Tíminn - 27.11.1977, Blaðsíða 15
Sunnudagur 27. nóvember 1977
15
Ný bók frá Skuggsjá
Orðspor á götu
eftir Jón Helgason
ORÐSPOR Á GÖTU heitir ný-
útkomin bók eftir Jón Helgason
ritstjóra og hefur hún að geyma
nokkrar sögur um bróður Ást-
vald, Grafarráðskonurnar,
stúlkurnar i tjöldunum, guðina i
Sporðhúsum, fólkið i Kormáks-
götunni og kjallarann i Hart-
mannshúsinu. Bókin er 160 bls. að
stærð og gefin út hjá Skuggsjá.
Jóni Helgasyni lætur flestum
höfundum betur sá leikur að máli
og lifsmyndum, sem einkennir
þessar sögur hans en höfuðein-
kenni þeirra er fagurt mál, stil-
nilld og óvenjuleg frásagnarlist..
Fyrri smásagnasöfn hans, Maðk-
ar i mysunni og Steinar i brauð-
inu, töldust til tiðinda er þau
komu út og vist er að eins mun
fara um þessa bók hans svo frá-
bærlega er hún samin.
Daglegt lif
Krists
Bókaútgáfan örn og Örlygur
hefurgefið útbókina Daglegtlifá
dögum Kristseftir A.C. Bouquet i
þýðingu séra Jakobs Jönssonar.
Bókin er prýdd 230 teikning-
um og myndum til skýringar
efninu. Þýðandi segir m.a.
i formála: „Höfundurinn er
enskur prófessor, sem naut sam-
vinnu við stofnanir og einstakl-
inga, sem voru sérfróðir um þau
efni, er bókin fjallar um. Hún er
ekki guðfræðirit, en henni er ætl-
að að sýna að nokkru leiksvið
þessa drama, sem fram fór fyrir
nær tvö þúsund árum, og vér
Jón Helgason.
á dögum
þekkjum úr Nýja testamentinu.
Þar er auðvitað ekki um að ræða
Gyðingaland eitt, heldur fleiri
lönd við Miðjarðarhafið. Atburðir
sögunnar, jafnt sem andlegar
hræringar þeirra tima verða ljós-
ari, ef vér þekkjum til daglegs
lifs. Fjölmargir þættir mynduðu
vef þeirrar menningar, er reynd-
ist furðu-frjór jarðvegur kristinn-
ar trúar, þegar allt kom til alls.
Bókin er filmusett og prentuð i
prentsmiðjunni Odda hf., filmuö i
Korpus hf. og bundin i Sveinabók-
bandinu.
OS oorgarfloriarjýjlu
Vafnaí hefur
BroglÞhtíanon
Borgfirzk blanda
Sagnaþættir — Skopsögur —
Sérstætt fólk — Ferðaþættir —
Siysfarir — Draumar og dul-
rænir þættir— Bók fyrir alla
sem unna þjóðlegum fróðleik.
Kr. 4.920 m/söluskatti.
Jóhann Hjálmarsson:
Frá Umsvölum
Æfisaga ungra hjóna sem viða
hafa farið og kynnst flestum
hliðum mannlífsins. Hér er
ekkert sagt undir rós, en alit
berum orðum.
Kr. 2.400 m/söluskatti.
Og aörar vísur
Vinsælir söngtextar og visur
með nótum M.a. textarnir á
jólaplötu Eddukórsins. Bók
fyrir alla tónlistarvini.
Kr. 1.920 m/söluskatti.
Af lifi og sál
Óvenju hreinskilin og opinská
frásögn. Asgeir Bjarnþórsson
segir m.a. frá kynnum sinum
af Einari Benediktssyni, Hall-
dóri Laxness og Jóhannesi
Kjarval. Þar er ekkert verið
að klipa utan af hlutunum.
Kr. 2.880 m/söluskatti.
Af lífi og sá
ANDRfeS KRISTJANSSON
r/ísir vie
ASGHIR BJ A R N ÞÐ R S S O N
Safnrit Guðmundar
Böðvarssonar
Frásöguþættir og ljóð. Perla i
islenzkum skáldskap.
Sjö bindi.
Kr. 21.600 m/söluskatti.
1 HÖRPUÚTGÁFAN # •
Enn skrifar
Slaughter
um lækna
og ástir
SJ — Það er hraöi og spenna i
hverju orði I skáldsögunni
Spitalaskip eftir Frank G.
Slaugheter, sem Bókaforlag Odds
Björnssonar gefur út, eftir þvi
sem útgefendur segja á bókar-
kápu. Þessi bók fjallar m.a. um
hugprúðan lækni og bróöur hans
fornleifafræðing, fagra ástkonu
annars þeirra og glæsilega frétta-
konu.
Skáldsögur Slaughters eru
orðnar fjölmargar og hafa þær
selzt I 50 milljónum eintaka. Þýö-
andi bókarinnar er Hersteinn
Pálsson.
Eru mennimir
viitór?
Svarið færðu í SKÁKÞJÁLFUN - bókinni
: sem notuó er í skákfræóslu sjónvarpsins
} lunaritið SKÁK
ALEXANDER KOBŒNZ
Skákþjálfun