Fréttablaðið - 25.05.2006, Síða 67
66 25. maí 2006 FIMMTUDAGUR
Reykjavík er höfuðborg Íslands, fjölmennasta
sveitarfélag landsins og eina borgin. Þar bjuggu
114.968 manns um síðustu áramót. Bærinn
fékk kaupstaðarréttindi árið 1786 en þá voru
íbúar 167 talsins.
ÚRSLIT KOSNINGANNA 2002
Fjöldi íbúa á kjörskrá: 82.508
Fjöldi greiddra atkvæða: 69.239 (83,9%)
Listi Höfuðborgarsamtakanna (A)
397 atkvæði - 0 fulltrúa
Listi Sjálfstæðisflokksins (D)
27.516 atkvæði - 6 fulltrúa
Listi Frjálslyndra og óháðra (F)
4.141 atkvæði - 1 fulltrúa
Listi Húmanistaflokksins (H)
126 atkvæði - 0 fulltrúa
Listi Reykjavíkurlistans (R)
35.938 atkvæði - 8 fulltrúa
Listi Vinstri, hægri, snú (Æ)
246 atkvæði - 0 fulltrúa
Borgarfulltrúar D-lista
Björn Bjarnason
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
Guðrún Ebba Ólafsdóttir
Hanna Birna Kristjánsdóttir
Guðlaugur Þór Þórðarson
Kjartan Magnússon
Borgarfulltrúi F-lista
Ólafur F. Magnússon
Borgarfulltrúar R-lista
Árni Þór Sigurðsson
Alfreð Þorsteinsson
Stefán Jón Hafstein
Steinunn Valdís Óskarsdóttir
Anna Kristinsdóttir
Björk Vilhelmsdóttir
Dagur B. Eggertsson
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
KOSNINGAR 2006
Fjöldi íbúa á kjörskrá 85.618 og
hefur fjölgað um 3,8 prósent síðan 2002
B-listi Framsóknarflokks
1. Björn Ingi Hrafnsson
aðstoðarmaður forsætisráðherra
2. Óskar Bergsson húsasmíðameistari
3. Marsibil Sæmundardóttir varaborgarfulltrúi
4. Ásrún Kristjánsdóttir hönnuður
5. Steinarr Björnsson læknir
6. Helena Ólafsdóttir, íþróttakennari
7. Gerður Hauksdóttir þjónustufulltrúi
8. Ingvar Jónsson flugmaður
D-listi Sjálfstæðisflokks
1. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarfulltr.
2. Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarfulltr.
3. Gísli Marteinn Baldursson,
dagskrárgerðarmaður og varaborgarfulltrúi
4. Kjartan Magnússon borgarfulltrúi
5. Júlíus Vífill Ingvarsson lögfræðingur
6. Þorbjörg H. Vigfúsd., ráðgj. menntam.ráðh.
7. Jórunn Ósk Frímannsd. Jensen,
hjúkrunarfræðingur og varaborgarfulltrúi
8. Sif Sigfúsdóttir, MA í mannauðsstjórnun
F-listi frjálslyndra og óháðra
1. Ólafur F. Magnússon, læknir og borgarfulltrúi
2. Margrét Sverrisdóttir, frkv.stjóri
og varaborgarfulltrúi
3. Guðrún Ásmundsdóttir
leikkona
4. Ásta Þorleifsdóttir
jarðfræðingur
5. Anna Sigríður Ólafsdóttir
næringarfræðingur
6. Kjartan Eggertsson skólastjóri
7. Sveinn Aðalsteinsson
viðskiptafræðingur
8. Margrét Tómasdóttir læknanemi
S-listi Samfylkingarinnar
1. Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi
2. Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri
3. Stefán Jón Hafstein borgarfulltrúi
4. Björk Vilhelmsdóttir borgarfulltrúi
5. Oddný Sturludóttir rithöfundur
og píanókennari
6. Sigrún Elsa Smáradóttir, markaðsstjóri
og varaborgarfulltrúi
7. Dofri Hermannsson, meistaranemi
í hagvísindum
8. Stefán Jóhann Stefánsson hagfræðingur
V-listi Vinstrihreyfingarinnar -
græns framboðs
1. Svandís Svavarsdóttir frkv.stjóri
2. Árni Þór Sigurðsson borgarfulltrúi
3. Þorleifur Gunnlaugsson dúklagningarmeist.
4. Sóley Tómasdóttir, deildarstýra, Miðbergi
5. Hermann Valsson íþróttakennari
6. Ugla Egilsdóttir menntaskólanemi
7. Helga Björg Ragnarsdóttir félagsfræðingur
8. Jóhann Björnsson, heimspekingur/kennari
Litir:
Grænn: pantone 356cvu
Rau•ur: pantone 485cvu
fiJÓ‹VAKI
FRAMHALD Á NÆSTU OPNU
HVER ER STEFNA ÞÍNS FLOKKS VARÐANDI
FRAMTÍÐ REYKJAVÍKURFLUGVALLAR?
■ Björn Ingi: Flugvöllur á Lönguskerjum er
lausn á 50 ára deilumáli í Reykjavík. Þessi
lausn sameinar kröfuna um að byggt verði
í Vatnsmýri en flugvöllurinn verði samt sem
áður áfram í Reykjavík. Borgarstjórn hefur
þegar tekið ákvörðun um flutning flugvallarins og
þess vegna verður að finna honum nýtt framtíðar-
stæði. Lönguskerin fela í sér lausn sem tryggir aðkomu sjúkraflugs,
framtíð innanlandsflugsins og störf þeirra 600 til 1000 manna sem
vinna að flugrekstri hér á landi.
■ Vilhjálmur: Sjálfstæðismenn vilja að
flugvöllur verði áfram í Reykjavík. Innan-
landsflugið verður ekki flutt til Keflavíkur.
Að lokinni athugun nefndar sérfræðinga sem
nú er að kanna hugsanleg ný flugvallarstæði
og einnig hugsanlegar breytingar á fyrirkomulagi
flugvallarins í Vatnsmýrinni verður tekin ákvörðun
um framtíðarlegu flugvallarins, þar sem öryggissjónarmið munu
ráða úrslitum.
■ Ólafur: Stærsta ágreiningsmálið og um
leið þýðingarmesta skipulags- og sam-
göngumál í Reykjavík í komandi kosningum er
flugvallarmálið. Atkvæði greitt F-lista tryggir að
flugvöllurinn verður áfram í Vatnsmýri, en við ætlum
að byggja háskóla- og vísindaþorp í sátt við flugvöll-
inn og umhverfið. F-listinn hafnar alfarið hugmynd-
um hinna flokkanna í borginni um að setja flugvöllinn út á sjó eða
upp til heiða með ærnum tilkostnaði og minna flugöryggi. Flytjist
starfsemi Reykjavíkurflugvallar til Keflavíkur mun innanlandsflugið
leggjast að mestu leyti niður og umferðin færast út á þjóðvegina
með verulegri fjölgun dauðaslysa í umferðinni.
■ Dagur: Flugvöllurinn er á förum
úr Vatnsmýrinni. Undir forystu
Samfylkingarinnar hefur tekist að fá
samgönguráðuneytið með í þann leiðangur
að leita að nýju flugvallarstæði. Þar verður þörfum
innlandsflugs og sjúkraflugs vel sinnt. Taka á af
skarið um framtíðarstaðsetningu í kjölfar úttektar
á álitlegum kostum sem nú stendur yfir. Samfylkingin leggur
til að Reykjavíkurborg og ríkið stofni sameiginlegt félag um
flutning flugvallarins og þróun Vatnsmýrarinnar þar sem byggt
verði á niðurstöðum yfirstandandi hugmyndasamkeppni um
heildarskipulag svæðisins. Félagið fái hluta tekna af löndum og
lóðum ríkis og borgar á flugvallarsvæðinu til að fjármagna verkefni
sín samkvæmt nánara samkomulagi. Til að tryggja fjölbreytta
uppbyggingu svæðisins verði að minnsta kosti fjórðungur íbúða í
Vatnsmýri leiguíbúðir og stúdentagarðar.
■ Svandís: Vatnsmýrin er gríðarlega mikil-
vægt og spennandi svæði til uppbyggingar.
Þar sjáum við fyrir okkur blandaða byggð,
með grænum geirum, lágreistri byggð
íbúða, skóla og þjónustu ásamt umhverfis-
vænum samgöngum. Við höfum fylgst með þeirri
vinnu sem nú er í gangi á vegum ríkis og borgar um
flugvallarmálið. Í þeirri vinnu hafa fjölmargir kostir verið skoðaðir
en þeim hefur nú verið fækkað í fjóra, þ.e. flugvöll í Vatnsmýri í
breyttri mynd, á Lönguskerjum, Hólmsheiði og loks að innanlands-
flugið flytjist til Keflavíkur. Af þessum kostum teljum við Hólms-
heiði ákjósanlegasta. Sú staðsetning er landfræðilega sú besta og
tengir saman allt suðvesturhornið frá Borgarbyggð til Árborgar og
Reykjaness. Allir þessir kostir eiga þó eftir að fara í mat á umhverfis-
áhrifum, frekari skoðun á veðurfarsaðstæðum og flugtæknilegum
þáttum. Endanleg ákvörðun verður ekki tekin fyrr en allt þetta ligg-
ur fyrir.
HVER ER STEFNA ÞÍNS FLOKKS
UM LAGNINGU SUNDABRAUTAR?
■ Björn Ingi: Botngöng á ytri leið og farið
verði alla leið á Kjalarnes strax á næsta kjör-
tímabili. Það er leið sem er tæk, hefur farið
í umhverfismat og er hægt að ráðast í án
mikilla vandkvæða. Við höfnum hugmyndum Sam-
fylkingarinnar um einfalda Sundabraut og viljum
nýta það fjármagn sem nú þegar liggur fyrir vegna
sölu Símans í þetta geysilega brýna verkefni.
■ Vilhjálmur: Það á að leggja Sunda-
brautina fjögurra akreina alla leið upp á
Kjalarnes í einum áfanga. Ákvörðun um
legu brautarinnar verði tekin á þessu ári í
framhaldi af samráðsferli íbúa, borgarinnar og
samgönguyfirvalda og framkvæmdir hefjist á árinu
2008. Við erum jákvæð gagnvart jarðgöngum ef
þau verða talin heppilegasti kostur út frá skipulags-, umhverfis-,
umferðar- og öryggissjónarmiðum.
■ Ólafur: Við viljum að lega Sundabrautar
taki mið af þróun til framtíðar og að íbúar
verði sem minnst varir við umferðarþung-
ann. Sundabraut verði í göngum með góðum
tengingum við stofnbrautakerfi borgarinnar. Fyrsti
áfangi verði í göngum undir Elliðavog með upp-
komu við Gufunes. Þá taki við brú yfir í Geldinganes,
til að varðveita viðkvæma náttúru, en þar fari Sundabraut aftur í
göng undir Leiruvog með uppkomu í Víðinesi og loks á brú yfir
Kollafjörð. Með þessari útfærslu er komið til móts við óskir íbúa og
sjónarmið náttúruverndar jafnframt höfð að leiðarljósi.
■ Dagur: Sundabraut á að leggja alla leið
frá Kleppsholtinu á Kjalarnes í sátt við íbúa
Grafarvogs og Voganna. Samfylkingin hefur
haft forystu um það samráðsferli sem nú
stendur yfir og hefur tekið af skarið um það að fyrsti
kostur séu jarðgöng á ytri leiðinni, í samræmi við
vilja íbúa.
■ Svandís: Við erum fylgjandi þeim hug-
myndum sem Íbúasamtök Grafarvogs og
Laugardals hafa sett fram varðandi Sunda-
braut, þ.e. að hún verði lögð í jarðgöngum
frá Kirkjusandi að Gufunesi og þaðan á lág-
brú yfir í Álfsnes. Við teljum að í skipulagsákvörð-
unum af þessari stærðargráðu þurfi fyrst og fremst
að huga að hagsmunum heildarinnar, en ekki síður umhverfis og
sjónarmiða íbúa.
HVER ER STEFNA ÞÍN FLOKKS
Í LEIKSKÓLAMÁLUM?
■ Björn Ingi: Viðurkenna leikskólann sem
fyrsta skólastigið og bjóða uppá gjaldfrjáls-
an leikskóla á næsta kjörtímabili. Halda
áfram að vinna að bættum kjörum starfs-
fólks og styðja við það góða faglega starf sem
þar fer fram.
■ Vilhjálmur: Foreldrar eiga að hafa val
um örugga vistun fyrir ung börn sín frá
því fæðingarorlofi lýkur. Við munum lækka
leikskólagjöld um 25% 1. september 2006
og tryggja að foreldrar greiði aldrei fyrir fleiri
en eitt barna sinna sem dvelja á leikskóla samtím-
is. Öll leikskólabörn eiga að njóta sama stuðnings,
óháð því hvort foreldrar velja að nýta sér þjónustu
í borgarreknum eða sjálfstætt starfandi leikskólum. Við viljum
stofna sérstakar smábarnadeildir í leikskólum í hverju hverfi og
bjóða upp á val um nám fyrir eldri leikskólabörn, allt frá óform-
legri kennslu í listsköpun eða hreyfingu til kennslu sem t.d. tengist
lestri, tungumálum eða stærðfræði.
■ Ólafur: Öll börn eigi rétt á leikskólanámi
frá 2ja ára aldri eins og um skyldunám væri
að ræða. Markmið okkar er að börn komist
að á leikskólum frá 1 árs aldri og leikskólinn sé
gjaldfrjáls frá 2ja ára aldri. Leikskólar séu mannaðir
allt árið og sumarlokanir verði úr sögunni. Við viljum
efla dagforeldrakerfið vegna þess að við teljum gott
fyrir börn að vera í smærri hópum meðan þau eru innan við eins
árs aldur.
Við leggjum áherslu á eftirlit með starfsemi þeirra sem annast
börnin.
■ Dagur: Börnin í borginni eiga rétt
á leikskólagöngu óháð efnahag.
Leikskólabyltingin hefur gjörbreytt
lífsskilyrðum fjölskyldna í borginni.
Samfylkingin vill tryggja örugg úrræði fyrir börn frá
lokum fæðingarorlofs og nýta þjónustumiðstöðvar
borgarinnar í því skyni að aðstoða foreldra við
að finna úrræði við hæfi. Við viljum gjaldfrjálsan
leikskóla í áföngum, fjölga leikskólaplássum fyrir yngsta
aldurshópinn og efla dagforeldrakerfið. Vannýtta gæsluvelli má
nýta til að hýsa samrekstur áhugasamra dagforeldra.
■ Svandís: Við, Vinstri græn, viljum að leik-
skólar séu gjaldfrjálsir eins og grunnskól-
inn. Vinna þarf áfram að fjölgun leikskóla-
rýma, enda eiga öll börn að hafa aðgang
að leikskóla frá því að fæðingarorlofi lýkur.
Kjör leikskólakennara þarf að bæta, fjölga þarf í
stéttinni, endurmeta húsnæðisþörf leikskólans og
starfsumhverfi starfsfólks og barna og þarf þar sérstaklega að
huga að hljóðvist. Aðferðir, hugmyndafræði og nálgun leikskól-
ans eiga heima á fleiri skólastigum og raunar í samfélaginu öllu,
þ.e. leikur, sköpun og samskipti. Dagforeldrakerfið þarf áfram að
standa foreldrum til boða, en það þarfnast þó endurskoðunar.
Efla þarf samstarf milli dagforeldra, ráðgjöf til þeirra, afleysingar
og aðstoð við umsýslu. Borgin þarf einnig að taka að sér skipulag
og úthlutun rýma hjá dagforeldrum. Ljóst er að auka þarf fjár-
magn til leikskólanna svo að áherslur okkar geti orðið að veru-
leika.
HVER ER STEFNA ÞÍNS FLOKKS
Í MÁLEFNUM ELDRI BORGARA?
■ Björn Ingi: Eftir mikla uppbyggingu í
leik- og grunnskólun er komið að eldri
borgurum. Aldraðir eiga að njóta einkalífs á
öldrunarheimilum og eiga ekki að þurfa að
deila herbergi með öðrum. Við viljum efla heima-
þjónustuna og byggja upp hjúkrunarheimilin í Mark-
arholti og á Lýsislóðinni auk þess sem stækka þarf
Sóltúnsheimilið. Þá tek ég undir kröfur eldri borgara um endur-
skoðun tekjutengingar bóta, sem er mikið réttlætismál.
■ Vilhjálmur: Við sjálfstæðismenn ætlum
að gera stórátak í byggingu hjúkrunar-
heimila í samvinnu við ríkið og byggingu
þjónustu- og leiguíbúða fyrir eldri borgara. Við
viljum gera eldri borgurum kleift að búa á eigin
heimili svo lengi sem þeir kjósa og efla og samræma
heimaþjónustu og heimahjúkrun. Við viljum auka val
og fjölbreytni í húsnæði fyrir eldri borgara við skipulag nýrra hverfa
í borginni og lækka fasteignagjöld á íbúðarhúsnæði. Við ætlum að
beita okkur fyrir því að byggt verði fjölbreytt sameiginlegt búsetu-
form hjúkrunar-, þjónustu- og leiguíbúða ásamt almennum íbúð-
um til þess að vinna gegn félagslegri einangrun eldri borgara.
■ Ólafur: Tryggja þarf aukið framboð á
hentugu húsnæði fyrir aldraða og öryrkja.
Sérstaklega þarf að fjölga hjúkrunarrýmum
og stytta þannig biðlista eftir hjúkrunarrými.
Æskilegt er að fólki sé gert kleift að búa sem
lengst heima en þá þarf jafnframt að efla heima-
þjónustu og heimahlynningu. - Við viljum stórauka
afslátt á fasteignagjöldum hjá elli- og örorkulífeyrisþegum. Í því
skyni viljum við hækka tekjumörk fyrir niðurfellingu fasteignagjalda
um 100 prósent þegar á næsta ári. Þannig njóta þeir meiri afsláttar
sem helst þurfa á honum að halda. Við teljum þetta raunhæfa
aðgerð til að hjálpa öldruðum og öryrkjum að búa í eigin húsnæði
eins lengi og þeir kjósa.
■ Dagur: Samfylkingin vill að öll málefni
aldraðra verði færð til sveitarfélaganna. Við
viljum halda áfram að efla heimaþjónustu
og heimahjúkrun, og tryggja byggingu 200
hjúkrunarrýma fyrir eldri borgara. Allir eldri borgarar
eiga rétt á þjónustu, og því boðum við þjónustu-
tryggingu, sem þýðir að ef þjónusta sem fólk á rétt á
dregst óeðlilega skapast réttur til greiðslu.
■ Svandís: Vinstri græn leggja mikla áherslu
á að tryggja aðgengi allra að þátttöku í sam-
félaginu og takmarkið er að allir fái lifað
með reisn alla ævi. Þess vegna höfum við
lagt til að stofnuð verði eins konar öldungaráð
í öllum hverfum til að tryggja beina aðkomu aldr-
aðra að sínum hagsmunamálum. Að okkar mati er
brýnast að byggja hjúkrunarheimili til að mæta brýnni þörf um
300 einstaklinga, en því miður hefur ríkið skert framlög til fram-
kvæmdasjóðs aldraðra um 2,5 til 3,0 milljarða króna undanfarin
15 ár. Þá viljum við samþætta félagslega heimaþjónustu og heima-
hjúkrunina og setja hana á eina hendi til efla og bæta þjónustu
við aldraða og gera þeim sem það vilja kleift að búa lengur heima.
Ennfremur er það okkar markmið að auka afslátt tekjulágra aldr-
aðra af fasteignasköttum.
fiJÓ‹VAKI
Litir:
Grænn: pantone 356cvu
Rau•ur: pantone 485cvu
fiJÓ‹VAKI
Litir:
Grænn: pantone 356cvu
Rau•ur: pantone 485cvu
fiJÓ‹VAKI
Litir:
Grænn: pantone 356cvu
Rau•ur: pantone 485cvu
fiJÓ‹VAKI
Litir:
Grænn: pantone 356cvu
Rau•ur: pantone 485cvu
REYKJAVÍK
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR 2006
Reykjavík
fiJÓ‹VAKI
fiJÓ‹VAKI