Tíminn - 01.10.1978, Side 18

Tíminn - 01.10.1978, Side 18
18 Sunnudagur 1. október 1978 Tísku- ekki eins erfiðar og ætla mætti” Guöriin fyrir utan heimili sitt aö Langholtsvegi 51. „Ég sakna mjög hins góöa vetrarveöurs á Akur- eyri.” — segir Guðrún Valgarðsdóttir, flugfreyja A tiskusýningunnisem fram fór á islensk föt ’78 og sýnd var i sjónvarpinu um daginn vakti ein^ stúlka scrstaka athygii okkar, — hún var dekkst yfiriitum og öspör á bros, Guörún Valgarösdóttir flugfrcyja og feguröardrottning isiands 1971. Viö heimsóttum Guörúnu aö heimili hennar og manns hennar Óla Hertervig Sveinbjörnssonar aö Langholts- vegi 51 nú i vikunni. Guörún kom til dyra meö litinn fjögurra mánaöa gamlan son i fanginu og viö fætur hennar skoppaöi heimilishundurinn „Sjenni” skiröur eftir guöveigunum aö sjálfsögöu. Óli var aö vinna i fyrirtæki sinu Bót en sendi okkur góöar kveöjur. Þetta varö bara til þess aö Guö- rtinu gafst tækifæri til aö tala frjálslega um heimilislifiö og spuröum viö hana hvaö jafn- réttismálin væru komin langt á heimilinu. „Þaö veröur aö segjast eins og þaö er, aö Óli er mikiö fyrir aö vera húsbóndi. Hann situr gjarn- an inni i stofu og les blööin. Þá fæ ég aö dekra viö hann. Hins vegar lætur hann matseldina sér ails ekki óviökomandi og er miklu betri kokkur en ég. Uppvask og tiltekt telur hann ekki vera i sin- um verkahring, nema þegar ég er að fljúga en þá kem ég aö öllu i röö og reglu. Svo er hann mikiö fyrir aö vera hjá barninu.” ,,Nú hef ég veriö heima siðan litli strákurinn fæddist og er mjög ánægö meö þaö. Mér finnst 6 mánaöa fæöingarfri nauösynlegt og ætla m ér ekki aö fara aö fljúga aftur fyrr en um áramót. Ung- börn þurfa mikla umönnun og þaö eina sem ég hef leyft mér er að taka þátt i "þessari tiskusýningu hjá Modelsamtökunum. Annars „Hvern ég hélt mest upp á I M.A.? Þaö var Islenskukennarinn minn, Gisli Jónsson.” kem ég til meö aö hafa fyrirtaks barnapiu, þar sem er Vaka systir min og uppeldisdóttir siöan fyrir átta árum.” Vaka 15 ára birtist i gættinni og Guörún minnti hana á afmælis- kringlu ágæta sem hún heföi bakað þá um morguninn i skólan- um. Vaka dró heldur úr þvi aö gefa okkur bita... „Kennaranum þótti hún þurr” sagöi hún... en i ljós kom að kringlan var mjög bragögóö. — Talið barst aö tisku- sýningum. „Þær eru ekki eins erfiðar og ætla mætti”, sagöi Guörún, ,,og fy rir mig er vinnan viö þær hreint „hobby”. Ég var taugaóstyrk fyrst í stað en nú er skrekkurinn horfinn ab mestu og þegar maður sýnir oft með sömu stelpunum eykur það á sjálfstraustiö. Þá þekkir maöur inn á þeirra takta lika. í þessu starfi skiptir feguröin ekki öllu máli, heldur limaburðurinn og taktvissan.” Viðmáttum til meö aö minnast á hárgreiðslu Guðrúnar sem var sú sama og sýningarstúlkurnar báru I sjónvarpinu. Hvaðan var hún'komin? „Ctsendingardaginn vorum viö aö fletta blööum og komumst fljótt aö þvi að þessir háu hnútar sinn h voru megin voru þaðsem koma skyldi. Við greidd- um hver annari á þennan hátt og hélst þaö vel i öllum nema okkur Helgu Möller (og nú hlær Guö- rún). Við höfum þykkara og þyngra hár og hnútarnir á mér duttu t.d. strax eftir tvær fyrstu innkomurnar. „Onnur áhugamál? Þá sjaldan ég gef mér ti'ma til að lesa tek ég mér einhvern reyfara i hönd. Þaö er svo afslappandi og maður gleymir efninu um leið. Þetta er svona rétt til að dreifa huganum. Maðurinn er aftur á móti bóka- hestur, les 10 til 20 bækur á meðan ég les eina.” Guörún, Óli og Vaka eiga öll hesta sem geymdir eru i Mos- fellssveitinni og i þá fer drjúgur timi. Guörún segist elska útilif og á sreasta Rauöhettumóti mætti hún með barnið til þess aö kokka ofan i vini og kunningja sem leigöu mótsgestum út hesta. ,,Ég er ekki frá þvi aö fólk hafi gotið á migaugum, þegar égsetti barniö á brjóst þarna úti i guösgrænni náttúrunni”. ‘ —FI. „Þegar ég tók þátt i keppninni um Ungfrú Aiheim var ég mjög ung og reynslulaus. Ég var ekki sérstakiega góö aö tala ensku enda bauö nám- iö i Menntaskólanum ekki upp á þaö. NU hvet ég Vöku til þess aö iæra vel tungumál og fara utan, þannig eykst viösýnin.” Myndin er tekin f skrifstofu óla. „Mér finnst 6 mánaöa fæöingarfrf nauösynlegt.”

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.