Fréttablaðið - 25.05.2006, Qupperneq 75
25. maí 2006 FIMMTUDAGUR50
menning@frettabladid.is
!
VELFERÐ UMHVERFI NÝSKÖPUN
Ásta Þorleifsdóttir,
jarðfræðingur
4 sæti
„ Verndum ósnortna
náttúru. Eflum
þekkingariðnað.“
Kl. 20.00
Sönghópurinn I Fagiolini flytur gleði-
leikinn L‘Amfiparnaso eftir Orazio
Vecchi í Íslensku óperunni. Grímu-
búnir leikarar syngja og túlka sögu
með látbragði en tónlistin er sungin
á ítalskri mállýsku. Hvert atriði er
kynnt með stuttum og skemmtileg-
um formála sem Davíð Þór Jónsson
hefur þýtt á íslensku. Sögumaður er
Hilmir Snær Guðnason.
> Ekki missa af...
Samstöðu- og styrktartónleikum
fyrir konur í hertekinni Palestínu
á Grand Rokk kl. 21.30 í kvöld.
Fram koma hljómsveitirnar
Reykjavík! Future Future, Wulf-
gang, Seabear og Mr. Silla sem
klórar plötur.
Yfirlitssýningum á verkum Birgis
Andréssonar og Steingríms
Eyfjörð í Listasafni Íslands.
Sýningin er liður í Listahátíð í
Reykjavík.
Trans Dance Europe í Borgar-
leikhúsinu um helgina. Þrjár fer-
skar danssýningar frá Danmörku,
Belgíu og Póllandi.
Í kvöld verður í fyrsta sinn keppt
um Bananabikarinn í spuna eða
leikhússporti og eigast við einvala
lið frá Borgarleikhúsinu og Leikfé-
lagi Akureyrar á heimavelli þess
fyrrnefnda. Sitjandi Íslandsmeist-
ari í leikhússporti og handhafi
Frescabikarins frá 1998, Bergur
Þór Ingólfsson, leikur fyrir hönd
Borgarleikhússins ásamt fleirum
og segir að mikill hugur sé í báðum
liðum.
„Ég stefni að því að safna alls
kyns bikurum,“ segir Bergur Þór
sem kveðst mikill keppnismaður.
„Liðin æfðu saman á dögunum og
það fór mjög vel fram enda er leik-
hússport fyrst og fremst til gamans
gert. Það er ekki fyrr en kemur að
keppninni sjálfri að það gæti slegið
í brýnu.“
„Sá sem hefur hæfileikann til að
vera hamingjusamur heimskingi,
hann hlýtur að vera spunameist-
ari,“ segir Bergur þegar hann er
inntur eftir helsta styrk spunaleik-
ara. „Það er ekkert takmark æðra
en að verða hamingjusamur
heimskingi.“
„Það er keppt í hinum ýmsu stíl-
um,“ útskýrir Bergur Þór, „annað
liðið skorar á hitt með einhverri
senu, til dæmis senu sem þarf að
gerast í bakaríi, síðan velur liðið
stíl til þess að leika senuna, hvort
sem það er óperustíll, hasarmynda-
stíll eða stíll undir áhrifum frá
Shakespeare.“ Síðan sé frammi-
staða liðanna dæmd út frá skemmt-
anagildi, tækni og söguþræði.
Leikhússport er gagnvirk íþrótt
og segist Bergur Þór búast við
brjálaðri stemningu í salnum í
kvöld. Gestgjafar kvöldsins verða
leikararnir Edda Björg Eyjólfsdótt-
ir og Árni Pétur Guðjónsson sem er
einmitt liðsfélagi Bergs frá 1998.
Dómarar keppninnar ættu einnig
að hafa góða reynslu af leikrænum
tilþrifum og spunameisturum en
frambjóðendurnir Gísli Marteinn
Baldursson, Ugla Egilsdóttir og
Dofri Hermannsson munu skera úr
um frammistöðu liðanna. Þess má
geta að allir frambjóðendurnir hafa
daðrað við leiklistargyðjuna Talíu
með einum eða öðrum hætti.
Keppnin hefst kl. 22.30 og fer
fram á Litla sviði Borgarleikhúss-
ins, veittir verða bananar í boði
BananaGroup. Miða á viðburðinn
er hægt að nálgast á heimasíðu
Borgarleikhússins.
-khh
BERGUR ÞÓR INGÓLFSSON LEIKARI Er hvergi banginn og keppir í leikhússporti í kvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILLI
Leikrænar burtreiðar
Glöggir hlustendur gætu í
dag heyrt óm af kunnug-
legum tónum komandi úr
norðurátt. Hljóðverk írska
myndlistarmannsins Sean
Taylor mun bókstaflega
takast á loft eftir hádegið.
Sean Taylor er einn af átta erlend-
um myndlistarmönnum sem eiga
verk á sýningunni „Site-Ations –
Sense in Place“ sem hefst í dag.
Um er að ræða alþjóðlegt list-
verkefni sem átta Evrópulönd
taka þátt í og spannar eitt ár en í
tengslum við sýningar í þátttöku-
löndunum sex verða einnig haldn-
ar ráðstefnur, námskeið og list-
smiðjur fyrir börn. Um fimmtíu
listamenn taka þátt í verkefninu
en aðalskipuleggjandi þess hér á
landi er Myndhöggvarafélag
Reykjavíkur.
Sýningarstjórar verkefnisins á
Íslandi eru Rósa Jónsdóttir og
Hannes Lárusson. „Hugmyndin
að baki sýningunni er sú að verkin
fjalli um stað eða staði í víðara
samhengi. Bæði staði sem raun-
veruleg rými og sem félagslegt
umhverfi,“ útskýrir Hannes.
„Listamennirnir átta, sem koma
frá Írlandi, Póllandi, Lettlandi,
Wales og Spáni, vinna þannig verk
sem sum eru af félagslegum toga
eða byggja á hugmyndinni um
stað í bókstaflegum skilningi.
Listamennirnir komu hingað í
fyrra og könnuðu aðstæður og eru
síðan að vinna á þeim grundvelli.
Markmið sýninganna er að draga
athygli að sérkennum hvers lands
eða staðar fyrir sig en leiðarstef
íslenska hlutans er „orka“, í víð-
asta skilningi þess orðs.“ Átta
íslenskir listamenn hafa eða munu
taka þátt í sýningunni og dreifast
þeir á þátttökulöndin fimm.
Hluti af verkefninu er unnið í
samstarfi við ungt fólk á skóla-
aldri og hafa fimm bekkjardeildir
úr Austurbæjarskóla unnið verk
út frá orkuþemanu og mun
afrakstur þeirrar vinnu vera til
sýnis í sýningarsal Orkuveitunn-
ar og opnar hún einnig í dag.
„Hugmyndin að baki þessu er
að skapa tengsl við listamenn frá
ððrum löndum og fá mögulega
nýja sýn á myndlistarheiminn.
Myndhöggvarafélagið hefur
ávallt verið í erlendu samstarfi en
þetta er kannski stærsta verkefn-
ið af þessu tagi sem félagið hefur
hefur tekið þátt í. Nú eru líka
ýmsar þreifingar í gangi, nokkur
verkefni sem tengjast alþjóða-
samstarfi eru í bígerð sem kemur
til af því að nú er komin ákveðin
reynsla og fordæmi innan félags-
ins,“ útskýrir Hannes.
Opnunaratriði hátíðarinnar
verður án efa tilkomumikið en
tvær þyrlur munu svífa yfir Faxa-
flóa og dansa yfir Viðey við kunn-
uglega tóna þjóðlagsins „Vísur
Vatnsenda-Rósu“. Listamaðurinn
Sean Taylor er höfundur þessa
lofthljóðverks og vonar að veður-
guðirnir verði honum vilhallir svo
að tónlistin berist sem víðast. „Ég
nota mikið þjóðlagatónlist í verk-
um mínum og síðan hef ég líka
gert töluvert af loftverkum, með
loftbelgjum og flugvélum og
slíku. Mér fannst mjög góð hug-
mynd að sameina þessi hugarefni
mín og gera lofthljóðverk,“
útskýrir Taylor.
Lagið er sungið af sópransöng-
konunum Signýju Sæmundsdótt-
ur og Jóhönnu Þórhallsdóttur og
tekur verkið sjálft um 15 mínútur
í flutningi. „Þyrlurnar tvær koma
af hafinu og staðnæmast yfir
Viðey þar sem verkið verður spil-
að úr sérútbúnu hljóðkerfi sem
verður fest á þyrlurnar. Þyrlurn-
ar munu síðan dansa einskonar
loftballet yfir eynni. Hljóðið sjálft
ætti að berast drjúga leið, jafnvel
inn í borgina.“ Taylor verður sjálf-
ur um borð í annarri þyrlunni og
mun taka viðburðinn upp á mynd-
band.
Ef allt gengur að óskum munu
þessir óvenjulegu tónleikar hefj-
ast um kl. 14.30 en annars verður
önnur tilraun gerð á morgun eða
laugardag.
Opnun á sýningunni „Site-
Ations – Sense in Place“ í Viðey
hefst kl. 14 en sýningin í sal Orku-
veitunnar kl. 17.
kristrun@frettabladid.is
Staðbundnar upplifanir
GESTIR MYNDHÖGGVARAFÉLAGS REYKJAVÍKUR Á LISTAHÁTÍÐ Hannes Lárusson sýningarstjóri og myndlistarmennirnir Sean Taylor, Sarah
Browne og Mariusz Soltyzik. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Rekstrarfyrirkomulagi Reykja-
víkurAkademíunnar hefur nú
verið breytt í sjálfseignarstofnun
en að sögn Viðars Hreinssonar,
framkvæmdastjóra stofnunarinnar,
er þróun þessi „rökrétt skref að
því marki sem akademían hefur
lengi stefnt að, það er að gera
allar rannsóknir markvissari og
formlegri. Þetta þýðir að Reykjavík-
urAkademían verður nú ábyrgari
og formlegri stofnun og auðveld-
ara mun reynast að starfa með
stjórnvöldum og félagssamtökum
að uppbyggingu brýnna verkefna
samanber rannsóknir á málefnum
innflytjenda hérlendis.“
Um áttatíu sjálfstætt starfandi
fræðimenn hafa að jafnaði aðsetur
hjá stofnuninni, aðallega á sviðum
sagnfræði, heimspeki, bókmennta-
fræði, mannfræði, félagsfræði,
sagnfræði og guðfræði, og segir
Viðar að vonast sé til að hið nýja
eignarfyrirkomulag muni stuðla að
eflingu samstarfs þeirra á milli.
Í stjórn ReykjavíkurAkademí-
unnar sitja nú Clarence E. Glad
guðfræðingur sem jafnframt er
formaður hennar, Ólöf Gerður
Sigfúsdóttir mannfræðingur, Jón
Ólafsson heimspekingur, Kári
Bjarnason handritafræðingur og
Kristinn Schram þjóðfræðingur. Í
nýkjörinni stjórn Félags Reykja-
víkurAkademíunnar voru kjörin
Þorleifur Hauksson bókmennta-
fræðingur sem formaður, Guðrún
Hallgrímsdóttir matvælaverkfræð-
ingur, Jón Þór Pétursson sagn-
fræðingur og Ingunn Ásdísardóttir
þjóðfræðingur til vara. -brb
CLARENCE E. GLAD Nýkjörinn
formaður stjórnar ReykjavíkurAka-
demíunnar.
Breytingar í Akademíunni