Fréttablaðið - 25.05.2006, Síða 97

Fréttablaðið - 25.05.2006, Síða 97
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 AFMÆLISTÓNLEIKAR 6. JÚNÍ Í LAUGARDALSHÖLLINNI Nú er uppselt á afmælistónleika Bubba Morthens 6. júní í Laugardalshöllinni. Við þökkum frábærar viðtökur og óskum tónleikagestum góðrar skemmtunar á þessum einstaka tónlistarviðburði. F í t o n / S Í A Einn léttur ÍSKALDUR! ���������� ���������� Nú nálgast kosningar. Nú rignir yfir mann auglýsingum flokka og frambjóðenda. Mér finnst margir góðir kostir í boði í öllum flokkum. Mér er ekki illa við neinn stjórnmálaflokk á Íslandi. Ég trúi ekki á neina ákveðna stjórnmála- stefnu. Ég held að flestir sem skipta sér af stjórnmálum hafi gott eitt í huga. Það er gott fólk í öllum flokkum. Mér finnst flestir hafa eitthvað til síns máls. Og varla eru allir sammála um allt bara af því að þeir eru í sama flokki. MÉR finnst mest um vert að fólk geti sýnt öðrum virðingu þrátt fyrir misjafnar skoðanir. Að hlusta á skoðanir annarra þýðir ekki að þú þurfir að vera sammála þeim. Ég held að það sé mikilvægt að leyfa ólíkum sjónarmiðum að heyrast og að á Alþingi sé fólk með ólíkar skoðanir og áherslur. En það fólk verður að geta talað saman. ÉG þoli illa stjórnmálamenn sem virðast hafa það eitt fram að færa að gera lítið úr öðrum stjórnmála- mönnum og skoðunum þeirra. Hvernig á svoleiðis fólk að geta unnið með öðrum? Hrokafullt fólk hefur ekkert til málanna að leggja nema ótta og ringulreið. Fólk sem getur ekki umborið skoðanir ann- arra er þröngsýnir harðstjórar. Og harðstjórar hugsa bara um sjálfa sig. AÐ velja stjórnmálamenn er eins og að fá fólk til að reka fyrirtæki. Eru ríki og bæir eitthvað öðruvísi reknir en fyrirtæki? Kjósandinn er hluthafi. Sem hluthafi vil ég mikið frekar ráða gott fólk sem ég treysti og líkar við heldur en fólk sem aðhyllist einhverja ákveðna stjórnmálaskoðun. Og ég myndi heldur ekki ráða fólk vegna þess að það væri snyrtilega klætt og gott í kjaftinum. Og allra síst myndi ég ráða einhvern sjálfs- elskan hrokagikk. AÐ dæma fólk eftir skoðunum þess er eins og að dæma fólk eftir klæðaburði. Skoðanir okkar gera okkur ekki að því sem við erum heldur hjartalag okkar og hvernig við högum okkur sem manneskjur í daglegu lífi. Mest um vert að fólk geti unnið saman þótt það sé ólíkt. Ég held að það reyni meira á það nú en nokkru sinni áður. Ég mun í framtíðinni fyrst og fremst kjósa fólk sem ég held að geti unnið áfallalaust með öðru fólki. Ég trúi ekki á pólitíska hugmyndafræði. En ég trúi á hið góða í fólki. Og mun kjósa það þar sem mér finnst ég sjá það. Kosningar
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.