Tíminn - 01.10.1978, Síða 6

Tíminn - 01.10.1978, Síða 6
6 Slliii'IJ'l'i Sunnudagur 1. október 1978 Wnslmi Útgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson og Jón Sigurósson. Auglýsinga- stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og’ auglýsingar Siöumúla 15. Sfmi 86300. Kvöldslmar blaftamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Veröllausasölu kr. 100.00. Askriftargjald kr. 2.000 á mánuði. , , Blaðaprenth.f. Erlent yfirlit ðldungadeildin og tunglið eru sitthvað Þaö hefur Harríson Schmitt reynt Nú þarf vinnufrið í mjög athyglisverðu og yfirgripsmiklu viðtali við Timann nú i sl. viku segir ólafur Jóhannesson, forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokks- ins svo um meginstefnu og stöðu flokksins: „Framsóknarflokkurinn er frjálslyndur umbótaflokkur. Hann hefur starfað með öllum flokkum, og hefur fyrst og fremst fylgt þeirri stefnu að láta málefnin ráða. Á ég þá bæði við stefnuskrá flokksins og vandamálin á hverjum tima, en það hefur sitt að segja hvernig á þeim er tekið. Hins vegar er það að menn geta ekki alltaf valið sér kostinn, atvikin geta leitt til þess að menn verða að sæta einhverju öðru en þeir hefðu helst kosið. En Framsóknarflokkurinn hefur lagt áherslu á að taka ábyrga afstöðu til mála i stað þess að skjóta sér undan ábyrgð”. I viðtalinu er vikið að afstöðu Framsóknar- flokksins til launþegasamtakanna, en sem kunn- ugt er var það eitt helsta árásarefnið á flokkinn fyrir kosningar að hann tæki ekki nægilegt tillit til þeirra. Um það segir ólafur Jóhannesson i þessu viðtali: ,,Framsóknarflokkurinn hefur jafnan verið vin- samlegur i garð verkalýðshreyfingarinnar og metur störf hennar mikils, enda hefur hreyfingin átt mikinn þátt i þeim breytingum sem orðið hafa i þjóðfélaginu. En ég vil heldur tala um þetta sem launþegasamtök, sem ná til fleira fólks heldur en • verkalýðshreyfingarinnar i þrengstu merkingu. Framsóknarflokkurinn vill eiga gott samstarf við launþegasamtökin og telur að fólk i þeim sam- tökum geti ákaflega vel átt heima i flokknum, enda hygg ég að hann hafi átt talsverð itök hjá þvi fólki, sem mætti kannski kalla millistéttarfólk”. í viðtalinu rekur ólafur Jóhannesson það stefnu- mið rikisstjórnarinnar að eiga sem nánast sam- starf við aðila vinnumarkaðarins. Um þetta atriði segir hann m.a.: ,,Um er að ræða tilraun til þess að hafa samstarf við þá aðila sem i raun hafa svo mikil áhrif á fram- vindu efnahagsmála i þjóðfélaginu. Mistakist þessi tilraun, þá sé ég ekki hverjir ættu að geta náð tökum á þessu”. Þessi orð forsætisráðherra eru vitanlega alvar- leg ábending til hinna áhrifamiklu samtaka vinnu- markaðarins að axla þær byrðar og þá þjóðfélags- ábyrgð sem stöðu þeirra fylgir, ef vel á að farnast. t tengslum við þetta segir ólafur Jóhannesson enn fremur: ,,Ýmis vandamál eru viðkvæm og auðvitað get- ur stjórninni mistekist. En hitt skiptir lika höfuð- máli, að það fólk sem hefur viljað fá svona stjórn, sýni henni dálitla þolinmæði skilning og gefi henni vissan vinnufrið”. Þessi orð er einnig nauðsynlegt að menn hafi i huga nú þegar verið er að snúast til varnar i efna- hags- og kjaramálunum. Það skiptir sköpum um framtiðina að það takist nú og á sem skemmstum tima að rétta þjóðarskútuna á siglingunni og verja hana þeirri ágjöf sem næstum hafði stöðvað sigl- inguna nú i sumar. JS ÞEGAR Harrison Hagan Sch- mitt byrjar að tala i öldunga- deild Bandarikjaþings, veröur brátt fámennt I deildinni. Hann hefur enn ekki átt þar sæti nema i tvö ár, en er oröinn þekktur fyrir aö halda langar og leiöin- legar ræður, þar sem smáatriöi eru oft rakin i þaula meö vis- indalegri nákvæmni og oft er þá um atriöi aö ræöa sem stjórn- málamönnum finnst engu skipta og raunar broslegt aö gera aö umtalsefni. En Harri- son Hagan Schmitt telur sig þaö engu varöa. Athugunum hans skal komið til skila hvort sem þessum óvísindalegum herrum i öldungadeildinni likar þaö betur eöa verr. Hann kippir sér ekki heldur upp viö þaö þótt áhrif hans séu harla iitil i deildinni a.m.k. enn sem komið er. Hann þekkir þaö aö allt tekur sinn tima. Þaö tók hann 10 ár aö læra jaröfræöi og ljúka doktorsprófi I henni viö Harvardháskóla. Þaö tók hann 7-8 ár aö þjálfa sig svo vel sem geimfara og ná m.a. svo mikilli kunnáttu sem flugmaður aö ekki var hægt að ganga framhjá honum, þegar geröur var visindaleiöangur til tungls- ins i desember 1972. Hann sam- einaði hvort tveggja að vera mikill visindamaöur og þraut- læröur geimfari. Hann var lika eini visindamaöurinn i leiöangrinum. Alls dvaldi hann i 75 klukkustundir á tunglinu og geröi margvislegar athuganir og safnaöi tunglgrjóti til rann- sóknar. Siðan hefur hann gengiö undir nafninu Moonrock sem sennilega ber helzt aö þýöa steininn frá tunglinu. Þaö nafn er algengast aö nota i þinginu. Hjá geimförunum er hann hins vegar þekktastur undir nafninu Jack. SCHMITT fæddist i smáborg i New Mexico 1935. Hann var einkasonur foreldra sinna en átti tvær systur. Mikið ástriki var milli feöganna. Faöir hans var mikill frjálshyggjumaöur. Kenning hans var i stuttu máli þessi: Eins mikið einstaklings- frelsi og mögulegt eins litil rikisafskipti og komizt veröur af meö og öflugar landvarnir. Þessar skoöanir viröist Schmitt hafa lagt rikt á minni og fylgja þeim dyggilega. Hins vegar var það ekki fyrr en nokkrum misserum eftir aö hann kom frá tunglinu sem hann tók aö sinna stjórnmálum. Faðir hans var jarðfræöingur og Schmitt ákvaö aö fara inn á þá braut. Eftir tunglferöina áleit Schmitt rétt að breyta um verkefni og hvaö var þá eðlilegra en að vinna fyrir sameiginlegar skoðanir þeirra feöga? Fyrri samstarfs- menn hans urðu margir undr- andi þegar þeir heyröu aö hann hefði gefið kost á sér til fram- boðs viö öldungadeildarþing- kosningarnar i New Mexico haustið 1976. Hvað hefur maöur- inn reykt? varð einum þeirra aö orði. Repúblikanar gleyptu viö þvi að fá tunglfara i framboö enda reyndist hann sigursæll. Hann hlaut 57% atkvæðanna. Fyrir kosningabaráttuna var honum ráðlagt að fá læröa póli- tiska áróðursmeistara sér til halds og trausts. Hann hafnaöi þvi alveg. Stjórnmál eru ekki visindi sagöi hann og þvi eru ekki til neinir pólitiskir sér- fræðingar. Hann réöi eiginkonu vinar sins til aö stjórna kosningabaráttunni og hún réöi nær eingöngu konur til aöstoöar við sig samkvæmt fyrirmælum Schmitt. Konur eru iðjusamari en karlmenn sagöi hann og þaö má betur treysta þeim. Þær brugöust ekki heldur trausti hans i kosningabaráttunni. Schmitt tunglfari SCHMITT tók sæti i öldunga- deildinni i ársbyrjun 1977. Hon- um virðist enn sem komið er ganga eins illa að læra á kerfið þar og þaö virtist auðvelt fyrir hann aö búa sig undir tungl- ferðina. Einn eldri öldunga- deildarþingmanna, Adlai Stevenson yngri sem talsvert hefur unnið með honum, hefur látiö svo ummælt um hann aö hann sé vísindamaður sem telji þaö óyggjandi staöreynd aö minnsta fjarlægð milli tveggja staöa sé bein llna. Þetta getur gilt um tunglferðir, en á ekki alltaf viö I stjórnmálum. Þegar Schmitt hefur lært þetta getur staða hans breytzt I öldunga- deildinni og áhrif hans orðiö meiri þar. Gáfur og eljusemi skortir hann ekki. Þetta tvennt nægir þó ekki nema því sé beitt rétt eins og þegar Schmitt bjó sig undir feröina til tunglsins. Þ.Þ. Schmitt öldungadeildarmaöur.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.