Tíminn - 01.10.1978, Page 22

Tíminn - 01.10.1978, Page 22
Sunnudagur 1. október 1978 22 Mmhm Borgarstjóri og heilbrigbisrá&herra hjálpa Jóhanni Pétri upp tröppurnar háu I Hamrahli&arskóianum. Myndir: Róbert. Jóhann Pétur: Fólk stundum óöruggt gagnvart fötluöum” 99 Viö báöum Jóhann Pétur aö segja okkur hvernig honum fyndist aö þurfa þannig aö rei&a sig á hjálp annarra. „Mér þótti þaö frekar erfitt þegar ég byrjaöi I skólanum og ég veigraöi mér frekar viö þvi aö biöja um hjálp annarra. Þetta venst þó og nú orðiö finnst mér allt i lagi aö biöja um hjálp — krakkarnir þekkja mig nú orðið.” Viö báðum Jóhann einnig að segja okkur hvernig skólafélag- arnir brygðust við þegar þeir þyrftu að hjálpa honum. „Það var eins og þeir þyrftu að herða sig upp i að hjálpa mér fyrst, en nú eru þeir orðnir vanir og bjóða mér oft aðstoð að fyrra bragði. Annars held ég að fólk sé stundum nokkuð óöruggt gagn- vart fötluðum. Þaö vill hjálpa en veit oft ekki hvernig það á að bera sig að því.” Egill Skúli Ingibergsson borgarstjóri og Magnús H. Magnússon heilbrigöisráöherra. A milli þeirra er Jóhann Pétur Sveinsson nemandi I Menntaskólanum viö Hamrahllö. Stutt ferðasaga i myndum: Gleymska okkar allra Heilbrigöisráöherra og borgarstjórinn í Reykjavik aöstoöa fatlaðan námsmann að komast leiöar sinnar. HR — Fatlaðir hafa mjög veriö i sviðsljósinu upp á siö- kastið. Er þar skemmst aö minnast velheppnaörar jafn- rétfisgöngu þar sem þúsundir manna sýndu stuöning sinn meöþvi að ganga meö. Nú er um aö gera aö halda vökunni varðandi málefni fatlaöra. — þau mega aldrei gleymast. Hér á siöunni viljum við vekja athygli á máli ungs fatlaðs námsmanns, Jóhanns Péturs Sveinssonar aö nafni. Hann stundar nám i Mennta- skólanum við Hamrahliö og þrátt fyrir að sá skóli sé ný- legur, virðist ekki hafa verið hugsað nóg til fatlaðra er hann var byggður. Þarf Jóhann þvi ávallt að fá einhverja til að hjálpa sér að komast upp og niður stigana i skólanum. Við fórum þess á leit við tvo kunna menn, þá Egil Skúla Ingibergsson borgarstjóra og Magnús H. Magnússon heil- brigðisráðherra að þeir aö- stoðuðu Jóhann og tóku þeir strax mjög vel i það. Myndirnar sýna þegar Jó- hann kemur i skólann og þá leið sem hann verður að fara til að komast i kennslustund.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.