Tíminn - 11.09.1977, Qupperneq 26

Tíminn - 11.09.1977, Qupperneq 26
26 Sunnudagur IX. september 1977 Séð til Þorgerftarfjails yfir réttina. Geitafellshnúkur er til vinstri. Hraunsrétt I Aöaldal. Gangnafé úr Þeistareyjalandi á leið til Hraunsréttar. Knstján Jóhannesson: Hrauns- rptt í Aðaldal Taliö er af fróðum mönnum að Hraunsrétt i Aðaldal, sem nú er, hafi verið byggð um 1830. Aður hafi rétt verið heima viö túniö i Hrauni. Eitt er vist að sunnarlega 1 Hraunstúni við hraunjaöarinn sést fyrir gömlum grasi- og mosagrónum hleðslum. Viröist réttin (almenningur) hafa veriö litil og dilkar smáir og ekki allir áfastir viö réttina, heldur kippkorn frá henni. Bendir það til þess að fé hafi veriö færra i þá daga. Hvergi er vitað til aö skila- rétt hafi verið annars staöar i Aðaldal. Arið 1830, þegar talið er aö núverandi Hraunsrétt hafi verið byggö, voru byggðirnar Aðal- dælahreppur og Reykdælahrepp- ur (sem nú eru) eitt sveitarfélag og hét Helgastaöahreppur. Sagt er aö búendur i Helga- staðahreppi, eða sennilega sveitarstjórn fyrir þeirra hönd, hafi samið við Jóhann Asgrims son, föður Sigurbjörns skálds i Fótaskinni (nú Helluland) að byggja réttina (almenninginn) gegn þvi aö fá haustlamb að verk- inu loknu frá hverjum búanda hreppsins. Viröist það nú ekki réttlátt aö hver greiddi lamb, hvort það var riki bóndinn eöa sá fátæki. Sigurbjörn I Fótaskinni, sonur Jóhanns, er byggði Hraunsrétt, var fátækur bóndi og fluttist til Ameriku með fjölskyldu sina. Hans dóttir var Jakobfna Johnson hin þekkta skáldkona bæði á tslandi og i Vesturheimi. Sagt er, aö Sigurbjörn hafi kveöið þessa visu er hann fór til Ameriku: Gnauöar mér um grátna kinn gæfumótbyr svalur. Kveð ég þig f siöasta sinn sveit min, Aöaldalur. Hraunsrétt er 1 grasigrónum hraunkrika suður frá bænum Hrauni i Aðaldal, er þar sérkenni- legt og fagurt landslag og skjól- gott fyrir norðan- og austanátt. Norðan við réttina er grasigróið svæði, sem nú er búiö aö girða af. Austan við réttina er hár hraun- kambur eða hraunhóll. Er þaðan gott útsýni yfir réttina og það sem gerist þar. A þeim útsýnisstað er oft margt fólk, einkum kvenfólk og börn. Suð- og suövestur frá réttinni er aö miklu leyti gróið land alla leið suður að Laxá. Vestan- og norövestan við réttina er svart hraun yfir að lita, þó eru þar skjólgóðir bollar og smá- hvammar grasi grónir þegar þangað er komið. Eins og fyrr segir er talið að Hraunsrétt hafi veriö byggö um 1830, nánar ekki tiltekiö, og finnst mér llklegt að hún hafi ekki verið byggð á einu ári. Hún er þaö mik- ið mannvirki. Þótt efni I hana hafi verið nærtækt aö miklu leyti, þá hlýtur að hafa þurft að flytja grjót til og það hefur ekki verið mögu- legt, nema á sleðum og hestum að vetrinum. önnur nothæf tæki voru ekki til á þeim árum. Stærð Hraunsréttar er 90x20 metrar eöa 1800 fermetrar al- menningurinn. Er honum skipt um miöju, með tvihlöðnum hraungrýtisvegg axlarháum og eru tvennar breiðar dyr á milli, sinar við hvorn hliðarvegg. Dilk- ar voru 34 aö tölu. Þá hlóöu bænd- ur sjálfir, stærö þeirra eru alls 5432 fermetrar. Almenningurinn og dilkar þvi 7232 fermetrar. Allir réttarveggir eru tvihlaönir úr

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.