Fréttablaðið - 25.05.2006, Qupperneq 38
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
GÓÐAN DAG!
Í dag er fimmtudagurinn
25. maí, 145. dagur ársins
2006.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 3.42 13.25 23.10
Akureyri 3.01 13.09 23.21
Geðhjálp hefur opnað nýjan vef,
www.gedhjalp.is. Vefurinn er nú til
reynslu en mikil vinna var lögð í að
hann yrði aðgengilegur öllum. Allar
ábendingar, hugmyndir og athuga-
semdir eru vel þegnar. Ætlunin er
að hýsa á vefnum reynslusögur og
efni um málefni geðsjúkdóma.
Má Mí Mó, húsgagnaverslun, er að
hætta starfsemi sinni. Vegna þessa
verður rýmingarsala í versluninni
út maímánuð. Hægt verður að fá
mikinn afslátt af vörum og efnum.
Verslunin er til húsa að Tryggva-
götu.
Gyllti kötturinn átti von á risastórri
sendingu af nýjum vörum í vikunni.
Hins vegar brást þjónustan hið ytra
og búðin fékk aðeins hluta send-
ingarinnar í hús. Því er von á enn
fleiri vörum á næstu dögum og
því vert að gera sér nokkrar ferðir í
Gyllta köttinn til að kíkja á úrvalið.
ALLT HITT
[TÍSKA HEIMILI HEILSA]
Reynslan hefur sýnt sig að það er aldrei gott að henda
neinni flík, þar sem tískustraumar koma í bylgjum.
Heiðdís Lilja Magnúsdóttir, blaðamaður Nýs lífs,
datt í lukkupottinn þegar hún gramsaði í gegnum
ruslapoka á æskuheimili sínu.
Heiðdís var stödd á heimili foreldra sinna á Sauðárkróki
þegar hún rakst á forláta kjól sem í dag er hennar uppá-
haldsflík. „Foreldrar mínir voru að flytja af æskuheimili
mínu og ætluðu að henda úr geymslunni. Ég ákvað að
gramsa aðeins og fann þessa dásemd á botninum á einum
kassanum. Ég fílaði mig eins og Harrison Ford þarna því
hefði ég ekki grafið kjólinn upp hefði hann einfaldlega lent
í ruslinu.“ Kjólinn hafði móðir Heiðdísar átt og keypti hann
fyrir nokkrum áratugum í London.
Helsta kost kjólsins segir Heiðdís vera einfaldleika hans.
„Ermarnar eru líka skemmtilegar, lausar og loftkenndar.
Að framan er síðan flott heklað stykki og að aftan er hann
bundinn með slaufu. Mér finnst ég voðalega fín þegar ég er
komin í hann,“ segir Heiðdís og bætir við að hún hafi notað
hann sem spari, í brúðkaup og árshátíðir, og einnig yfir
gallabuxur.
Dags daglega segist Heiðdís helst klæðast gallabuxum
og síðan einhverjum flottum kjól, bol eða topp utan yfir.
„Ég er samt ekki síðkjólatýpa, ég er ekki mikið fyrir glam-
úr galakjóla og læt helst ekki sjá mig í þeim,“ segir Heiðdís
með bros á vör. Hún segist einnig vera sammála Silvíu Nótt
um að buffalo-skór séu ekki mjög töff.
Heiðdís segist óhjákvæmilega hugsa mikið um tísku
enda skrifi hún mikið um tísku í Nýju lífi. „Ég er samt eng-
inn tískugúru, ég lifi hvorki né hrærist í þessu, að öðru leyti
en því að ég ligg í tískublöðum og reyni að vera með á nót-
unum. Ég hef samt gaman af tísku, ég neita því ekki.“
steinthor@frettabladid.is
Fann kjól í
foreldrahúsi
Heiðdís Lilja Magnúsdóttir, blaðamaður Nýs lífs, í flotta svarta kjólnum sínum sem hún fann á botni kassa sem var
á leið í ruslið. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL
UPPLIFUN FYRIR
LYKTARSKYN, AUGU
OG BRAGÐLAUKA
Franskar heimilisvörur í rómant-
ískum sveitastíl fást í versluninni
Nóru sem var opnuð nýlega.
HEIMILI 6
NÚTÍÐ OG FORTÍÐ
KALLAST Á
Sýning á verkum Steinunnar
Sigurðardóttur fatahönnuðar
er opnuð í dag á Heimilisiðn-
aðarsafninu á Blönduósi.
TÍSKA 4
FÓTBOLTI ER EKKI BARA
FÓTBOLTI.
Hinn ofurbreski tískuhönnuð-
ur Paul Smith hefur hannað
fjörlega og flotta
línu sérstaklega
fyrir heims-
meistaramótið
í fótbolta. Hann
er eins og flest-
allir Bretar mikill
áhugamður
um keppnina
en gamaldags
fótboltar hans
hafa vakið mestu
athyglina. Hægt er að
skoða línuna nánar á heima-
síðunni www.paulsmith.
co.uk/shop/world-cup.
Skemmtileg mynstur setja
áhugaverðan brag á boltana
og sæma sér jafnvel vel uppi í
hillu. Þeir kosta líka skilding-
in eða frá rúmlega tuttugu
þúsund krónum.
Þó er hægt að fá
mun heðfbundn-
ari bolta, sem
eru að vísu ekki
nærri eins flottir,
í verslunum
Selfridges fyrir
mun minni
pening, um tvö
þúsund krónur.
Hver segir svo að
tískuliðið geti ekki
spilað fótbolta, sjáið bara
David Beckham.
- sha
Tískuboltar frá Paul Smith