót fyrir Landsmót hefjast
Átta reiðkennarar og fimmtán
tamningamenn útskrifuðust
síðastliðinn laugardag frá Hóla-
skóla. Athöfnin fór fram í Þráar-
höll en í tilefni af útskriftinni fór
fram reiðsýning reiðkennaranna
nýútskrifuðu. Sýningin hófst á
gæðingafimiverkefni Ragnheiðar
Þorvaldsdóttur og Hrafna-
galdurs frá Hvítárholti sem þótti
bera af. Þá voru sýnd bæði fjór-
gangs- og fimmgangsverkefni.
Verðlaun voru veitt fyrir góðan árangur. Hlaut Þórdís Erla Gunnarsdóttir tamn-
ingabikarinn, gefinn af Félagi tamningamanna.
Reiðkennararnir sem útskrifuðust voru: Artemisia Bertus frá Hollandi, Elsa Magnús-
dóttir frá Sólvangi við Eyrarbakka, Eyjólfur Þorsteinsson frá Hafnarfirði, Líney María
Hjálmarsdóttir frá Tunguhálsi II í Skagafirði, Ragnheiður Þorvaldsdóttir frá Hvítárholti,
Róbert Petersen frá Reykjavík, Sindri Sigurðsson frá Hafnarfirði og Stefán Ágústsson
frá Reykjavík.
■ Reiðkennarar útskrifast frá Hólum
Ólafur Róbert Rafnsson
ríður út með hund í bandi.
Hann segir reynsluna af því
góða og mælir með því að
aðrir hundaeigendur taki
upp þennan sið.
Lausaganga hunda er bönnuð í
Reykjavík. Það á einnig við í hest-
húsahverfum höfuðborgarsvæð-
isins sem kemur sér illa fyrir
hundaeigendur meðal hestamanna
sem vilja ekkert frekar en að geta
slegið tvær flugur í einu höggi og
hreyft bæði hesta sína og hunda
í einu. Ólafur Róbert Rafnsson
hefur fundið lausnina á vandanum
og ríður út með tík sína Ronju af
tegundinni Stóra Dan í bandi.
„Ég er með mjög stóran hund
en hún er svipuð á hæð og folald.
Almennt er fólk hræddara eftir því
sem hundurinn er stærri þó engin
ástæða sér til þess,“ segir Ólafur
um ástæður þess að hann ákvað að
prófa þessa nýstárlegu leið í reið-
mennsku. Hann fékk hugmynd-
ina á spjallvef hestamanna. „Þar
var verið að ræða um að hundar
ættu ekki heima í hesthúsum og
ættu ekki að vera lausir. Þá sagði
einhver að hann riði út með hund í
bandi og ég ákvað að prófa þetta,“
segir Ólafur og greinir frá því að
það hafi tekið nokkurn tíma að
venja hestinn við þetta fyrirkomu-
lag. „Hesturinn sem ég er á er bæði
kvikur og með lítið hjarta. Það tók
nokkur skipti áður en hann fór að
róast,“ segir Ólafur en áréttar að
hundurinn hafi verið mjög sátt-
ur við þetta strax frá byrjun þótt
hann hafi auðvitað þurft að læra
að bera sig rétt að. „Fyrst var hún
að fara svolítið aftur fyrir hestinn
og ég lenti í því nokkrum sinnum
að hesturinn settist beinlínis niður
þegar hann fékk band aftan í sig,“
segir hann kíminn.
Ólafur hefur það fyrir sið að
hafa hundinn alltaf hægra megin
við sig þegar hann mætir fólki
og notar röddina til að fá hana
samhliða sér. „Sumir hestar hafa
stoppað og hringsnúist þegar ég
mæti þeim,“ segir Ólafur en hann
hefur yfirleitt fengið mjög góð
viðbrögð frá hestamönnum. „Það
var gamall maður um daginn sem
stoppaði og sagði að þetta væri
virðingarvert. En annars er fólk
einnig mjög forvitið,“ segir Ólafur
sem veit þó ekki til þess að nokkur
hafi tekið þetta upp eftir honum.
Ólafur finnur lítið fyrir því að
hafa hundinn með sér á hestbaki
og vill meina að það sé betra að
teyma hund en annan hest. „Hestar
eru oft svo nálægt manni og geta
sparkað ístaðinu af,“ lýsir hann.
Ólafur mælir hiklaust með
þessari aðferð við hundahald.
Hann segir engu máli skipta hvaða
hundategund um ræði því þetta sé
eitthvað sem lærist eins og hvað
annað. „Það er tilgangurinn með
að vera með svona hund að geta
haft hann með sér í útiveru,“ segir
Ólafur sem notar einnig hina
þriggja ára gömlu Ronju til að
draga sig á línuskautum.
solveig@frettabladid.is
Teymir hund á hestbaki
Í GÓÐUM FÉLAGSSKAP Þau Ólafur og tíkin Ronja vekja athygli hvar sem þau fara. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Skúli Þór Jóhannsson heitir hann, ungur hesta-
maður í Hafnarfirði sem hefur verið atkvæða-
mikill á keppnisvellinum allt frá því að hann fór
að geta stjórnað hesti. Í pollaflokki
var hann nánast kominn í áskrift
að 1. verðlaunum, svo
hann var færður upp
í barnaflokk. Í ár
keppir hann í fyrsta
sinn í unglinga-
flokki, en hann
verður fjórtán ára í haust.
Skúli Þór er án vafa einn af keppnisknöp-
um framtíðarinnar. Á nýafstöðnu íþróttamóti
Sörla vann hann töltið, varð þriðji í fimmgangi
unglinga og ungmenna, sem kepptu til úrslita
í sama flokki, fjórði í fjórgangi unglinga, stiga-
hæsti knapinn í unglingaflokki og jafnframt
stigahæstur í íslenskri tvíkeppni. Þá keppti hann
í gæðingaskeiðinu. Skúli Þór keppti á tveimur
hrossum að þessu sinni, Birtu frá Þverá og
stóðhestinum Speli frá Hafsteinsstöðum.
„Þetta er í fyrsta skipti sem ég keppi í gæð-
ingaskeiði, en hef áður keppt í fimmgangi og
hundrað metra skeiði,“ segir kappinn ungi og
bætir við: „Birta lá hjá mér einn sprett á mótinu
um síðustu helgi.“
Skúli Þór segir mun skemmtilegra að taka
þátt í mótum eftir því sem hann færist ofar
í aldursflokkum. „Keppnin er mun harðari í
unglingaflokknum, að minnsta kosti á stærri
mótum,“ segir hann. „Mér finnst það skemmti-
legra.“
Um Spöl segir Skúli Þór að hann sé í raun
meiri gæðingur heldur en íþróttahestur. „Það
er mjög gaman að keppa á honum og hann er
svakalega rúmur á töltinu. Ef ég kemst á Lands-
mót með hann þá klára ég það. Síðan verð ég
víst að skila honum,“ bætir hann við en Spölur
er í eigu Sólvangsbúsins.
Skúli Þór er farinn að fást svolítið við tam-
ingar. Nú er hann með fola sem hann segist
vera að æfa sig í að gangsetja. Að auki á hann
hryssuna Birtu sem að ofan er getið.
Hestamennska Skúla Þórs fer þó ekki
einungis fram á keppnisvöllunum. „Á hverju ári
fer öll stórfjölskyldan saman í hestaferðir eða
lengri útreiðartúra. Í fyrra fórum við á Löngu-
fjörur og það var alveg frábært.“
Skúli og Spölur
Tveir góðir saman.
HESTAMAÐURINN: SKÚLI ÞÓR JÓHANNSSON
Skemmtilegast í harðri keppni á stærri mótum
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
U
Ð
R
Ú
N
S
TE
FÁ
N
SD
Ó
TT
IR
Æskilegur undirbúningur trippis fyrir tamningu
Þórdís Erla Gunnarsdóttir, nýútskrifaður
tamningamaður frá Hólum, segir það
gott að trippi sé orðið mannvant og
leiðitamt þegar það kemur til tamn-
ingamanns. Eigandinn geti jafnvel verið
búinn að venja það við að taka upp
lappirnar á því.
„Þó er betra að eigandi trippis geri
frekar minna heldur en meira hyggist
hann undirbúa það fyrir tamningu
hjá fagmanni,“ segir Þórdís Erla. Hún
bendir á að það sé þó grundvallaratriði,
að trippið beri virðingu fyrir og traust til
mannsins. Ákjósanlegt sé að eigandinn
leiti ráðlegginga fagmanns við und-
irbúninginn sé hann ekki fullviss um
hvernig hann eigi að bera sig að.
„Lengi býr að fyrstu gerð og hrossin
eru fljót að læra bæði siðina og
ósiðina,“ segir Þórdís Erla. „Tamningin
er grunnurinn að öllu hinu sem á eftir
kemur. Ef ná á út úr hverjum einstakl-
ingi því sem í honum býr má ekki kasta
til höndum, heldur verður að vanda í
hvívetna til tamningarinnar.“
Spurð um bestu aðferðirnar við
að snúa ofdekruðum trippum til
betri vegar segir Þórdís Erla það mjög
misjafnt eftir einstaklingum. Fara þurfi
yfir samskiptakerfi manns og hests
og koma hestinum í skilning um að
maðurinn sé leiðtoginn og hesturinn
eigi að bera virðingu fyrir honum.
Tamningarnar byggi mikið á hegðun og
viðbrögðum hestsins í náttúrunni.
„Þetta er heilmikil vinna og það
koma góðir dagar og slæmir eins og í
öllu öðru,“ segir hinn nýbakaði tamn-
ingamaður. „En það þarf bara einn
góðan dag til að gleyma þeim slæmu.“
Hestamenn eru orðnir tölvuvæddir líkt og
aðrir íslenskir þegnar. Fjöldi hestamanna
heldur úti heimasíðum um hestabú sín og
rekstur sem tengist hestamennsku. Reknir
eru nokkrir fréttamiðlar sem sérhæfa sig í
fréttum af mótum, uppákomum og sögum
af fólki. Þessir vefir eru www.hestar.net,
www.eidfaxi.is, www.hestafrettir.is og
www.847.is.
Umræðuvefir eru á nokkrum af þessum
síðum og eru þeir vel nýttir. Þar gefa hestamenn hvorir öðrum ráð og spyrjast frétta
um það sem er hæst á baugi í hestaheiminum hverju sinni.
■ Vefmiðlar hestamanna
VELFERÐ UMHVERFI NÝSKÖPUN
Ólafur F. Magnússon,
læknir og borgarfulltrúi
1 sæti
„ Flugvöllinn
áfram í
Vatnsmýrinni.“
SÉRFRÆÐINGURINN: ÞÓRDÍS ERLA GUNNARSDÓTTIR TAMNINGAMAÐUR