Tíminn - 01.10.1978, Blaðsíða 3
Sunnudagur 1. október 1978
3
íþrótta- og hljóm-
listarfólk til liðs
við baráttuna
gegn reykingum
„Það er ekkert vafamál aö
iþróttir og reykingar eiga enga
samleiö. Ungt fólk sem ætlar aö
ná árangri i iþróttum, ætti þvi
ekki aö reykja.” Þetta segir
Hreinn Halidórsson kúluvarpari
þegar hami er spuröur álits á
iþróttum og reykingum og hann
bætir viö: „Þaö mun hægara sagt
en gert að hætta ef menn byrja að
reykja og þvi ráölegg ég öllum aö
láta tóbakið eiga sig.”
Flestir iþróttamenn eru Hreini
sammála um að iþróttir og
reykingar fari ekki saman enda
styöja niðurstöður rannsókna vis-
indamanna hérlendis og erlendis
þá skoðun.
Sérstök rannsókn á áhrifum
reykinga á afreksgetu iþrótta-
manna var nýlega gerð á vegum
iþróttaháskóla i Vestur-Þýska-
ltmdi og náði hún til 750 iþrótta-
manna. 80 þeirra reyktu.
Niðurstöðurnar urðu þær að
þeir, sem reyktu höfðu 35%
minna þrek en hinir sem ekki
reyktu, miðaöviðaö allir þátttak-
endur i rannsókninni æfðu jafn
mikið. Þetta þýðir með öðrum
orðum að þeir, sem reyktu þyrftu
að æfa rúmlega þriðjungi meira
til þess að ná sama árangri og
hinir sem ekki reyktu. — Við telj-
um skipta miklu aö fyrirmyndir
barna og unglinga reyki ekki og
hafi ekki frammi áróður sem
stuðlar að reykingum. Isamræmi
við þetta fengum við nýlega ungt
tónlista rfólk til liðs við okkur og
létum við gera plaggat gegn
reykingum með mynd af hljóm-
sveitinni Brunaliðinu. Þetta
veggspjald ar gefið ttt í 10.000 ein-
tökum og þvi var dreift án endur-
gjalds í hljómplötuverslunum.
Var ekki að sökum aö spyrja að
það rann ttt, enda slikir hlutir vin-
sælir hjá ungu kynslóðinni.
Eitthvað á þessa leiö sögðu
meðlimir Samstarfsnefndar um
reykingavarnir frá einum þætti
starfsemi hennar,en nefadin tók
til starfa fyrir einu ári.
Ntt hefur verið gefið út annað
plaggat og í þetta skipti hefur
iþróttafólk veriö fengið til liðs við
baráttuna gegn reykingum.
Eins telja þeir samstarfs-
nefndarmenn að óæskilegt sé að
birta myndir af reykjandi fólki i
fjölmiðlum, hvort sem er i frétt-
um, viötölum eða öðru efni sem
þeir flytja. Það kunni einnig aö
koma sá dagur að það þyki ekki
virðingarauki að hafa látið birta
myndir af sér með sigarettu eða
aðra tóbaksvöru.
íþróttamenn til fyrir-
myndar
Afreksfólk okkar Islendinga á
iþróttasviöinuvill sýna öðruungu
fólki gott fordæmi með þvi að
reykja ekki og til þess að leggja
áherslu á afstöðu sina til reykinga
hafa nokkrir tslandsmeistarar I
iþróttum staðiö að útgáfu vegg-
spjalds sem nú er nýbyrjaö að
dreifa um landið i samvinnu við
Samstarfsnefnd um reykinga-
varnir.
Veggspjaldið er allstórt, lit-
prentað og með yfirskriftinni:
,,Við reykjum ekki”. Á það er
einnig letraö: „tþróttir og
reykingar fara ekki saman”.
tþróttafólkiö sem prýöir vegg-
spjaldiö eru þau Hreinn Hafldórs-
son 29 ára,tslandsmeistari i kttlu-
varpi, bilstjóri hjá Strætisvögn-
um Reykjavikur: Lára Sveins-
dóttir, 23 ára tslandsmeistari i
fimmtarþraut,en httn var fyrsta
islenska konan sem keppti á
Ölympiuleikum, árið 1972. Hún er
iþróttakennari.
Vngstur þeirra sem eru á
myndinni er Hugi Harðarson
grunnskólanemi á Selfossi. Hann
er 15 ára og er tslandsmeistari i
400metra baksundi.auk þess sem
hann á fjölmörg sveina- og
drengjamet i ýmsum sundgrein-
um.
Þá skal nefna Guðmund Þor-
björnsson 21 árs, knattspyrnu-
mann,sem varð tslandsmeistari
með Val 1978 og er ntt i landsliði
tslands i knattspyrnu. Hann hefttr
keppt i átta landsleikjum sem
íramherji. Guðmundur nemur ntt
við Háskóla tslands.
Sunddrottningin Þórunn Al-
freðsdóttir er þá ein ótalin þeirra
iþróttamanna sem gengið hafa
fram fyrir skjöldu i baráttunni
gegn reykingum. Httner 17 ára og
á Islandsmet í öllum vegalengd-
um iskriðsundi, flugsundi og fjór-
sundi kvenna. Þórunn stundarntt
nám í verslunardeiid Laugalækj-
arskóla í Reykjavik.
Veggspjaldinu verður dreift frá
skrifstofu Samstarfsnefiidar um
reykingavarnir að Lágmttla 9 i
Reykjavik og fyrir milligöngu
umboðsmanna nefndarinnar ttti
um land. Einnig mun Krabba-
meinsfélag Reykjavikur og
Iþróttasamband Islands taka þátt
i dreifingunni.
iþróttafólkið á veggspjaldi Samstarfsnefndarinnar: Lára Sveinsdóttir,
Hugi Harðarson, Hreinn Halldórsson, Þórunn Alfreðsdóttir og Guð-
mundur Þorbjörnsson.
Alfa-Laval Duovak
mjaltakerfi
Vekjum athygli á aö viö getum útvegað Alfa-Laval mjalta-
búnað- vélfötu- og rörmjaltakerfi - til afgreiðslu með stuttum
fyrirvara. Pantanir sem berast fyrir 15. október verða
afgreiddar á eldra verksmiðjuverði en haustverðhækkun
framleiðenda tekurgildi 1. nóvember n.k.
Að gefnu tilefni viljum við benda á að samkvæmt nýlegum
samanburði virðist Alfa-Laval mjaltabúnaður vera á um 18%
hagstæðara verði en sambærilegur búnaður - auk hinna
alþekktu gæða.
Bændur! Vinsamlega pantið Alfa-Laval mjaltakerfi strax með
tilliti til hagstæðs verðs.
Véladeild
Sambandsins
Ármúla 3 Reykjavík Simi 38900
Baggafæribönd
Óskum eftir samvinnu við áhugasama bændur um uppsetningu
baggaflutningakerfis í hlöðu eða hlöðum.
Baggaflutningakerfið byggir á baggaböndum frá Duks í Danmörku
og sérstök fyrirgreiðsla er veitt með afslætti og tækniaðstoð.
Þeir sem hafa áhuga á að sinna þessu og vilja setja upp fullkomið
baggaflutningakerfi eru beðnir að senda okkur upplýsingar um
bústærð og fyrirkomulag fyrir 1.desember’78
Véladeild
Sambandsins
Ármúla 3 Reykjavík Simi 38900