Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.05.2006, Qupperneq 91

Fréttablaðið - 25.05.2006, Qupperneq 91
 25. maí 2006 FIMMTUDAGUR66 Opið hús í dag Uppstigningardag í Hveragerði milli kl 13 og 17 1-0 KR-völlur, áhorfendur: 1567 Ólafur Ragnarsson (4) 1–0 Tryggvi Sveinn Bjarnason (28.) KR Fylkir TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 14–17 (4–9) Varin skot Kristján 3 – Jóhann 8 Horn 7–7 Aukaspyrnur fengnar 13–18 Rangstöður 1–1 FYLKIR 4–4–2 Jóhann Ólafur 6 Jens Elvar 6 Guðni Rúnar 5 Ragnar 7 Arnar Úlfars. 7 Gravesen 7 Páll Einarsson 6 Jón Björgvin 7 (88. Albert Inga. -) Eyjólfur Héðins. 7 Sævar Þór Gísla. 6 (81. Björn Viðar -) Christiansen 4 (81. Haukur Ingi -) *Maður leiksins KR 4–4–2 *Kristján Finnbo. 8 Kristinn Magn. 6 Gunnlaugur Jóns. 7 Tryggvi Bjarna. 7 Vigfús Arnar 6 Skúli Jón 5 (69. Garðar Jóh. 5) Dalibor Pauletic 7 Bjarnólfur Lár. 6 Guðmundur Reynir 7 (86. Gunnar Krist. -) Björgólfur Takef. 5 Rógvi Jacobsen 4 STAÐAN Í LANDSBANKADEILDINNI 1. FH 2 2 0 0 5-0 6 2. BREIÐABLIK 2 2 0 0 6-2 6 3. FYLKIR 3 2 0 1 4-2 6 4. KR 3 2 0 1 3-4 6 5. GRINDAVÍK 3 1 1 1 5-5 4 6. KEFLAVÍK 3 1 1 1 4-4 4 7. ÍBV 2 1 0 1 3-5 3 8. ÍA 2 0 0 2 3-5 0 9. VALUR 2 0 0 2 1-4 0 10. VÍKINGUR 2 0 0 2 1-4 0 FÓTBOLTI Aðstæður til knattspyrnu- iðkunar í Vesturbænum voru langt frá því að vera upp á sitt besta í gær. Rokið var slíkt að KR-ingar íhuguðu það fyrr um daginn hvort það ætti ekki að fresta leiknum. Strax á fyrstu mínútu gaf Kristján Finnbogason, sem var að spila sinn 400. leik fyrir KR, tóninn þegar hann varði frá besta manni Fylkis í leiknum, Eyjólfi Héðins- syni, sem slapp einn inn fyrir. Fylkismenn réðu gangi leiksins og fengu fjögur fín færi á upp- hafsmínútunum, en alltaf var Kristján til staðar til að bjarga málum. Sóknarleikur KR-inga var alls ekki burðugur og gegn gangi leiksins komust þeir yfir eftir hornspyrnu. Eftir mikið hnoð inni í teignum fékk Tryggvi Sveinn Bjarnason boltann í sig og hann lak í netið. Ekki fallegasta markið en það telur eins og öll hin. Það var lítil stemning á pöllun- um enda fimbulkuldi á vellinum. Leikurinn datt mikið niður eftir markið en KR náði betri tökum á leiknum undan vindinum í upphafi síðari hálfleiks. Kristinn Magnús- son átti besta færi heimamanna þegar hann átti gott skot sem Jóhann Ólafur Sigurðsson varði vel í þverslána. Fylkismenn sóttu aðeins í sig veðrið en síðari hálf- leikurinn var ekki mikið fyrir augað. Eyjólfur átti reyndar skot í stöngina en annars gekk Fylkis- mönnum lítt að skapa sér færi. Það vakti mikla athygli að Leifur Garðarsson skyldi ekki gera breytingu á liði sínu fyrr en á 80. mínútu þegar Haukur Ingi Guðna- son kom inn á. Hann fékk dauða- færi með sinni fyrstu snertingu, en sem fyrr bjargaði maður leiks- ins, Kristján Finnbogason, KR- mönnum áður en leikurinn fjaraði út. „Það vantaði aðeins upp á þetta hjá okkur og því fór sem fór. Veðr- ið var ekki gott en það kom auð- vitað niður á báðum liðum. Heilt yfir vorum við betri í leiknum en það eru mörkin sem telja. Kristj- án átti frábæran leik í markinu, við fengum mikið af góðum færum en Kristján tók allt sem á markið kom,“ sagði Páll Einarsson, miðju- maður Fylkis, í leikslok, nokkuð sáttur með leikinn, en vitanlega ekki niðurstöðuna. „Við vorum að spila betur en við höfum gert og áttum fínan leik. Menn voru að vinna og berj- ast og spila góðan fótbolta og því er sárt að tapa þessu. Við spiluð- um vel miðað við aðstæður, menn gerðu sitt besta og ég er heilt yfir ánægður með leikinn en ósáttur með úrslitin,“ sagði Páll. Það var ekki sömu sögu að segja af Teiti Þórðarsyni, þjálfara KR, sem var ánægður með úrslit- in en ekki leikinn. „Ég er mjög ánægður með sigurinn en leikur- inn var langt frá því að vera sér- stakur. Við byrjuðum alls ekki nógu vel en svo náðum við betri tökum á leiknum. Síðari hálf- leikurinn fór bara í kýlingar fram völlinn og leikurinn var alls ekki mikið fyrir augað, þetta var barn- ingur út í eitt,“ sagði Teitur. „Við pössuðum okkur á því að verjast vel eftir markið en ég var ekki alveg nógu sáttur við það hvernig við spiluðum fram á við. Leikurinn datt niður enda var gjörsamlega ófært að spila hérna, ég segi kannski ekki að það hefði átt að fresta leiknum en þetta eyðileggur leikinn að hluta til,“ bætti Teitur við en KR er nú komið með sex stig eftir þrjá leiki, líkt og Fylkir. hjalti@frettabladid.is Kristján landaði stigunum fyrir KR KR náði baráttusigri gegn Fylkismönnum í strekkingsvindi í Landsbankadeildinni á KR-vellinum í gær. Kristján Finnbogason bjargaði heimamönnum ítrekað sem voru heppnir að fara með 1-0 sigur af hólmi. BARÁTTA Það var hart tekist á hjá KR og Fylki í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN SIGURMARKIÐ Tryggvi Bjarnason stangar hér boltann inn fyrir marklínuna hjá Fylki. Mark Tryggva reyndist vera sigurmark leiksins í Frosta- skjóli. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.