Fréttablaðið - 25.05.2006, Qupperneq 30
25. maí 2006 FIMMTUDAGUR30
Öldruðum hefur fjölgað mikið
undanfarin ár og verða málefni
þeirra sett á oddinn hjá sjálfstæðis-
mönnum í Kópavogi næstu árin.
Sjálfstæðismönnum er annt um að
íbúum í Kópavogi líði vel og að allir,
óháð félagslegri stöðu og uppruna,
hafi möguleika á að njóta sín í leik
og starfi. Félagslíf aldraðra í Kópa-
vogi hefur verið öflugt en alltaf má
gera betur. Mikilvægt er að styðja
valfrelsi einstaklingsins hvað varð-
ar þjónustu og að hann geti valið
það búsetuform sem hentar honum.
Til þess að geta mætt aukinni þörf á
þjónustu þarf bæjarfélagið að vera
vel rekið og standa vel fjárhags-
lega. Það gerir Kópavogur.
Við blasir að efla þarf stoðþjón-
ustu inni á heimilum og fyrirbyggja
félagslega einangrun þeirra sem
búa einir. Einnig er mikilvægt að
stytta biðlista að hjúkrunarheimil-
um og þjónustuíbúðum. Í stefnuskrá
sjálfstæðismanna segir að stefnt
verði að því að ljúka fyrsta áfanga á
nýjum hjúkrunar- og öryggisíbúð-
um við Boðaþing árið 2007. Einnig
að styrkja eigi þjónustu við íbúa í
Sunnuhlíð með fjölgun þjónustu-
íbúða og stækkun hjúkrunarheimil-
is.
Það er dapurlegt þegar öldruð
hjón eða sambýlisfólk stendur
frammi fyrir aðskilnaði eftir langa
samveru og búskap vegna þess að
annað þeirra getur ekki verið áfram
heima en hitt er það vel á sig komið
að það fær ekki inni á öldrunar-
heimili. Þess vegna vilja sjálfstæð-
ismenn auka búsetumöguleika eldri
borgara. Í nýju hjúkrunar- og örygg-
isíbúðunum við Boðaþing verður
reynt að tryggja að fólk geti búið
áfram saman og notið þjónustu.
Almenningssamgöngur þarf að
efla og auðvelda öldruðum sem og
fötluðum að komast leiðar sinnar. Á
stefnuskrá flokksins er stefnt að
því að auka þessa þjónustu til muna.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt
ríka áherslu á að sú þjónusta sem
Kópavogur býður íbúum sínum
henti bæði ungum sem öldnum. Við
ætlum að halda áfram að tryggja
öllum bæjarbúum öruggt og gott
umhverfi svo þeir fái notið sín leik
og starfi, óháð félagslegri stöðu og
uppruna.
Höfundur skipar 9. sæti á lista
Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi.
Búum vel að öldruðum
UMRÆÐAN
KOSNINGAR
LOVÍSA ÓLAFSDÓTTIR
FRAMBJÓÐANDI
Ég hef fylgst með Reykjavík breyt-
ast úr syfjulegum smábæ í spenn-
andi borg. Ég er oft hissa á því að
Reykjavík virkar stundum eins og
milljónaborg miðað við framleiðsl-
una á menningu, listum, hönnun og
hugviti.
Hér er gott að búa og hér eru
tækifærin til að grípa þau. En eins
og Steinn Steinarr orti, þá er stund-
um vitlaust gefið í lífsins spili. Þess
vegna er ég komin í pólitík og þess
vegna valdi ég Samfylkinguna. Sam-
fylkingin er stjórnmálahreyfing
sem stendur fyrir fallega hluti; jafn-
aðarstefnan vill að allir séu með. Við
viljum að barnafólk hafi efni á að
hafa börnin í leikskóla, og að ungt
fólk og stúdentar geti leigt íbúðir á
viðráðanlegu verði, við viljum að
Reykjavík sé borg beggja kynja og
við viljum að samkynhneigðir fái að
giftast. Á okkar lista eru reynslu-
boltar og nýgræðingar og mig grun-
ar að við höfum góða tilfinningu
fyrir kraftinum í borgarbúum - og
kunnum að koma honum til skila.
Hvað menninguna áhrærir hefur
margt gott gerst í Reykjavík síðast-
liðin ár; Tónlistarhátíðir eins og Ice-
land Airwaves, Menningarnótt,
Loftbrú fyrir tónlist, myndlist, leik-
list og ritlist hefur lyft undir reyk-
víska listamenn og flogið með þá til
útlanda svo þeir geti breitt út sín
sköpunarverk. Loftbrúin er dæmi
um einfalda hugmynd sem Samfylk-
ingarmaður fékk og þremur vikum
seinna var hún komin í framkvæmd
- svona viljum við vinna. Ég er með
hugmynd að alþjóðlegri listahátíð
ungra kvenna sem gæti orðið spenn-
andi og skemmtilegt verkefni.
Skáldkonur, kvikmyndagerðarkon-
ur og myndlistarkonur hittast í
Reykjavík til að kynnast, vinna og
sýna. Þetta myndi vekja mikla
athygli á kvennaeyjunni í norðri. Ég
gæti auðvitað talið upp þúsund hug-
myndir sem gera Reykjavík að
skemmtilegri borg, menningin er
svo alltumlykjandi og menningin á
að vera fyrir alla. Hún er hjartslátt-
urinn í lífsgæðunum.
Höfundur er í 5. sæti á lista Sam-
fylkingarinnar í Reykjavík.
Hjartsláttur lífsgæðanna
UMRÆÐAN
KOSNINGAR
ODDNÝ STURLUDÓTTIR
FRAMBJÓÐANDI
Það er komið vor í Reykjavík. Sólin
er farin að hækka á lofti og hin
óviðjafnanlega vorlykt berst um
vit borgarbúa.. Vorlyktin ber merki
umbreytinga. Um að árstíðaskipti
eigi sér stað og að betri tíð fari í
hönd. Breytinga er að vænta víðar.
Skoðanakannanir gefa vísbendingu
um að Reykvíkingar óski breytinga
á stjórnarháttum í Reykjavík.
Næstkomandi laugardag geta
Reykvíkingar valið Sjálfstæðis-
flokkinn til forystu í Reykjavík.
Undanfarnar vikur hafa frambjóð-
endur Sjálfstæðisflokksins unnið
að því að kynna stefnumál sín fyrir
íbúum Reykjavíkur. Kjarni þeirrar
stefnu sem snýr að fjölskyldumál-
um snýr að því að bæta lífsgæði
fjölskyldna í borginni og búa í hag-
inn fyrir börnin í Reykjavík.
Börn eiga það besta skilið -
á heimili og í skóla
Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að
bjóða börnum í Reykjavík upp á
betri skóla. Skólastarf þarf að mæta
ólíkum þörfum nemenda og laða
sig að straumum og stefnum fræði-
umhverfisins. Því þarf að auka
sveigjanleika í skólakerfinu og
draga úr miðstýringu. Skólum þarf
að veita aukið sjálfstæði, stefnu-
mótun innan skólanna þarf að færa
í auknum mæli til stjórnenda og
starfsfólks auk þess sem hvetja
þarf foreldra til aukinnar aðkomu
að skólastarfinu. Við sjálfstæðis-
menn höfum einnig talað fyrir
nauðsyn þess að auka fjölbreytni
og valfrelsi í grunnskólum Reykja-
víkur. Í Reykjavík eiga foreldrar að
hafa frjálst val um grunnskóla fyrir
börn sín. Reykjavíkurborg mun þó
að halda áfram að greiða með
hverju barni sömu upphæð, óháð
búsetu eða rekstrarformi skólans.
Betra fæði - bætt heilsa
Sjálfstæðisflokkurinn boðar heils-
uátak í öllum grunnskólum. Bæta
þarf mataræði ungmenna hið
fyrsta. Hollur matur í skóla er
mikilvæg forvarnaraðgerð gegn
offitu og sætindaáti barna og ungl-
inga auk þess að bæta skólastarf
og starfsgetu nemenda. Mikilvægt
er fyrir heilsu barna og líðan að
þau eigi kost á góðri máltíð á skóla-
tíma. Með aukinni viðveru barna í
skólanum er þörfin brýnni. Nauð-
synlegt er að tryggja öllum börn-
um heita næringarríka máltíð á
skólatíma og á það jafnt við yngstu
börnin sem eldri bekki grunnskóla.
Sjálfstæðisflokkurinn vill auka
gæði máltíða í grunnskólum og
lækka verðið þannig að það verði á
við nestispeninga.
Ferskir vindar
Sjálfstæðismenn í Reykjavík vilja
gera Reykjavík að betri fjölskyldu-
borg, þar sem markmiðið er að
auka val, gæði og árangur í allri
þjónustu og fjölga tækifærum fjöl-
skyldna til samveru - þannig að
sem flestir geti notið lífsins í
Reykjavík. Laugardaginn 27. maí
fara fram kosningar til borgar-
stjórnar. Valdið er í höndum kjós-
enda um hvaða flokkur fær að
stýra borginni næstu fjögur árin.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur kynnt
metnaðarfulla stefnu sem hann
hyggst fylgja eftir á staðfastan
hátt. Óskum við því eftir brautar-
gengi kjósenda til að gera borgina
betri - fyrir alla. Setjum X við D
þann 27. maí.
Höfundur er viðskiptalögfræð-
ingur og skipar 16. sætið á fram-
boðslista sjálfstæðismanna í
Reykjavík.
Bætum hag barna
UMRÆÐAN
KOSNINGAR
HELGA KRISTÍN AUÐUNSDÓTTIR
FRAMBJÓÐANDI