Tíminn - 11.09.1977, Qupperneq 20

Tíminn - 11.09.1977, Qupperneq 20
20 Sunnudagur 11. september 1977 Þaö geröist hér einn daginn, ekki alls fyrir löngu, aö góökunn- ingi okkar hérna á Timanum, Magnús Sveinsson kennari, heim- sóttiokkur,þarsem viösátum viö ritvélarnar og kepptumst viö aö skrifa nú eitthvaö gott og upp- byggilegt handa blessuöum les- endunum. Slikar heimsóknir geta stundum oröiö lengri en ætlaövar ifyrstu, og hérfór þaö svo.aö viö Magnús settumst á tal og tókum aö spjalla um gamla daga. Fyrst barst taliö aö upphafi og æskuár- um Magnúsar. í FYLGD MEÐ GÓÐU FÓLKI Langaði að verða lækn- ir, — en var of fátækur —• Ég fæddist, sagöi hann, aö Hvitsstööum I Alftaneshreppi I Mýrarsýslu, 6. september 1906. Foreldrar minir voru Sveinn Helgason og siöari kona hans, Elisabet Guörún Jónsdóttir. Faö- ir minn var nokkuö viö aldur, þegar ég fæddist, en hann var fæddur áriö 1841 , og var þvi hálfnaöurmeö sjöunda tug æviár- anna, þegar ég kom I heiminn. — Nauzt þú þá ekki fööur þins stutt? — Ég var hjá foreldrum min- um, þangaö til ég var tæpra sjö ára. Þá var heilsu fööur mins fariö aö hraka til muna, svo ég var tekinn i fóstur aö Valshamri sumarið 1913, og þar var ég til tuttugu og tveggja ára aldurs, aö ég fór I Hvitárbakkaskólann. Þegar ég var um fermingu, og lengi siöan haföi ég mikinn hug á þvi aö komast i langskólanám. Mig langaöi að verða læknir, en auövitaö vissiég, aö fyrst yröi ég aö komast i menntaskóla og ljúka hinni almennu skólagöngu, áður en lengra væri haldiö. En þaö voruallsekki neintöká sliku, svo þetta varö aldrei annaö en draumur. — Þú hefur auövitaö alizt upp viö fátækt, eins og flestir ung- lingar á þessum árum? — Faðir minn var talinn meö efnuöustu bændum sveitarinnar allt fram um aldamót, enda var fyrra hjónaband hans bamlaust, og heimiiishald þess vegna til- tölulega létthjá honum. Hins veg- Magnús Sveinsson. tveggjaára, þegarégkomstloks i skóla. Eftirminnilegir einstaklingar —■ Nú hefur löngum veriö mjög auöugt mannlif i Borgarfjaröar- héraöi. Manst þú ekki eftir sér- stæöum og merkiiegum einstak- lingum frá æskuárum þinum? — Eg heyrði talaö um tvo menn, sem 'báðir voru nokkuð tiðir gestir á þessum slóöum, en hvorugan þeirra sá ég svo á ég muni aö lýsa þeim. Þaö voru þeir Eyjólfur ljóstollur og Sim- on Dalaskáld. Eyjólfur var i raun og veru heimilisvinur for- eldra minna. Hann hafði aö ein- hverju leyti alizt upp i Alftár- tungu, sem er i sömu sókn, og var alla tiö góöur kunningi föður mins og fyrri konu hans, Ingibjargar Erlendsdóttur. Eyjólfur var ágætlega hagorður og orti um föö ur minn og Ingibjörgu þrjár góð- ar vísur, sem hann skrifaöi sjálf- ur upp. Löngu seinna fékk ég þessar visur hjá hálfbróöur min- um, og þær eru nú geymdar i handritadeild Landsbókasafns- ins. — Mér finnst þaö ekki litill fengur aö eiga kveöskap eftir Eyjölf, skrifaöan með hans eigin hendi. Ég mun hafa verið kominn um fermingu, þegar Ingimundur Sveinsson var þarna á ferö. Hann var bróöir Jóhannesar Kjarvals, og gekk undir nafninu Ingimund- ur fiöla, eins og alkunnugt er, og munu flestir landsmenn, sem komnir eru til vits og ára, kann- ast við þaö kenningarnafn hans. Hann lék frábærlega vel á fiðlu, svo aö á oröi var haft. Ég man vel eftir Ingimundi, og meðal annars einu sinni niöri i Borgarnesi. Hann stóö þá utan viö gamla gistihúsið I kaupstaönum, — en þar mun hann hafa dvalizt — og lék áfiöluna sina. Fólk , sem statt var innan 'dyra 1 gísflhúsinu, greiddihonum skemmtunina meö þvi aö láta fimmeyringum og fleiri smápeningum rigna úr gluggum gistihússins og niöur á götuna til Ingimundar. Einhver safnaði þessum aurum saman fyrirlngimund og fékk honum, en hann tók við, glaöur I bragöi. Þetta voru listamannalaun hans, Hvítsstaöir á Mýrum i tlö Sveins Helgasonar. liúsaskipan eins og hún var uni slöustu aldamót. Járnvariö timburhús, stór stofa og eidhús niöri, en portbyggö baöstofa uppi. Austan viö húsiö (til hægri á mynd- inni) er gamia hlóöaeldhúsiö, sem lengi var notaö. Þar var soöiö slát- ur, reykt kjöt o. fl. Um Hvitsstaði segir svo i Fóstbræöra sögu: Bærinn var áður kaliaöur á Mel. Helgi hviti, sem lengibjó á Hvitsstööum, færöi hús sin þangaö sem nú er bærinn. Hiö nýja bæjarstæöi var siöan kcnnt viö llelga og kallað á Hvitsstööum. W ar eignaðist hann dreng með stúlku, sem var á heimilinu hjá honum. Hún hét Astriöur Er- lendsdóttir og var frá Jarölangs- stööum. Þessi sonur fööur mins og Astriöar var skiröur Sveinn. Hann stofnaði siöar Sveinsstaöi i Álftaneshreppi. Nokkru eftir aldamótin kvænt- ist pabbi móöur minni. Hann var þá tekinn aö reskjast, og hún var þrjátiu og þremur árum yngri en hann. Þau eignuðust átta börn, og þá leiddi þaö af sjálfu sér, aö efnahagurinn þrengdist. Segja má, aö efni fööur mins hafi verið að mestu þrotin, þegar hann féll frá. Fósturforeldrar minir voru ekki heldur efnað fólk, en áttu þó vel td hnifs og skeiðar. Matar- skorti kynntist ég aldrei, hvað þá sulti. En efni til annarra hluta voru af mjög skornum skammti, og eins og ég sagði áöan, þá var aldrei neinn vegur að kosta mig til langskólanáms. Þó taldi ég hugsanlegt aö komast í Hvitár- bakkaskólann, en þegar ég ætlaöi a6 drifa mig þangaö, áriö 1927, þá veiktist fósturmóöir min, svo að heimanför min dróst enn um eitt ár. Ég var oröinn tuttugu og i

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.