Fréttablaðið - 25.05.2006, Qupperneq 89
25. maí 2006 FIMMTUDAGUR64
FÓTBOLTI Breskir og spænskir
fjölmiðlar héldu áfram að fjalla
um Eið Smára Guðjohnsen í gær.
Fréttablaðið greindi frá því í gær
að enginn verðmiði væri kominn
á Eið sem aftraði framgöngu
mála. Breska götublaðið Daily
Mirror gekk fram fyrir skjöldu í
gær og sagði Eið kosta 8 milljón-
ir punda eða rúman milljarð
íslenskra króna. Þessar tölur
fengust ekki staðfestar í gær en
leiða má líkur að því að Mirror
sé nokkuð nálægt uppsettu
verði.
Arnór Guðjohnsen, faðir Eiðs
og umboðsmaður, er sagður hafa
staðfest við Radio Barcelona að
Eiður vilji fara frá Chelsea sem
eru stórfréttir ef þær reynast
sannar. „Eiður vill fara til félags
þar sem hann getur unnið titla og
Barcelona er eitt af þeim,“ sagði
Arnór, sem er iðulega nefndur
Arnold á erlendum netmiðlum,
einnig við Radio Barcelona.
Eiður Smári virðist vera
efstur á óskalista Barcelona eftir
að Thierry Henry og Diego For-
lan runnu félaginu úr greipum
og verður spennandi að fylgjast
með framhaldinu. - hbg
Framtíð Eiðs Smára enn í umræðunni:
Verðmiði Eiðs
rúmur milljarður?
EIÐUR SMÁRI Framtíð hans er mikið í umræðunni þessa dagana en flest bendir til þess
að hann hafi fagnað sínum síðasta titli með Chelsea.FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Liverpool og Newcastle
eru líkleg til að bítast um sama
bitann annað árið í röð um mjög
frambærilegan sóknarmann. Á
síðasta ári var það Michael Owen,
sem Newcastle greiddi Real Madr-
id mjög háa upphæð fyrir, eitt-
hvað sem Liverpool var ekki tilbú-
ið að gera ári eftir að hafa látið
hann fara.
Nú er það hollenski framherj-
inn Dirk Kuyt, leikmaður Feyen-
oord í Hollandi, sem hefur skorað
71 mark í 101 leik fyrir lið sitt, en
hann hefur lýst yfir áhuga á því að
spila í Englandi.
„Jorien van den Herik, forseti
Feyenoord, hefur sagt mér af
áhuga Liverpool, en þetta er ekki í
mínum höndum. Ég er ánægður
hjá Feyenoord en vil spila í ensku
úrvalsdeildinni,“ sagði þessi
magnaði markaskorari.
- hþh
Hollenski landsliðsframherjinn Dirk Kuyt:
Eftirsóttur í Englandi
KUYT Eftirsóttur bæði hjá Newcastle og
Liverpool sem þurfa að styrkja sóknarlínu
sína í sumar.NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Læknirinn Mike Stone
hefur verið rekinn frá Manchest-
er United eftir rifrildi við Sir Alex
Ferguson. Stone vann hörðum
höndum að endurbata Wayne
Rooney, svo að hann yrði tilbúinn
fyrir HM, og talið er að þau meiðsli
hafi valdið ágreiningi læknisins
og Ferguson.
Stone hefur verið á Old Trafford
í tíu ár en hann hefur greint frá því
að bati Rooney gangi mjög vel og
strákurinn eigi góða möguleika á
því að spila á HM. Sir Alex hefur
aftur á móti gert lítið úr því og
ítrekar að Rooney megi alls ekki
spila nema hann sé alveg heill.
Forráðamenn HM greindu svo
frá því í gær að tilkynna verður
fyrir 30. maí hvort Rooney verði
með á HM. Sé hann ekki á þeim
lista getur hann ekki spilað, en
ólöglegt er að hafa leikmenn á list-
anum nema þeir spili á mótinu.
Rooney fer í skoðun á morgun, þar
sem líklegt er að skerist úr um
hvort hann geti spilað með á HM
frá upphafi eður ei. - hþh
Læknir Manchester United:
Rekinn eftir
ágreining
MEIÐSLIN Þau urðu í leik Manchester
United og Chelsea fyrir mánuði síðan, en
það var Joe Cole sem tæklaði Rooney með
þessum afleiðingum.NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Brasilíumaðurinn
Roberto Carlos ætlar að bíða með
það fram yfir heimsmeistaramót-
ið í sumar að ákveða hvort hann
fari til Englandsmeistara Chelsea,
eða verði áfram hjá Real Madrid.
Hann á aðeins eitt ár eftir af samn-
ingi sínum á Spáni og gæti freistast
til að breyta til áður en ferillinn er
á enda.
„Ég vil fara á HM og ákveða
eftir það hvað ég geri. Chelsea
hafa gert mér gott tilboð, samning
til þriggja ára,“ sagði Carlos sem
orðinn er 33 ára gamall. Hann
segir peninga ekki munu ráða
ákvörðuninni.
„Aðalatriðið er alls ekki pen-
ingarnir, heldur lengdin á samn-
ingum og hvatningin til að spila
knattspyrnu áfram,“ sagði Carlos.
- hþh
Roberto Carlos:
Boðið að fara
til Chelsea
HANDBOLTI Stjórn handknattleiks-
deildar Fram hafnaði í gær tilboði
þýska úrvalsdeildarfélagsins
Gummersbach í varnarjaxlinn
Sverri Björnsson. Fram gerði
Gummersbach ekki gagntilboð
þar sem þeir telja of mikið bera á
milli liðanna. „Ef einhver gerir
gríntilboð í fasteignina þína þá
gerirðu ekki gagntilboð. Þú hafnar
því bara,“ sagði Kjartan Ragnars-
son, formaður handknattleiks-
deildar Fram, við Fréttablaðið í
gærkvöldi en hann vildi ekki segja
hvað Fram vill fá mikið fyrir
Sverri. „Boltinn er núna hjá Gum-
mersbach,“ sagði Kjartan.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins hljómaði tilboð Gum-
mersbach upp á 10 þúsund evrur,
eða tæpa eina milljón íslenskra
króna. Kunnugum einstaklingum í
handboltaheiminum sem Frétta-
blaðið ræddi við bar saman um að
sú upphæð væri eðlileg fyrir mann
eins og Sverri sem léki eingöngu
vörn og hefði ekki sannað sig á
alþjóðavettvangi. Yngri leikmenn
frá Skandinavíu sem eru taldir
eiga framtíðina fyrir sér eru að
fara á um 25 þúsund evrur ef þeir
eru samningsbundnir og er ekki
hægt að lesa annað úr viðbrögðum
Fram en að félagið vilji fá álíka
upphæð fyrir Sverri sem er hund-
fúll.
„Ég er hættur að spila fyrir
Fram ef þetta á að vera svona. Ég
bara trúi því ekki að þeir ætli að
standa í vegi fyrir mér,“ sagði
Sverrir við Fréttablaðið en hann
fékk tíðindin ekki frá Fram heldur
frá blaðamanni og var greinilega
sleginn. „Ég er rosalega svekktur.
Mér finnst þetta mjög lélegt hjá
Fram. Þeir eru greinilega að þakka
fyrir þjónustuna með þessu útspili.
Ef Fram segir að tilboðið sé langt
frá því að vera nógu gott þá ná
liðin aldrei saman. Það er alveg
ljóst. Ég mun ekki spila fyrir Fram
ef staðan á að vera svona. Það er
auðvitað ömurlegt gagnvart strák-
unum og Gumma þjálfara en ég sé
það ekki gerast ef hlutirnir eiga að
vera svona. Ég segi líka, hver
græðir á þessu? Ég trúi þessu bara
ekki ennþá. Þetta er ótrúlegt.“
Fréttablaðið hefur heimildir
fyrir því að Gummersbach sé með
annan varnarmann í sigtinu gangi
hlutirnir ekki upp með Sverri og
það er ljóst að félagið mun ekki
bíða mikið lengur og ekki líklegt
að þeir geri Fram nýtt tilboð.
Atvinnumannadraumurinn er því
á enda hjá Sverri. „Svona tæki-
færi gefst bara einu sinni og
kannski aldrei. Vissulega voru
fleiri lið í myndinni en ekkert sem
ég var tilbúinn að rífa mig upp
fyrir. Gummersbach var aftur á
móti tækifæri sem var ekki hægt
að hafna,“ sagði Sverrir sár en
hann á ár eftir af samningi sínum
við Fram.
Kjartan Ragnarsson var ófáan-
legur til að tjá sig um það hversu
mikið Fram vildi fá fyrir Sverri.
Það var samt greinilegt að hann
ætlaði ekki að selja Sverri á sama
verði og önnur íslensk lið hafa
verið að selja sína menn.
„Hluti af vandamálinu er sá að
við getum ekki miðað við þau verð
sem hafa verið á íslenskum leik-
mönnum. Þeir hafa verið að fara
út fyrir allt of lítinn pening. Allir
okkar bestu menn eru erlendis þar
sem erlendu liðin vita að þeir fá
leikmenn gefins á Íslandi,“ sagði
Kjartan en stjórn Fram og Sverrir
hafa ekkert ræðst við síðan Sverr-
ir samdi persónulega við Gum-
mersbach á sínum tíma og var
stjórn Fram mjög óánægð með
vinnubrögð Sverris sem og Alfreðs
Gíslasonar landsliðsþjálfara sem
mun taka við Gummersbach eftir
eitt ár en þeir höfðu Fram ekki
með í ráðum.
„Þetta er samt ekkert persónu-
legt og við viljum Sverri allt það
besta og að hann komist til Gum-
mersbach. Við viljum bara fá
sanngjarnt verð fyrir hann,“ sagði
Kjartan.
henry@frettabladid.is
Spila ekki aftur fyrir Fram
Varnartröllið Sverrir Björnsson er foxillur út í handknattleiksdeild Fram sem hafnaði tilboði Gummers-
bach í sig í gær. Hann segist frekar leggja skóna á hilluna en að spila aftur fyrir stjórnarmenn félagsins.
Formaður handknattleiksdeildar Fram segir tilboð Gummersbach vera hlægilegt.
DRAUMURINN Á ENDA? Sverrir Björnsson fer væntanlega ekki til Gummersbach. Hann er
mjög óánægður með stjórn Fram og ætlar frekar að hætta í handbolta en að spila aftur
fyrir félagið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN