Tíminn - 01.10.1978, Blaðsíða 5
5
IM'ilMItí
Frímerkjaþáttur:
HLEKKUR
Frímerkjauppboð að Hótel Loftleið-
um 7. október
Hinn 13. mai sl. hóf fyrirtæki
er Hlekkur s/f nefnist starfsemi
sina með uppboði á Hótel Loft-
leiðum. Var þarna um mjög gott
uppboð að ræða og seldist nær
allt efni er á uppboðinu var.
Þarna skiptu frimerki fyrir
rúmar 3 milljónir króna um eig-
endur. Var það einróma dómur
manna að með afbrigðum hefði
verið staðið vel að þessu upp-
boði bæði hvað varðar fljóta og
góða sölu og afgreiðslu mála
yfirleitt.
Nú er komið að ööru uppboði
þeirra i Hlekk en eigendur eru
fjórir. A boðstólum eru frimerki
fyrir rúmar 6 milljónir að þessu
sinni, má þar á meðal nefna
mikið af góðum bréfum og fjór-
blokkum. Svo aö nokkuð sé
nefnt er þarna jaðarfjórblokk af
Alþingishúsinu. A annan tug
skildingamerkja. Tvö hópfiug
ítala, ónotuð. Nokkur fyrstu
flug. Mikið af Heimssýningunni
1939-1940. Nokkrir fallegir (
númerastimplar. Þjónustuverð-
bréf auk nokkurra sæmilegra
safna. Lágmarksveröi virðist
mjög i hóf stillt enda mun það
miöuð við 1978 verðlistana eða
siðasta árs útgáfur.
Þeir félagar sendu öllum
félagsbundnum frimerkjasöfn-
urum hér á landi lista sinn fyrir
fyrst uppboðið en nú eingöngu
þeim sem hafa átt við þá
viðskipti annaðhvort sem
kaupendur eða seljendur. Þá
geta ennfremur allir þeir sem
skrifa i Pósthólf 10120, 130
Reykjavik fengið listann send-
ann en uppboðið fer fram i
ráðstefnusal Hótel Loftleiða.
laugardaginn 7. október klukk-\
an 13.30.
Það má segja að timi hafi
verið til kominn að Islendingar
létu heyra i sér á þessum vett-
vangi eins og islensk frimerki
hafa verið eftirsótt á erlendum
frimerkjauppboðum. Hefir þaö
framboð hvergi fullnægt eftir-
spurn. Þvi má telja það til
hróssverðs framtaks, að ungir
menn hér heima skuli taka sig
fram um að gera islensku fri-
merkin að islenskri uppboðs-
vöru. Mun og þetta framtak
hafa vakið mikla athygli er-
lendis.
Þótt svo að mikil eftirspurn
hafi verið að undanförnu eftir
islensku efni á erlendum upp-
boðum, er þó einn sá hlutur,
sem ekki hefir selst á þeim, en
þaö er hið svokallaða Balbóum-
slag. Umslag póstsent með Hóp-
flugi Itala, hefir verið i boði á
tveim stórum uppboöum er-
lendis nú i vor, en seldist á hvor-
ugu. Var þó um að ræða tiltölu-
lega lágt verð, sex hundruð þús-
und fyrir hvort umslag. Þess
má þó geta að annaö umslagið
var nokkuð þvælt og ósjálegt.
Taldi sá er bauð það upp að það
hefði ekki farið fyrir meira en
300.000,- voru þó öll frimerkin
heil.
Varla getur jafnmiklar verð-
sveiflur i nokkru efni og Hóp-
flugi Itala. Má kannske jafnvel
segja, að ekki sé beinlinis um
sveiflurað ræða, heldur yfirleitt
það hvort hægt er að seljá efnið.
Þar er Hópflugið i lægð eins og
Aftur á móti hafa bréf, allt frá
aurabréfum, númerastimpla-
bréfum og slikum selst fyrir
ótrúlegar upphæðir á uppboðum
i Þýskalandi á'liðnum vetri og
vori. Er svo komið að bréfin
seljast fyrir allt að þrefalt það
verð, sem ætla mætti að þau
hefðu farið á innanlandsfl Skal
nefnt sem dæmi að bréf meö
númerastimpli sem metinn er á
5 krónur sænskar einn á merki,
seldist á 500.00 þýsk þörk, var
bréfið með Chr. X. frimerki.
Hefði sennilega hver og einn Is-
lendingar sprungið á að greiða
um 70 þúsund fyrir slikt bréf.
Transit stimpluð bréf, þ.e.
stimpluð á leið sinni, eða á af-
hendingarpósthúsi með núm-
erastimplum og þá aðeins á um-
slagið, seldust á fullu verði
stimpilsins auk 2-3 hundruö
marka fyrir að hann skildi vera
á bréfi, sendu með pósti. Af
þessu geta menn séð hvers virði
er að hafa heil bréf. Póstsögu-
söfnun heilla bréfa, er út af fýrir
sig heillandi viðfangásefni og er
sifellt i aukningu.
Siguröur H. Þorsteinsson.
HLEKKUR SF.
DOOC
I raðstefnusal hötels loftleiða
• LAUGARDAGINN 7. OKT. KL. 13.30
Uppboðsefnið er til sýnis laugardaginn 30.sept.
kl. 14 — 17 i sal 1 að Hótel Esju og uppboðs-
daginn kl. 10 - 11.30 á uppboðsstað.
Skrifleg boö þurfa aö hafa
borist fyrir 2. okt. 1978.
Postal bids must have
reached before 2. Oct. 1978.
Næsta uppboö veröur haldiö á sama staö 10. feb.
1979 kl. 13.30 og verður uppboösefni aö hafa borist
fyrir 1. október næstkomandi.
Um eða yfir-
90% heyfengssins
vothey
VS — 1 sumar var tiðin alveg
Ijómandi góð — til alls annars
en aö þurrka hey, sagði Bergur
Torfason á Felli i Dýrafirði,
þegar hringt var til hans frá
Tímanum s.l. föstudag. — Eöa
þannig var það að minnsta kosti
hjá okkur hér i Mýrahreppi,
bætti Bergur við.
— Gras sprettur seint, og þess
vegna hófst sláttur siðar en
venjulega. 1 júli kom góö gras-
tið, og þá spruttu tún vel. Niður-
staðan varð svo sú, aö hey-
fengur er i góðu meðallagi, og
nýting allgóð hjá flestum bænd-
um hér i hreppnum, en þaö er
fyrst og fremst þvi að þakka
hversu stór hluti heyfengsins er
verkaður sem vothey, — hjá
sumum bændum er það um eöa
yfir 90% og hefur sifellt farið
vaxandi. í fyrra og nú i sumar
hafa veriö byggðar flatgryfjur á
þremur bæjum og i þær fer
næstum allt þaö hey sem aflaö
er. Þetta gerbreytir ekki
einungis allri aðstöðu við sjálfa
heyverkunina, heldur lika hirð-
ingu búpeningsins að vetrinum.
— Jafnframt þessum fram-
kvæmdum voru byggð ný fjár-
hús á öllum þessum bæjum.
Haustið hefur verið gott en i
þessari viku, — núna tvær
siðustu nætur. Ber voru ó-
skemmd á lyngi þangaö til.
1 sumar var byggð ný bryggja
við Gemlufallssjó, beint á móti
Þingeyri, en þar er gamall lög-
ferjustaöur, og þar flytjum viö
Mýrhreppingar mjólk okkar út i
Djúpbátinn Fagranes, þegar
Gemlufallsheiði lokast vegna
snjóa.
Nú er verið aö byggja nýjan
barnaskóla á lóð héraðsskólans
að Núpi i Dýrafirði, og hann
mun veröa tekinn i notkun i
haust, þótt honum verði þá ekki
að fullu lokið. Þar ereinnig ibúð
fyrir skólastjórann, og ætlunin
er að nota sjálfa skólabygging-
una til fundahaldsog félagslifs i
hreppnum.
Slátrun er nýlega hafin, og er
búist við þvi að slátrað veröi um
átta þúsund og þrjú hundruö
fjár á Þingeyri á þessu hausti.
IB-lánin:
Nokkrar
nýjungar
566.880
.001.100
Þessar tölur sýna breytingar á ráöstöfunarfé
eftir 6 og 12 mánaóa sparnaö.
IB lánin hafa vakið verðskuldaða athygli.
Þau eru raunhæf leið til íána fyrir almenning.
En til þess að þau haldi kostum sínum þarf að endur-
skoða kerfið reglulega, m.a. með tilliti til verðlags-
þróunar.
Þetta hefur Iðnaðarbankinn einmitt gert. Því hefur
verið ákveðið að gera eftirtaldar breytingar:
1.
Stofnaður hefur verið nýr 18 mánaða flokkur.
Hámarks innborgun er kr. 50.000. Ráðstöfunarfé (eigin
sparnaður ásamt IB-láni) að loknu sparnaðartímabili,
með slíkri innborgun, nemur þá 1.8 milljón króna auk
vaxta.
Hámark mánaðarlegra innborgana hefur verið endur-
skoðað. Gildir það um nýja reikninga og er sem hér segir:
í 6 mánaða flokki kr. 30.000
(12 mánaða flokki kr. 40.000
í 18 mánaða flokki kr. 50.000
f 24 mánaða flokki kr. 60.000
í 36 mánaða flokki kr. 60.000
í 48 mánaða flokki kr. 60.000
Þá hefur Iðnaðarbankinn ákveðið, að fengnum fjölda til-
mæla, að gefa fólki kost á að lengja sparnaðartímabilið,
enda lengist þá lánstíminn og upphæð IB-lánsins
hækkar að sama skapi.
Nánari upplýsingar veita IB ráðgjafar hver á sínum
afgreiðslustað — þeir vita allt um IB lán.
6an/o þeirra sem hyggja að framtíðinni
Iðnaöaitankinn
2
Aðalbanki og útibú